Morgunblaðið - 01.07.2017, Qupperneq 2
Minnkandi
mengun
er í hafinu
Að styrk eru
mengandi efni í
NA-Atlantshafi á
undanhaldi og
ástand sumra
fisktegunda þar
að braggast, segir
í nýrri úttekt sem
gerð var undir
merkjum OSP-
AR-samningsins
á ástandi haf-
svæðisins. Rusl í hafi, þá helst plast,
skapar mikinn vanda og ýmsir stofn-
ar sjófugla á þessu svæði eiga í vök
að verjast. Til lengri tíma eru áhrif
loftslagsbreytinga og súrnun hafsins
áhyggjuefni, en óvissa um hver
áhrifin á lífríki hafsins verða.
Þetta segir í frétt frá umhverfis-
ráðuneytinu um skýrslu OSPAR,
sem í gær var kynnt á ársfundi
samningsins í Cork á Írlandi. Meng-
un af völdum ýmissa þungmálma og
þrávirkra lífrænna efna í hafi er
minni nú en þegar síðasta úttekt var
gerð árið 2010. Sömuleiðis er losun
geislavirkra efna í sjó minni og olíu-
og efnamengun að dragast saman.
Þá eru ýmsar tegundir fiska í vexti
og telja sérfræðingar góða fiskveiði-
stjórnun skýra það að hluta.
sbs@mbl.is
OSPAR með úttekt
Hafið Skipið er á
leiðinni í land.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Fegrum utandyra
DEKAPRO útimálning,
10 lítrar
7.490
Oden þekjandi viðarvörn
2,8 lítrar, A stofn
4.890
ODEN EÐAL OLÍA á palla.
Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l.
3.680
Landora tréolía
Col-51903 3 l.
1.980
Dicht-Fix þéttiefni.
750ml1.795
Þakmálning 10 lítrar
Rauð og svört
8.990
Borgarráð hefur samþykkt að
veita alls 30,7 milljónum króna til
bráðabirgðaviðgerða á útilista-
verkum í eigu Reykjavíkurborgar.
Viðgerðir á verkunum eru í umsjá
Listasafns Reykjavíkur og hefur
forvörður á vegum safnsins lagt
mat á ástand þeirra.
Áætlaður kostnaður vegna sér-
fræðivinnu og bráðabirgðavið-
gerða í ár nemur tæpum 15,7
milljónum króna. Þá skal næstu
þrjú árin veita 5 milljónum króna
árlega til áframhaldandi viðgerða.
Af áætluðum heildarkostnaði
munar mest um lagfæringar á úti-
listaverkinu Fyssu eftir Rúrí í
Grasagarði Reykjavíkur sem vígt
var árið 1995. Upphæðin nemur
um 8 milljónum króna í ár. Auk
þess verður árlega greidd milljón
króna sem fer í reglubundið við-
hald á verkinu næstu þrjú árin.
Stærstur hluti framlagsins til
Fyssu verður nýttur í að laga
ónýtar vatnsdælur og koma vatns-
ganginum í lag.
Samkvæmt mati forvarðar
Listasafns Reykjavíkur eru eink-
um 11 verk sem brýnt er að laga
og bæta sem fyrst, auk þess sem
hreinsa þarf stöpla í garði Ás-
mundarsafns, bæta merkingar og
fleira. Skráð útilistaverk í Reykja-
vík eru alls 183 en þar af eru 148 í
eigu borgarinnar og ber Listasafn
Reykjavíkur ábyrgð á þeim verk-
um. aronthordur@mbl.is
Morgunblaðið/Hanna
Fyssa Listaverkið er eftir listamanninn Rúrí og er í Grasagarði Reykjavíkur. Verkið var vígt árið 1995.
Lagfæra listaverk fyrir
rúmar 30 milljónir króna
Munar mest um viðgerðir á Fyssu í Grasagarðinum
Viðgerðir Verið er að gera við
styttu Héðins Valdimarssonar.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði
í gær frávísunarkröfu Borgunar
vegna málsóknar Landsbankans
gegn fyrirtækinu. Í desember
greindi Landsbankinn frá því að
hann hefði stefnt Borgun hf., for-
stjóra Borgunar hf., BPS ehf. og
Eignarhaldsfélaginu Borgun slf.,
en málið er höfðað til viðurkenn-
ingar á skaðabótaskyldu stefndu.
Hinir stefndu kröfðust þess að mál-
inu yrði vísað frá en héraðsdómur
taldi rétt að málið hlyti efnislega
meðferð.
Í tilkynningu bankans frá því í
desember kemur fram að það sé
mat Landsbankans að hann hafi
orðið af sölu-
hagnaði við sölu
á 31,2% hlut sín-
um í Borgun hf.
árið 2014. „Bank-
inn fékk ekki
upplýsingar sem
stefndu bjuggu
yfir um að Borg-
un hf. ætti hlut í
Visa Europe Ltd.
og réttindi sem
fylgdu hlutnum, þ. á m. mögulega
hlutdeild í söluhagnaði Visa Europe
Ltd. við nýtingu söluréttar í valrétt-
arsamningi Visa Inc. og Visa Eu-
rope Ltd.,“ sagði í tilkynningunni.
Málið gegn Borgun
fær efnislega meðferð
Borgun Frávís-
unarkröfu hafnað.
Kalkofnsvegur og nærliggjandi svæði neðan við Arnarhól í Reykjavík sjást
nú sundurgrafin, en þar stendur nú yfir mikil uppbygging sem standa mun
næstu misserin. Nú er loksins byrjað að vinna í grunni hótelsins sem stend-
ur við hlið Hörpu, en hann hefur staðið eins og opið sár alveg frá Hruni. Til
skamms tíma blasa því við lokanir, girðingar, byggingarkranar, vinnuvélar
og opnir grunnar en í framtíðinni verður þarna glæst byggð. ernayr@mbl.is
Ljósmynd/Hlynur Skúli Skúlason
Sundurgrafið svæði neðan við Arnarhólinn