Fréttablaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 6
Fyrirbyggjandi vörn gegn eyrnabólgu
og nauðsynlegt fyrir þá sem eru með
rör í eyrum eða viðkvæm eyru.
Til í þremur stærðum.
Njóttu þess að fara
í sund / sjósund
Verndaðu eyrun með Ear Band-It Ultra
eyrnaböndum og eyrnatöppum
Fæst í apótekum,
barnavöruverslunum
og Útilíf
Kæri viðskiptavinur,
Fréttablaðið, Markaðurinn og Glamour færist undir
dótturfélag í eigu 365 miðla Torg ehf.
Frá og með 1. desember verður rekstur Fréttablaðsins,
Markaðarins og Glamour rekinn í gegnum rekstrarfélagið
Torg ehf. kt. 610808-1230 sem er 100% í eigu 365 ehf.
kt. 480702-2390.
Torg ehf. mun yfirtaka skuldbindingar og rekstur
Fréttablaðsins og Glamour.
Reikningar vegna auglýsinga, áskrifta eða annarrar
þjónustu í Fréttablaðinu, Markaðnum og Glamour munu
framvegis verða sendir út á kennitölu Torg ehf.
610808-1230.
Ef þið hafið frekari spurningar eða athugasemdir er ykkur
velkomið að hafa samband við innheimta@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL „Þetta er hluti af
stórum pakka sem við rannsökum. Við
skoðum samhliða þessu vanstarfsemi
skjaldkirtils og hvort börn umbreyti
fitu- og amínósýrum eðlilega. Þetta
eru allt ættgengir og meðfæddir sjúk-
dómar sem við erum að skima fyrir,“
segir Leifur Franzson, verkefnastjóri
nýburaskimunar á Landspítalanum.
Leifur segir þetta ekki endilega
algengan sjúkdóm hér á landi, en
afleiðingar hans séu það alvarlegar að
skimun er bráðnauðsynleg. „Í þeim
rannsóknum sem hafa verið gerðar á
tíðni þessa sjúkdóms hér, þá eru engir
strákar með þennan sjúkdóm hér fyrir
árið 1967. Þeir hafa væntanlega bara
dáið við fæðingu. Ef þetta uppgötvast
ekki er þetta lífshættulegt. Það eru
sérstakar týpur sem eru hættulegri en
aðrar.
Sjúkdómurinn orsakast af með-
fæddum galla í framleiðslu ensíma
sem mynda stera í nýrnahettum, sem
stjórna magni natríums og kalíum í
líkamanum. Ef natríummagnið er of
lítið, þá fellur blóðþrýstingurinn og
nýburinn getur farið í lost og hrein-
lega dáið. Það hafa komið hingað börn
í mjög tvísýnu ástandi,“ segir Leifur.
Skortur á algengasta ensíminu leiðir
til offramleiðslu karlhormóna. Sjúk-
dómurinn hefur því ekki sömu áhrif á
drengi og stúlkur. Offramleiðsla karl-
hormónanna veldur breytingum á ytri
kynfærum stúlkna og greinast þær því
yfirleitt fljótlega eftir fæðingu. Drengir
sem fæðast með sjúkdóminn líta hins
vegar algerlega eðlilega út, þó að sjúk-
dómurinn hafi að sjálfsögðu sömu
áhrif á þá, utan þess. Því er skimun
blóðsins strax við fæðingu nauð-
synleg. Meðferð er vandasöm en hún
felst í lyfjameðferð og eftir atvikum
vandasömum skurðaðgerðum, þá á
stelpum. Sé sjúkdómurinn greindur
strax verða lifun og lífsgæði barnanna
yfirleitt góð.
Nýgengi sjúkdómsins er breytilegt
eftir löndum og er yfirleitt eitt á hver
tíu til fimmtán þúsund fædd börn
greint með sjúkdóminn. Á Íslandi er
nýgengið eitt barn á hver 6.102 börn
fædd. Á Íslandi fæðast rúmlega 4.500
börn á hverju ári. Ekkert barn hefur
greinst með sjúkdóminn síðustu tvö
ár í óformlegri skimun á Landspítal-
anum. „Við skimum 4.500 börn á ári,
sem eru allar fæðingar. Tölfræðin
getur verið ruglandi. Við gætum allt
eins greint þrjú börn á næsta ári, og
svo ekkert næstu tíu ár. Til saman-
burðar ef við lítum til Svíþjóðar eru,
miðað við 89 þúsund börn fædd á ári,
að greinast þar þrjú til fjögur börn á
ári,“ segir Leifur.
Í Noregi er gengið eitt barn á hver
sextán þúsund fædd, í Svíþjóð er það
eitt á hver 8.900 fædd börn. Ástæða
þess að ekki hefur verið skimað fyrir
þessu áður er að hvarfefnin, eða þau
rannsóknarefni sem þarf til að greina
þetta, töldust ekki nægilega góð.
lovisaa@frettabladid.is
Auðveldara að greina
stúlkur en drengi
Skimun fyrir meðfæddum nýrnahettuofvexti hófst um áramótin. Sjúkdómur-
inn orsakar offramleiðslu karlhormóna og getur verið lífshættulegur. Því er
skimun bráðnauðsynleg. „Það hafa komið hingað börn í mjög tvísýnu ástandi.“
Skimun fyrir sjúkdómnum meðal ný-
bura hófst í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Ljósadýrð í Lundúnum
Sem fyrr var mikið um dýrðir í Lundúnum þegar nýtt ár gekk í garð. Flugeldar lýstu upp himininn yfir
klukkuturni Westminsterhallar, eða Big Ben eins og hann er oftast kallaður. Enginn klukknahljómur hefur
heyrst frá honum undanfarin misseri enda fara fram miklar endurbætur á turninum um þessar mundir. Engu
að síður hringdi Big Ben inn nýtt ár en eftir að árið 2018 gekk í garð þagnaði hann á ný. nordicphotoS/Getty
LandBúnaÐuR Landssamtök sauð-
fjárbænda fagna því að fyrstu
aðgerðir gagnvart greininni séu
fram komnar. Þetta kemur fram í
umsögn samtakanna við fjárauka-
lög ársins 2017. Í frumvarpinu er
lagt til að 665 milljónum króna
verði varið til málaflokksins til að
bregðast við markaðserfiðleikum
sem að greininni hafa steðjað.
Lagt er til að 300 milljónum verði
varið í greiðslu til bænda vegna
kinda á vetrarfóðrum, 200 millj-
ónum í svæðisbundinn stuðning
til viðbótar við gildandi búvöru-
samning og 100 milljónum til að
undirbyggja verkefni á sviði kol-
efnisjöfnunar, nýsköpunar og mark-
aðssetningar. Þá verði 15 milljónum
varið í úttekt á afurðastöðvakerf-
inu. Þá er þeim möguleika haldið
opnum að verja 50 milljónum króna
til að auka hagræðingu í greininni,
leiði úttektin slíkan möguleika í
ljós.
Landssamtök sauðfjárbænda segj-
ast í umsögninni styðja heilshugar
að ráðist verði í vandaða úttekt á
allri virðiskeðjunni, frá bónda til
neytenda. Það sé mikilvægur liður
fyrir framtíðarlausnir greinarinnar.
„Í framhaldinu er nauðsynlegt að
fara í frekari vinnu til að styrkja
rammann utan um greinina svo
henni séu boðin lífvænleg skilyrði.
Það er ekki boðlegt til framtíðar að
treysta þurfi á sértækar aðgerðir
þegar fall verður á mörkuðum vegna
utanaðkomandi aðstæðna með til-
heyrandi óvissu um aðgerðir,“ segir
í umsögninni. – bg
Fagna nýju fjármagni
Íslenskt sauðfé í réttum.
Fréttablaðið/eyþór
2 . j a n ú a R 2 0 1 8 Þ R I Ð j u d a G u R6 f R é t t I R ∙ f R é t t a B L a Ð I Ð
0
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:5
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
A
0
-3
0
D
0
1
E
A
0
-2
F
9
4
1
E
A
0
-2
E
5
8
1
E
A
0
-2
D
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K