Morgunblaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017
Konny Kristjánsdóttir, fyrr-verandi hjúkrunarforstjóriá Akureyri, á 80 ára afmæli
í dag. Hún fæddist í Korsør á Vestur-
Sjálandi í Danmörku og ólst þar upp.
Hún lauk hjúkrunarfræðiprófi frá
Gentofte Amts Sjukrahus í Dan-
mörku 1959, stundaði framhaldsnám
í heilsugæslu í Noregi 1979 og hefur
sérfræðileyfi í barnahjúkrun frá
1980. Hún fór einnig í nám í Gauta-
borg veturinn 1993-95.
Konny hóf störf við barnadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
1962, varð hjúkrunarforstjóri við
Heilsuverndarstöð Akureyrar 1979
og var hjúkrunarforstjóri við Heilsu-
gæslustöðina á Akureyri frá 1985 til
1997. „Það sem er mér mjög eftir-
minnilegt var þegar ég fór með yfir-
lækninum á barnadeildinni út og lærði fyrirburafræði. Þegar við komum
til baka settum við upp deild á sjúkrahúsinu á Akureyri með meðferð á
fyrirburum, það var mjög spennandi. Það er mjög gott að hafa búið á Ís-
landi, mér hefur alltaf verið tekið einstaklega vel og hef unnið með góðu
samstarfsfólki. Núna hef ég gaman af því að sauma bútasaum og svo för-
um við hjónin í sund og leikfimi.“ Konny hefur verið félagi í Zontaklúbbn-
um Þórunni hyrnu í meira en 30 ár.
Konny kom fyrst til Íslands árið 1955, en hún eignaðist íslenska vin-
konu, Lindu, þegar hún var í húsmæðraskóla í Danmörku. „Pabbi hennar
var Eyþór Tómasson sem átti súkkulaðiverksmiðjuna Lindu. Hann bauð
mér að koma að vinna hjá sér í einn vetur og þá skyldi hann borga fyrir
mig farið fram og til baka. Nokkrum dögum eftir að ég kom til Akureyrar
kynntist ég svo manninum mínum. En svo sneri ég til baka því ég var búin
að innrita mig í hjúkrunarskóla og hann fór að læra skóhönnun í Svíþjóð.
Við giftum okkur árið 1960 og fluttumst til Akureyrar og þar hef ég alltaf
búið síðan.“
Eiginmaður Konnyjar er Kristinn Bergsson. Börn þeirra eru Hanna
Elísabet, hönnuður og rithöfundur, búsett í Noregi og Danmörku, og Jens
Kristján, stýrimaður og útgerðartæknir og vinnur hjá Special Tours í
Reykjavík. Dóttir Hönnu er Charlotte Victoria Mackinnon 24 ára nemi við
Háskólann í Bergen. Jens er giftur Guðrúnu Ýri Tómasdóttur rafeinda-
fræðingi og dóttir þeirra er Karen María 25 ára nemi í Háskóla Íslands.
Konny heldur upp á afmælisdaginn sinn hjá dóttur sinni á Mön í Dan-
mörku með fjölskyldu og vinum. „Við hjónin höfum komið hingað sein-
ustu sumrin. Við verðum hérna í 14 daga og svo kem ég aftur í ágúst og
ætla að borða ávexti úr garðinum hennar Hönnu. Í dag fáum við okkur
„höjt dansk smørrebrød“ og jarðarber.“
Á Mön Konny í sól og sumaryl.
Fær sér smurbrauð
og 80 jarðarber
Konny Kristjánsdóttir er áttræð í dag
H
arpa Jóhanna Reynis-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1.7. 1967 og
ólst þar upp og í
Kópavogi: „En ég var
eins og farfuglarnir. Um leið og skól-
inn var úti á vorin var ég komin til
ömmu Margrétar að Steðja í Flóka-
dal og var þar fram á haust og oft
einnig með fjölskyldu minni þar um
jól og páska. Þarna bjó líka Stefán,
móðurbróðir minn.
Á Steðja var fé og nokkrar kýr sem
þá voru auðvitað handmjólkaðar,
mjólkin skilin með skilvindu og
strokkað smjör. Þarna var kynt með
olíu og ég náði að kynnast gamla
sveitasímanum.“
Harpa var í Laugarnesskóla, Kárs-
nesskóla og Kópavogsskóla, stundaði
nám við MK en skipti yfir í Flensborg
og lauk þaðan stúdentsprófi, lauk síð-
an B.Ed.-prófi frá KHÍ og hefur sótt
ýmis námskeið við Landbúnaðarhá-
skólann á Hvanneyri eftir að hún hóf
Harpa Jóhanna Reynisdóttir bóndi – 50 ára
Í bíltúr með ömmu Harpa Jóhanna með dóttursonunum, Marinó Rúnari og Jóhanna Erni. Þetta er sko sport!
Flutti í Flókadalinn
hennar ömmu sinnar
Spánarferð 2015 Harpa Jóhanna og Jóhann Pjetur í sveitaþorpi á Spáni.
Þann 24. júní síðastliðinn voru Lára Jónasdóttir og Þórólfur Jarl Þórólfsson
gefin saman í hjónaband af sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Athöfnin fór
fram í kyrrþey. Veisluhöld auglýst síðar.
Brúðkaup
Athugið að myndin er
sviðsett en ástin er sönn.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
Er allt á
HREINU
fyrir...
Fatahreinsun
Dúkaþvottur
Dúkaleiga
Heimilisþvottur