Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.12.2017, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 29.12.2017, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —3 0 5 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 2 9 . d e s e M b e r 2 0 1 7 FrÍtt Fréttablaðið í dag skoðun Gunnlaugur Stefánsson fjallar um hræsni og laun. 10 sport Íþróttaannáll ársins. 20, 22 Menning Leikhúsrýni um Hafið í Þjóðleikhúsinu. 30 lÍFið Glamour gerir upp götu- tískuna á árinu. 36 plús sérblað l Fólk *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 FangelsisMál Þrátt fyrir að nýtt fangelsi hafi verið tekið í notkun í lok síðasta árs og að skilyrði til afplán- unar utan fangelsa hafi verið rýmk- uð umtalsvert í nýjum lögum um fullnustu refsinga, hefur þeim sem bíða eftir að hefja afplánun óskil- orðsbundinnar fangelsisrefsingar fjölgað um tæplega fimmtíu milli ára. 570 manns bíða nú eftir að hefja afplánun en 525 voru á boðunarlist- anum á sama tíma í fyrra. Með lagabreytingum síðla árs 2015 var bæði mælt fyrir um aukna notkun rafræns eftirlits og rýmkuð skilyrði reynslulausnar og til afplán- unar með samfélagsþjónustu. Með þessum breytingum og byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði stóðu vonir til þess að bið eftir afplánun styttist. Enda getur löng bið eftir afplánun haft í för með sér að refsingar fyrnist. „Við þurftum að loka fangelsinu í Kópavogi ári fyrr en áætlað var og við lokuðum svo Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg um mitt ár 2016 en nýja fangelsið var ekki tilbúið til notkunar fyrr en í árslok 2016. Þann- ig að tímabundið vorum við með allt of fá pláss,“ segir Páll Winkel, for- stjóri Fangelsismálastofnunar. Hann bendir einnig á að um 30 fangar séu vistaðir á Hólmsheiði að meðaltali þrátt fyrir að fangelsið geti tekið allt að 56 fanga. Starfs- mannafjöldinn í fangelsinu ræður ekki við fleiri fanga og segir Páll að fjölga þurfi um fjögur stöðugildi að lágmarki til að taka megi fangelsið í fulla nýtingu. „Miðað við þróun refsinga myndum við ná að halda í horfinu ef nýtingin á Hólmsheiði væri eins og best verður á kosið,“ segir Páll. Hann segir það geta tekið áratug að áhrif lagabreytinganna komi að fullu fram. „En við finnum líka að það er harðari kjarni sem þarf að afplána í fangelsunum sjálfum og það kallar á auknar öryggisráðstafanir,“ segir Páll. Hann segir forgangsröðunina inn í fangelsin valda því að í fangels- unum eru nánast eingöngu síbrota- menn og fangar sem afplána fyrir alvarlegustu brotin. Eins og Fréttablaðið greindi frá skömmu fyrir jól er ekki gert ráð fyrir auknum fjárframlögum til fangelsismála í frumvarpi til fjár- laga næsta árs. Þrátt fyrir það leggur dómsmálaráðherra áherslu á að Hólmsheiðinni verði komið í fulla nýtingu sem fyrst. „Það þarf bara að hagræða í rekstri fangelsanna og það er fangelsismálayfirvalda að ákveða hvernig peningunum er best fyrir komið í samráði við mig,“ segir ráð- herra. – aá Enn lengist bið eftir afplánun 570 manns bíða afplánunar óskilorðsbundinna dóma, þrátt fyrir að nýtt fangelsi hafi verið tekið í notkun og úrræði utan fangelsa hafi verið rýmkuð. Það þarf bara að hagræða í rekstr- inum og það er fangelsis- málayfirvalda að ákveða hvernig peningunum er best fyrir komið í samráði við mig. Sigríður Á. Andersen, dómsmála- ráðherra Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð í gær hlutskörpust í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna um nafnbótina íþróttamaður ársins. Ólafía varð þar með fyrst kylfinga og sjötta konan til að hljóta titilinn. Á árinu vann Ólafía sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni fyrst íslenskra kylfinga. Knattspyrnumennirnir Aron Einar Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson urðu næstir á eftir Ólafíu í kjörinu. Sjá síðu 18 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 5 GRÍMUTILNEFNINGAR Sýning ársins Leikstjóri ársins Leikari ársins í aðalhlutverki Leikkona ársins í aðalhlutverki Tónlist ársins „Ein af þessum stundum í leikhúsinu þar sem allt tekst“ HA. Kastljós „Leikur Björns Thors og Unnar Aspar, undir styrkri stjórn Ólafs Egils, er bæði góður og gegnumheill án þess að nokkurt prjál þurfi til“ SJ. Fréttablaðið Viðskipti Mikil óánægja er meðal starfsmanna lyfjafyrirtækjanna Actavis og Medis hér á landi sem hefur leitt til þess að margir hafa sagt eða íhuga að segja starfi sínu lausu. Þeir sem Fréttablaðið ræddi við segja óvissu um framtíð lyfja- fyrirtækjanna hér á landi, aukið vinnuálag og ákvörðun stjórnenda móðurfélagsins um að hætta við gjafir og jólahlaðborð, hafa komið niður á starfsanda. Alls starfa rúmlega 300 manns hjá Actavis og Medis hér á landi. Starfsmönnum Actavis var greint frá nýlegum hagræðingaraðgerðum ísraelska móðurfyrirtækisins Teva í tölvupósti. Kvarta þeir undan upp- lýsingagjöf stjórnenda og auknu vinnuálagi. Talsmaður Actavis og Medis segir í skriflegu svari til blaðs- ins að almenn starfsmannavelta hafi verið innan hefðbundinna marka síðastliðna mánuði. Ekki hafi verið ráðist í neinar uppsagnir starfsfólks. – hg / sjá síðu 6 Óvissa meðal starfsfólks Actavis ✿ Fjöldi á boðunarlista 2013 2014 2015 2016 2017 52 5 49 8 48 6 45 5 5 70 lÍFið Kærleiksríkar kisur, krúttlegir hvolpar og gagg- andi hænur eru hluti af starfsliði dvalarheimilisins Kirkjuhvols á Hvolsvelli. Sól- veig Unnur Eysteinsdóttir, starfandi forstöðumaður heimilisins, segir mark- miðið vera að skapa heimilislegt og hlý- legt samfélag og þar leika dýrin stórt hlutverk. Þar á meðal er kisan Njála sem lífgar upp á tilveruna á Kirkjuhvoli og er heimilis- mönnum til yndis og ánægju. „Fjölmargir heimilis- manna okkar eru með heilabilun og ná vel að tengjast kisu sem nýtur athyglinnar líkt og katta er siður,“ segir Sól- veig. – áhg / sjá síðu 38 Dýrin gleðja á Kirkjuhvoli 2 9 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 D -9 9 F 4 1 E 9 D -9 8 B 8 1 E 9 D -9 7 7 C 1 E 9 D -9 6 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.