Fréttablaðið - 29.12.2017, Page 11
Skömmu fyrir jól urðu þau tíð-indi í Bandaríkjunum að tveir miðaldra menn féllust í faðma,
felldu tár og fyrirgáfu hvor öðrum
áratugalanga beiskju. Viðburður-
inn var svo hjartnæmur og fallegur
að myndband af honum dreifðist
undurskjótt um heimsbyggðina,
þar sem milljónir miðaldra karl-
manna horfðu á og felldu kannski
sjálfir tár eða sugu að minnsta kosti
hressilega upp í nefið.
Faðmlag mannanna var trölls-
legt, því annar þeirra er 205 senti-
metra hár en hinn um 185 og báðir
vöðvastæltir fyrrum atvinnumenn
í íþróttum og ágætlega dúðaðir af
velmegunarspiki eftir áratugina
sem liðnir eru frá því þeir lögðu
skóna á hilluna.
Mennirnir tveir eru meðal fræg-
ustu körfuboltakappa níunda ára-
tugarins; Magic Johnson og Isiah
Thomas. Þeir voru nánir vinir sem
ungir menn, en vinskapur þeirra
súrnaði skyndilega fyrir 25 árum af
ýmsum ástæðum—og þróaðist út í
gagnkvæma fyrirlitningu, svika-
brigsl og illmælgi.
Þeir félagar settust loks niður
og áttu sitt fyrsta samtal í áratugi.
Fundur þeirra var fyrir milli-
göngu fjölda sameiginlegra vina
og fjölskyldumeðlima sem öllum
fannst orðið tímabært að gefa
kærleiknum sem eitt sinn var á
milli þeirra tækifæri til þess að
feykja burt þeim skýjum sem síðar
hrönnuðust upp.
Kærleikurinn sigrar
Á þeim tíma sem óvináttan stóð
gat hvor um sig tínt til hinar ýmsu
ástæður fyrir henni; og allar voru
auðvitað hinum að kenna. Sam-
skiptaleysi og fjarlægð gerðu þeim
báðum kleift að herðast í óvildinni
og sannfæra sig sjálfa um að lífið
væri betra án hins og að vinátta
þeirra væri bæði dauð og grafin.
Það tók hins vegar ekki langan
tíma þegar þeir hittust á ný að
finna að nýju sameiginlega strengi.
Og eftir smá spjall steig Magic
það skref að biðja vin sinn Isiah
fyrirgefningar á því að hafa komið
illa fram við hann. Við það brast
tilfinningastíflan hjá þeim báðum
og þeir stóðu tárvotir í faðmlögum
í dágóða stund; allt fyrir framan
myndavélarnar. Það þurfti ekki orð
til að sjá að fyrirgefningin var auð-
fengin, vináttan var komin aftur og
kærleikurinn hafði enn á ný vikið
óvildinni úr vegi.
Þar með er auðvitað ekki búið að
stroka út úr raunveruleikanum þá
staðreynd að báðir hafa þeir komið
illa fram, sagt ljóta og meiðandi
hluti og verið andstyggilegir á
ýmsan hátt. Þeir eru báðir sekir
og sakbitnir. Og ómögulegt er að
reikna það út hvor þeirra hefur gert
meira á hlut hins, eða jafna það skor
þannig að báðir telji sanngjarnt.
Ef undan er skilið einstaka helgi-
fólk þá höfum við öll bæði orðið
fyrir óréttlæti og valdið því; við
höfum komið illa fram og aðrir
hafa komið illa fram við okkur—í
okkur kraumar bæði reiði yfir því
sem okkur hefur verið gert og sam-
viskubit yfir því sem við höfum gert
öðrum. Fólk er flókið og marg-
breytilegt og lífsgangan er ekki alltaf
á beinum eða breiðum vegi. Enginn
er fullkominn.
Áhugaverð tilraun
Máttur fyrirgefningarinnar er
kannski einhver mikilvægasti boð-
skapur kristninnar. Kristur kenndi
að bjóða ætti hinn vangann og fyrir-
gefa nágranna sínum ekki aðeins sjö
sinnum, heldur sjö sinnum sjötíu
sinnum. Þetta þætti okkur flestum
líklega jaðra við geðleysi, enda ber
sennilega að taka þessi orð frekar til
umhugsunar en sem forskrift.
Engu að síður er áherslan á
fyrirgefningu í kristninni töluverð
stefnubreyting frá því sem boðað er
í Gamla testamentinu. Jafnvel þótt
„auga fyrir auga“ hafi alls ekki verið
boðskapur hefndar, heldur einmitt
hóflegra og sanngjarnra refsinga,
þá er óhætt að segja að áherslan á
fyrirgefningu aðgreini kristnina öðru
fremur frá gyðingdómnum sem hún
er sprottin af. Ísraelskur vinur minn
orðaði það þannig að honum þætti
þessi áhersla á fyrirgefningu vera
forvitnileg tilraun; en taldi sjálfur að
réttlæti væri miklu mikilvægara.
Vaggandi vogarskálar
Sá er hins vegar vandinn við rétt-
lætið að erfitt getur reynst að meta
hvenær tvær misgjörðir jafna
hvor aðra út; eða hvenær refsing
er nákvæmlega hæfileg til þess að
jafna sakir. Fyrir vikið einkennast
langvarandi illdeilur og særindi milli
fólks og þjóða af því að vogarskálar
réttlætisins ná aldrei því friðsæla
jafnvægi sem allir geta fellt sig við.
Spurningar um refsingu, hefnd,
fyrirgefningu og iðrun eru meðal
þeirra mikilvægustu og flóknustu
í mannlegu samfélagi. Þær eiga við
okkur sjálf sem einstaklinga, innan
fjölskyldna, milli vina og einnig á
opinberum vettvangi—þar sem
ríkisvaldinu er falið vald til þess að
framkvæma refsingar þótt stundum
eigi þær sér stað í formi umfjöllunar
eða útskúfunar. Allt er þetta vand-
meðfarið og flókið.
Engan er hægt að neyða til að
fyrirgefa það sem á hlut hans hefur
verið gert, og sumum tekst aldrei að
fyrirgefa sjálfum sér fyrir það sem
þeir hafa gert á hlut annarra. Og fyrir
sumar misgjörðir er ótækt annað en
að refsa. En í góðu samfélagi eru lær-
dómur, iðrun og yfirbót er ekki síður
mikilvægir þættir í gangverki rétt-
lætisins heldur en refsing og hefnd.
Svalandi fyrirgefning
Þeir félagar Magic Johnson og
Isiah Thomas ákváðu bersýnilega
að þeim myndi báðum líða betur
ef þeir brytu odd af oflæti sínu og
gæfu hvor öðrum upp sakir í stað
þess að láta sig dreyma um hefnd
og réttlæti. Nema auðvitað að þeir
hafi komist að þeim sannleik að
þorstanum eftir hefnd verði ekki
svalað fullkomlega með fullkominni
refsingu heldur með fullkominni
fyrirgefningu.
Fyrirgefning og réttlæti
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
Nú er senn að ljúka fyrsta heila starfsári markaðsstofunnar Icelandic lamb. Hlutverk
hennar er m.a. að kynna íslenskt
lambakjöt, ull og aðrar sauðfjárafurðir
fyrir erlendum ferðamönnum. Þetta er
í fyrsta skipti sem það hefur verið gert
með skipulögðum hætti. Starfið hverf-
ist um eitt sameiginlegt merki sem
táknar gæði, hreinleika og sérstöðu.
40 milljón snertingar á netinu
Icelandic lamb heldur úti öflugri sam-
félagsmiðlaherferð sem hefur skilað
um 40 milljón snertingum. Þetta er
fjórfalt það sem áætlanir gerðu ráð
fyrir. Um 50 myndbönd eru í dreifingu
á vefnum ásamt öðru efni. Einstaka
myndbönd hafa fengið allt að sjö þús-
und deilingar sem er framúrskarandi
á alla mælikvarða. Herferðin hefur
verið verðlaunuð af FÍT, tilnefnd til
evrópsku ADCE verðlaunanna og nor-
rænu Emblu-verðlaunanna.
Um 150 innlendir aðilar í nýsköpun,
hönnun, verslun, úrvinnslu eða veit-
ingarekstri eru í samstarfi við Ice landic
lamb. Þar af eru rúmlega hundrað
veitingastaðir af öllum stærðum og
gerðum. Staðirnir setja lambakjöt í
öndvegi og merkið er áberandi inni
á stöðunum, á heimasíðum þeirra og
víðar. Þetta samstarf hefur skilað sér
greinilega í töluvert aukinni sölu.
30% þekkja merkið
Samkvæmt nýrri Gallup-könnun
meðal erlendra ferðamanna kom í
ljós að um 30% þekkja merkið og hafa
á því jákvæða skoðun. Þessi niðurstaða
er framar björtustu vonum. Undirrit-
aður og aðrir sem að verkefninu standa
þóttu bjartsýnir þegar þeir gerðu sér
vonir um að ná til 10% erlendra ferða-
manna á fyrsta heila starfsárinu.
Könnunin sýnir einnig að 52%
erlendu ferðamannanna borða
íslenskt lambakjöt á veitingastöðum.
Flestir bara einu sinni en margir oftar.
Aðeins 15% keyptu sér hins vegar
íslenskt lambakjöt úti í búð. Ljóst er að
þar eru mikil sóknarfæri en aukin sam-
vinna við íslenskar smásöluverslanir
er einmitt ein helsta áhersla Icelandic
lamb fyrir árið 2018.
Icelandic lamb nær til
erlendra ferðamanna
Kirkjufellsfoss er líklega að verða einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna sem leið eiga um
Snæfellsnesið. Þangað koma þúsundir
ferðamanna alla daga til að berja
fossinn augum og auðvitað til að taka
mynd af Kirkjufellinu frá þessu til-
tekna sjónarhorni.
Bílastæði eru örfá og gríðarlegt
umferðaröngþveiti myndast við
þjóðveginn þar sem ægir saman
stærðarinnar langferðabílum og
smæstu bílaleigubílum. Slysahættan
er áþreifanleg og mannslíf í stans-
lausri hættu.
Ég hef undrast það hvers vegna
landeigendur hafi ekki gert bragarbót
á, öllum til heilla, og komist að því að
þeir vilja hreinlega ekki að ferðamenn
komi inn á svæðið. Þeir hafa reynt að
loka svæðið af, þrengt inngang að bíla-
stæðum, sett lása á öll hlið og jafnvel
öskrað á ferðamenn sem þarna koma.
Lokanirnar á svæðinu eru reyndar
orðnar svo umfangsmiklar að Grund-
firðingar geta ekki lengur gengið um
svæðið eins og áður.
Þarna væri með litlum tilkostnaði
hægt að koma upp þjónustumiðstöð
með góðu bílastæði og varningi til
sölu. Miðað við fjölda ferðamanna
daglega mætti þéna vel á því.
Merkilegast við afstöðu land-
eigandans, eða þess sem á 70% af
landinu, er að hann býr ekki sjálfur í
Grundarfirði heldur í útlöndum. Og
hann er þekktur fyrir það að ferðast
og njóta náttúruperla í öðrum lönd-
um á sama tíma og hann gerir hvað
hann getur til að halda ferðamönnum
frá Kirkjufellsfossi.
Þannig að í stað þess að koma upp
aðstöðu fyrir ferðafólkið, og eflaust
hagnast, þá mun þessi tiltekni land-
eigandi hafa slysin sem verða á svæð-
inu á samvisku sinni.
Kirkjufellsfossinn fagri
Svavar
Halldórsson
framkvæmda-
stjóri Icelandic
lamb Um 150 innlendir aðilar í
nýsköpun, hönnun, verslun,
úrvinnslu eða veitingarekstri
eru í samstarfi við Icelandic
lamb.
Guðmundur
Ingi Þóroddson
formaður
Afstöðu
PÁSKATILBOÐ
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Niðurfellanleg
hliðarborð
• Afl 10,5 KW
Grillbúðin
56.175
Verð áður 74.900
25%
afsláttur
Grill - Húsgögn
Eldstæði - Útiljós
Jólaljós - Aukahlutir
Opið virka daga 11-18
Laugardag 11-16
• 3 brennarar
• Brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Grillflötur 65 x 44 cm
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Vönduð Yfirbreiðsla fylgir ÚTSA
LA
Dregið hefur verið í jólahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Vinningar komu á eftirtalin númer:
Toyota Yaris Active Hybrid að verðmæti kr. 2,890.000 hvor bifreið.
2318 63833
Ferðavinningur frá Heimsferðum að upphæð kr. 600.000
6341 41119 47585 79120
Ferðavinningur frá Heimsferðum að upphæð kr. 300.000
269 10944 20093 31224 39081 51209 60896 72101
1002 12190 20519 31775 40636 51621 61573 73240
2810 13150 20540 31850 43298 53003 62222 73986
4852 14002 24156 32342 44355 54783 65150 74989
4861 14234 24567 33092 44663 55607 65200 75005
5290 14329 25542 33124 45052 55664 66696 76500
5772 14780 25603 33161 45460 55791 68852 76612
7882 14841 26077 34753 45764 55974 69260 76980
9098 17446 26907 36211 46369 57001 69396 77873
10257 17883 27770 36494 47410 57229 69805 78227
10363 17974 28135 37044 48424 59425 70555 78366
10483 18661 28825 37340 49020 59492 71225 78724
10842 20062 31134 37625 50368 60824 71499 78930
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar landsmönnum veittan stuðning og óskar vinningshöfum til hamingju.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut 13,
Reykjavík, sími 535-0900.
Byrjað verður að greiða út vinninga 5. janúar 2018. Vinningsskrá er einnig birt á heimasíðu félagsins www.slf.is
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11F Ö S T u d a g u R 2 9 . d e S e m B e R 2 0 1 7
2
9
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
D
-9
E
E
4
1
E
9
D
-9
D
A
8
1
E
9
D
-9
C
6
C
1
E
9
D
-9
B
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K