Morgunblaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019
Valin verk úr safneign
Sunnudagsleiðsögn með safnstjóra 2. júlí kl. 14
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER
Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017
STEINA - ELDRÚNIR (PYROGLYPHS) 4.3. - 20.8.2017
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 17.09.2017
Opið daglega kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 14.9.2017
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Safnið er lokað frá mánudeginum 26. júni. Opnar aftur þriðjudaginn 4. júlí
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Fuglarnir, fjörðurinn og landið í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Hugsað heim á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14.öld
Spegill samfélagsins 1770
Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga frá 10-17.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Á disknum eru lög sem má segja að
hafi öll skipað sér sess í hjarta mínu,“
segir Hanna Friðriksdóttir söngkona
sem heldur útgáfutónleika í Iðnó
þriðjudaginn 4. júlí kl. 21 í tilefni af
útgáfu geisladisksins It Must Be
Spring. Hanna á langan feril í söng
og er búsett á Ítalíu í grennd við
Como-vatnið þar sem hún starfar
sem tónlistar-
kennari og
söngkona.
„Ég er með
klassískan
bakgrunn en
hef undan-
farin ár verið
að þróa söng-
stíl minn meira út í djasstón og per-
sónulegri raddbeitingu,“ segir
Hanna. Um lögin á plötunni segir hún
aðallega vera um að ræða bíómynda-
og söngleikjalög frá þriðja og fjórða
áratug síðustu aldar, tímabili sem er
oft kennt við „The Great American
Songbook“. „Ég blanda líka saman
við nokkrum frönskum lögum frá
sama tímabili og einu napóletönsku
lagi. Mörg af lögunum hafa komið
fyrir í myndum Woody Allen og eru
óður til míns uppáhaldskvikmynda-
leikstjóra og dálætis hans á djassi og
klarínettinu.“ Plötuna tileinkar
Hanna móður sinni, Jóhönnu Sveins-
dóttur, sem lengi var búsett í París,
en þar hélt hún einmitt útgáfu-
tónleika síðastliðinn mánudag.
Undirstrika einfaldleikann
„Það hefur alltaf heillað mig hvern-
ig Woody Allen notar tónlistina í
myndum sínum. Það er líkt og mynd-
irnar syngi. Líta mætti á samsafn
laganna á plötunni sem tónlistina fyr-
ir mína kvikmynd,“ segir Hanna, en
platan inniheldur meðal annars lögin
„Si tu vois ma Mère“ og „Parlez-moi
d’Amour“ úr kvikmyndinni Midnight
in Paris eftir Woody Allen.
„Það sem heillar mig í lögunum á
plötunni er einlægnin í textunum og
melódíunum. Samvinnan milli laga-
og textahöfundar er frábær og ég
lagði áherslu á mjög „acoustic“ út-
færslu. Við notum eingöngu gítar,
kontrabassa og klarínett. Hugsunin
sem þar býr að baki er að fanga og
undirstrika hinn tæra einfaldleika
sem falinn er í eðli laganna,“ segir
Hanna og finnst mikilvægt að halda
einfaldleikanum til haga þar sem yfir-
borðskenndin sé farin að ráða ríkjum
og ýmis gildi eins og einlægni séu á
undanhaldi. „Ég valdi líka lögin með
tilliti til skilaboða sem höfða til mín.
Fyrsta lagið á plötunni er „It Might
as Well Be Spring“ eftir Richard Ro-
gers og fjallar um gleði- og von-
artilfinninguna sem manneskjan
finnur á vorin. Mér finnst mikilvægt
að hafa í huga í lífinu að geta fundið
þessar tilfinningar í hjartanu þó það
sé ekki vor. Hugmyndin að titlinum á
plötunni vaknaði út frá þessu lagi,“
segir Hanna.
„Blue Note“-stemning
Á plötunni og á tónleikunum spila
með Hönnu tónlistarmennirnir
Maurizio Aliffi á gítar, Roberto
Piccolo á kontrabassa og Alfredo
Ferrario og Sigurður I. Snorrason á
klarínett. „Að hafa tvö klarínett í
sumum lögunum er eitthvað sem mig
hafði alltaf langað til að prófa, en það
er mjög óvenjulegt að heyra tvö klar-
ínett saman,“ segir Hanna. Þau verða
með aðra útgáfutónleika í Varenna á
Ítalíu seinna í mánuðinum og svo á
frönsku eyjunni Belle-Île-en-Mer í
ágúst.
Hanna er spennt fyrir tónleik-
unum í Iðnó. „Mér finnst mjög
skemmtilegt og passa vel við pró-
grammið að hægt er að raða upp
borðum og stólum og skapa afslapp-
aða klúbbastemningu. Fólk getur
sötrað vínglas meðan á tónleikunum
stendur. Ég vil skapa andrúmsloft í
líkingu við djassklúbbastemningu
fjórða áratugarins, einskonar „Blue
Note“-stemningu.“
Að lokum segist Hanna vonast til
þess að tónlistin nái til hjarta fólks
eins og hún nær til hennar með þess-
ari sérstöku nálgun.
Djasstónar og persónuleg raddbeiting
Hanna Friðriksdóttir gefur út nýja plötu og heldur útgáfutónleika Vill skapa afslappaða klúbba-
stemningu í Iðnó „Það sem heillar mig í lögunum á plötunni er einlægnin í textunum og melódíunum“
Ljósmynd/Walter Cargioli
Nálgun Hanna vill skapa afslappaða stemningu á tónleikunum og vonast til
þess að tónlistin nái til hjarta fólks eins og hún nær til hennar.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Við semjum allar eigin lög og út-
setjum sjálfar,“ segir Dagný Halla
Björnsdóttir, meðlimur hljóm-
sveitarinnar Sæbrár sem verður
með tónleika í Sólheimakirkju í dag,
laugardag, klukkan 14 í tilefni af
Menningarveislu Sólheima.
Hljómsveitin Sæbrá er skipuð
þremur ungum tónlistarkonum,
þeim Ariönnu Ferro og Önnulísu
Hermannsdóttur auk Dagnýjar
Höllu. Hún segir hljómsveitina hafa
verið stofnaða fyrir um fjórum ár-
um. „Við komum fyrst fram 17. júní
2015 í Hörpu í verkefni þar sem lögð
var áhersla á lög og ljóð íslenskra
kvenna og frumfluttum eitt lag eftir
mig,“ segir hún. Þær hafi svo komið
fram á ýmsum stöðum og tekið þátt í
Músíktilraunum á síðasta ári.
„Við erum búnar að vera í smá
hléi í vetur vegna þess að meðlimur
tríósins þurfti að stíga til hliðar
vegna annarra verkefna, en við feng-
um Önnulísu til liðs við okkur um
jólin. Tónleikarnir í Sólheimakirkju
verða þeir fyrstu með Önnulísu,“
segir Dagný Halla.
Áhersla á raddaðan söng
Eins og áður sagði semja með-
limir sveitarinnar öll lög sín sjálf, en
þær eru líka með heldur óhefð-
bundna hljóðfæraskipan. „Sjálf
stekk ég á milli píanós, gítars,
kontrabassa og trommu. Arianna
spilar á gítar og slagverk og Anna-
lísa á rafbassa. Við sjáum allar um
að syngja og leggjum áherslu á
raddaðan söng,“ útskýrir Dagný
Halla.
Á tónleikunum í Sólheimakirkju
verða þær með fjölbreytta dagskrá.
„Við ætlum að bjóða upp á blöndu af
efni sem við höfum áður flutt og að-
eins af nýju líka. Meðal annars frum-
flytjum við eitt lag eftir nýja með-
liminn, Önnulísu. Að sjálfsögðu
verður allt frumsamið.“
Um framhaldið segir Dagný Halla
ekkert vera neglt niður en hún segir
boltann vonandi fara að rúlla aftur
eftir tónleikana í Sólheimakirkju.
Einnig segir hún þær stefna á að
gefa út plötu sem allra fyrst.
Að lokum býður hún alla vel-
komna á tónleikana og vonast til
þess að sjá sem flesta.
Semja allar eigin lög
Þrjár „Við sjáum allar um að syngja og leggjum áherslu á raddaðan söng.“
Hljómsveitin
Sæbrá spilar
í Sólheimakirkju
Marta Tiesenga heldur fyrstu tón-
leika sína í Mengi í kvöld kl. 21.
Tiesenga er frá Chicago en býr og
starfar í Los Angeles, þar sem hún
stundar meistaranám í CalArts í
tilraunakenndum tónsmíðum und-
ir handleiðslu Michael Pisaro, Ey-
vind Kang, Söru Roberts og
Ulrich Krieger.
„Hún kemur reglulega fram í
LA og má þá nefna staði eins og
The Echo og The Geffen Contem-
porary á MOCA-safninu. Hún fæst
við margt annað en að semja, hún er sprenglærð á
saxófón og fæst við hreyfimyndagerð svo eitthvað sé
nefnt,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Tie-
senga vinni þvert á miðla. „Því fá spuni, myndlist, tón-
list og gjörningaformið að blandast saman í verkum
hennar.“
Unnið þvert á miðla í Mengi
Marta Tiesenga
Sophie-Veronique Cauchefer-
Choplin, organisti við St. Sulpice-
kirkjuna í París, heldur tvenna
tónleika á Alþjóðlegu orgelsumri í
Hallgrímskirkju um helgina. Í dag
kl. 12 leikur hún tónlist eftir
Vierne og Ibert auk þess að
spinna eigið efni, en á morgun,
sunnudag, kl. 17 leikur hún verk
eftir Vierne, Couperin, Bach, F.
Mendelssohn, Ravel, Grunenwald
og Widor.
Cauchefer-Choplin nam orgel-
leik við Þjóðartónlistarháskólann
í París. Hún þykir vera framúrskarandi spunaorganisti
og verðlaunuð sem slík. Frá 2008 hefur hún verið pró-
fessor í orgelleik við Konunglega tónlistarháskólann í
Lundúnum. Miðasala hefst við innganginn klukkustund
fyrir tónleika og einnig á midi.is.
Spunameistari á orgel
Sophie-Veronique
Cauchefer-Choplin