Morgunblaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017
✝ Einar ÓlafurValdimarsson
fæddist á Kirkju-
bæjarklaustri 3.
nóvember 1944.
Hann lést á heimili
sínu í Kópavogi 9.
júní 2017.
Foreldrar hans
voru Valdimar
Lárusson, f.1908,
d. 1985, póst- og
símstöðvarstjóri
og Guðrún Ólafsdóttir, f.1914,
d. 2010, húsfreyja. Systkini
Einars Ólafs eru Lárus, f.
1940, d. 2016, Elín Anna, f.
1950, Haukur, f. 1954, og
Trausti, f. 1956. Einar kvænt-
ist árið 1968 Jóhönnu Sigurð-
ardóttur frá Vík í Mýrdal, f.
30. júlí 1948. Börn þeirra eru:
1) Valdimar Steinar, f. 1969,
raf- og rafeindavirki í Hafn-
arfirði, kvæntur Láru Páls-
dóttur, f. 1969. Þeirra börn: a)
Dagný, f. 1993. b) Einar Ólaf-
ur, f. 1998. c) Birkir, f. 2004 2)
Steinunn Olga, f. 1972, líf-
eindafræðingur, búsett í Dan-
mörku, var gift Gunnari Háv-
arðarsyni, f. 1971. Þeirra
börn: a) Karen Brá, f. 1996. b)
issa stofnana og fyrirtækja í
héraði, m.a. í Hótel Bæ á
Kirkjubæjarklaustri um langt
árabil.
Einar sinnti störfum sínum
ætíð af mikilli kostgæfni. Hann
setti mark sitt á verslunarsögu
Vestur-Skaftfellinga um langt
árabil. Hann var farsæll stjórn-
andi í kaupfélaginu á Klaustri
og vinsæll af héraðsbúum.
Samvinnumaður var hann í
þess orðs bestu merkingu.
Einar var félagslyndur og
tók þátt í starfi ýmissa fé-
lagssamtaka. Á yngri árum var
hann efnilegur íþróttamaður
og fylgdist með íþróttum af
áhuga alla ævi. Söngmaður var
hann góður og tók nokkuð þátt
í kórastarfi. Hann hafði ánægju
af ferðalögum, mest innan-
lands. Hann var mikill fjöl-
skyldumaður og lét sér mjög
annt um foreldra sína og systk-
ini auk afkomenda sinna. Hann
var glaðvær og kunni vel að
gleðjast í góðra vina hópi.
Framan af ævi var Einar
heilsuhraustur en árið 2015
greindist hann með krabba-
mein. Hann gekkst þá undir
stóra aðgerð og náði góðri
heilsu sem varaði í u.þ.b. ár. Þá
tók meinið sig upp á nýjan leik
og var í hálft ár ljóst hvert
stefndi. Þessu tók hann af mik-
illi karlmennsku og æðruleysi.
Útför hans fór fram frá
Fossvogskirkju 23. júní 2017.
Bergrún Una, f.
2002
Einar Ólafur var
uppalinn á stóru
og umsvifamiklu
heimili á Kirkju-
bæjarklaustri.
Hann var þrjá vet-
ur í Héraðsskól-
anum í Skógum og
lauk þaðan gagn-
fræðaprófi vorið
1961. Eftir það
vann hann við ýmis störf á
Klaustri, m.a. á búinu þar, en
gerðist fljótlega fastur starfs-
maður við útibú Kaupfélags
Skaftfellinga á Kirkjubæjar-
klaustri. Eftir það urðu versl-
unarstörf hans ævistörf. Hann
varð útibússtjóri kaupfélagsins
á Kirkjubæjarklaustri árið
1971 og gegndi því starfi til
ársins 1997. Það ár fluttu þau
Jóhanna til Reykjavíkur. Þau
festu fljótlega kaup á versl-
uninni Þingholt við Grund-
arstíg og ráku hana til ársins
2008. Auk verslunarstarfa
sinnti Einar um tíma umboðs-
störfum á Kirkjubæjarklaustri
fyrir útibú Samvinnubankans í
Vík. Hann sat í stjórnum ým-
Á bjartri sumarnóttu þann 9.
júní síðastliðinn lést á heimili
sínu í Kópavogi elskulegur bróð-
ir okkar, Einar Ólafur. Eindi –
eins og við kölluðum hann oftast
– var annar í röð okkar systk-
inanna, fjórum árum yngri en
Lárus, sem lést á síðasta ári.
Foreldrar okkar kölluðu þá
„stóru strákana“ til aðgreining-
ar frá okkur yngri sem voru
kallaðir „litlu strákarnir“. Elín
Anna er þriðja í systkinaröðinni,
mitt á milli strákahópanna. Við
systkinin ólumst upp í fagurri
sveit og nutum mikils ástríkis
foreldra okkar. Æskuárunum
vörðum við bæði við leik og störf
eins og títt var þá um börn í
sveit.
Margar ljósmyndir eru til af
Einda ungum. Myndirnar sýna
fallegan og broshýran dreng, en
ljúft lundarfar hans kom
snemma í ljós og var hans að-
alsmerki alla tíð. Kjarval dvaldi
oft á Klaustri á þeim árum þeg-
ar Eindi var þar lítill drengur.
Drengurinn vakti athygli meist-
arans sem notaði hann sem fyr-
irmynd í nokkrum verka sinna.
Þegar Eindi var kominn á full-
orðinsár barst honum eitt sinn
bréf frá Kjarval sem innihélt
ljósmynd af einu verka hans þar
sem Eindi hafði verið látinn sitja
fyrir. Með bréfinu fylgdi dágóð
peningasumma sem Kjarval
sagði að væri helmingur af and-
virði þess sem hann fékk fyrir
myndina og að eðlilegt væri að
fyrirsætan fengi helminginn af
andvirði verksins fyrir sinn þátt
í því!
Þegar Einar hóf störf hjá
kaupfélaginu á Klaustri árið
1961 var það ólíkt þeirri verslun
sem við þekkjum í dag. Varan
var afgreidd yfir búðarborðið.
Vöruúrvalið var ótrúlega fjöl-
breytt. Seld var matvara, metra-
vara, skór, fatnaður, búsáhöld,
byggingarefni, fóðurbætir,
áburður og aðrar landbúnaðar-
vörur. Hægt var að panta eftir
litaspjöldum málningu, jafnvel
tískusnið eftir listum. Það gerist
líka fyrir jólin að kaupfélagið
flutti inn klingjandi kristal í tré-
kössum beint frá Tékklandi!
Innlánsdeild var starfrækt í
kaupfélaginu. Þar var einnig
umboðsskrifstofa tryggingar-
félags. Skaftárskála rak kaup-
félagið um langt árabil. Um ára-
bil var ekið með vörur úr
kaupfélaginu til viðskiptavin-
anna út um sveitir. Það var því
afar fjölbreytileg og mikil þjón-
usta sem kaupfélagið veitti.
Héldust verslunarhættir
óbreyttir til ársins 1976, en þá
flutti verslunin í nýtt og rúm-
gott húsnæði með nútímalegri
starfsaðstöðu.
Einar og Jóhanna gengu í
hjónaband árið 1968 og byrjuðu
búskap sinn í starfsmannaíbúð
kaupfélagsins á Klaustri.
Bjuggu þau í Kaupfélagshúsinu
nokkur ár. Árið 1978 fluttu þau í
eigið einbýlishús á Skerjavöllum
7 á Klaustri. Kom þá fljótlega
fram áhugi þeirra á garðrækt og
fegrun umhverfisins. Mikil
snyrtimennska og þokki hefur
einkennt heimili þeirra innan-
sem utandyra alla tíð. Samrýnd-
ari hjónum höfum við systkinin
ekki kynnst.
Efst er okkur systkinunum
núna í huga þakklæti til Einda.
Hann var okkur úrræðagóður
og traustur bróðir. Nú eru þeir
báðir horfnir okkur, „stóru
strákarnir“. Guð geymi ykkur
elsku bræður.
Jóhönnu, börnum, tengda-
dóttur, fyrrverandi tengdasyni
og barnabörnum óskum við vel-
farnaðar í framtíðinni. Minning-
in um ljúfan og góðan bróður lif-
ir.
Elín Anna, Haukur
og Trausti.
Einar Ólafur
Valdimarsson
✝ Anna ÍsfoldKolbeinsdóttir
fæddist á Sjúkra-
húsinu í Vest-
mannaeyjum 24.
nóvember 1955.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urlands í Vest-
mannaeyjum 21.
júní 2017.
Foreldrar Önnu
eru Kolbeinn Odd-
ur Sigurjónsson, f. 12.9. 1932, og
Sigríður Sigurðardóttir, f. 26.8.
1932, d. 2.5. 1992. Systkini Önnu
eru; Kolbrún Harpa, f. 10.2.
1954, Marý Ólöf, f. 24.11. 1955,
Guðrún Fjóla, f. 24.11. 1955,
Ingibjörg Sigríður, f. 4.12. 1957,
Elfa Sigurjóna, f. 17.5. 1963 og
Kolbeinn Freyr, f. 10.3. 1973.
Hálfbróðir Önnu samfeðra er
Einar Þór, f. 15.5. 1953.
Vinur og félagi Önnu er
Magnús Þór Magnússon, f. 5.1.
1961.
Dóttir Önnu og Halldórs Guð-
mundssonar er Kristín Harpa, f.
26.6. 1976. Hennar börn; Jón
Halldór, f. 15.8. 1997 og Lúcía Ís-
fold, f. 18.1. 2016. Sonur Önnu og
Hauks Haukssonar er Óskar Þór,
f. 7.8. 1978. Dóttir hans; Thelma
Rós, f. 2.3. 2005.
Anna Ísfold var
ein af þríburasystr-
um. Vakti þríbura-
fæðingin mikla at-
hygli á landsvísu
enda fátítt að þrí-
burar fæddust í
Vestmannaeyjum á
þessum tíma. Hún
lauk barnaskóla- og
gagnfræðiprófi og
níu ára gömul fór
hún fyrst að vinna fyrir sér þeg-
ar hún hóf störf hjá Hraðfrysti-
stöð VM, þar sem hún vann m.a.
við humarvinnslu. Hún vann ým-
iss konar fiskvinnslustörf fram á
fullorðinsár bæði í landi og á sjó.
Reri á Drífunni VE 76 og fór
seinna sem háseti í Smuguna á
Sindra VE 60. Starfaði á Vífils-
staðaspítala, í Úðafossi fata-
hreinsun og á Argentínu steik-
húsi. Síðustu árin starfaði hún á
Hraunbúðum, dvalar- og hjúkr-
unarheimili í Vestmannaeyjum,
fyrst í eldhúsinu en síðustu árin
við aðhlynningu áður en hún lét
af störfum vegna heilsubrest ár-
ið 2011.
Anna verður jarðsungin frá
Landakirkju í Vestmanneyjum í
dag, 1. júlí 2017, klukkan 14.
Systurdóttir mín Anna Ísfold
er fallin frá eftir erfið veikindi,
þessi yndislega og góða mann-
eskja.
Ég sé hana í anda í Drauma-
landinu með móður sinni sem féll
allt of snemma frá ásamt öðrum
ættingjum og vinum sem lifa með
okkur í minningunni.
Anna var þríburi og í sjö systk-
ina hópi. Ég stóð oftar en ekki
vaktina sem barnapían þeirra og
þá var oft líf og fjör og það sem
þríburarnir gátu stundum fundið
upp á var með eindæmum. Ég
minnist þess þegar ég var að mata
þær sem smábörn en mikið var
fyrir því haft og oft var mikill has-
ar ef ég var of lengi með skeiðina.
Nema Anna sem var svo lítil og ró-
leg. Hún var einungis fjórar merk-
ur þegar hún fæddist og þurfti að
dvelja marga mánuði á sjúkrahúsi
eftir fæðinguna áður en hún fékk
að fara heim.
Móðir Önnu var systir mín Sig-
ríður frá Vatnsdal. Hún var svo
einstaklega jafnlynd og mikill fé-
lagi barna sinna alla tíð sama hvað
lífið bauð upp á.
Marý reyndist Önnu systur
sinni kletturinn í veikindum henn-
ar og var vakin og sofin yfir henni.
Magnús vinur Önnu reyndist
henni einnig mjög vel. Börnin
hennar og barnabörn syrgja ynd-
islega móður og ömmu.
Líf Önnu var ekki alltaf dans á
rósum. En Anna sýndi mikið
æðruleysi þegar vissan um að
ferðin til Draumalandsins væri
fram undan. Hún huggaði okkur,
róleg og yfirveguð. Hef ég misst
margan en aldrei upplifað slíkt áð-
ur. Þetta lýsir skapgerð hennar
vel.
Högni langafi þinn orti þetta
ljóð til langömmu þinnar þegar
hún lést, það á svo sannarlega við
um þig Anna mín.
Líður sviflétt á ljósvakans öldum
ljóshraða fljótar um geim.
Dvelur í fagnað hjá drottins útvöldum
dýrðleg og fögur í sumarlandsheim.
Hulda Sigurðardóttir.
Anna Ísfold
Kolbeinsdóttir
Elsku Ragnar
Emil.
Það er erfitt að
trúa því að þú munir aldrei aft-
ur vakna, elsku Ragnar Emil.
Mikið ofboðslega sakna ég þín.
Ég man svo vel þegar ég
hitti þig í fyrsta sinn. Þú varst
kominn með nýjan leik í iPad-
inn og máttir varla vera að því
að heilsa mér. Alveg ekta
þriggja ára strákur. Í tölvu-
leiknum var svín í baðkari sem
þú áttir að þrífa en hægt var að
láta baðkarið hvolfast ef ýtt var
oft á það. Það fannst þér alveg
Ragnar Emil
Hallgrímsson
✝ Ragnar EmilHallgrímsson
fæddist á Landspít-
alanum 25. júní
2007. Hann lést 25.
júní 2017.
Ragnar var jarð-
sunginn 30. júní
2017.
ofboðslega fyndið
og því gerðir þú
það aftur og aftur.
Þarna strax vissi
ég að við ættum
skap saman. Húm-
orinn þinn var
dásamlegur. Við
hlógum oft saman
og þá sérstaklega
að klaufaskap ann-
arra.
Það sem mér
þótti skemmtilegast að gera
saman með þér var að hlusta á
tónlist og syngja. Þú varst
mjög lagviss, söngst svo fallega
og hafðir miklar og sterkar
skoðanir á lagavalinu. Raunar
hafðir þú miklar og sterkar
skoðanir á flestu sem við kom
lífi þínu. Þú varst góður í því að
kenna aðstoðarkonum þínum á
lífið þitt og gafst aldrei upp
þótt það tæki stundum langan
tíma að finna hvaða lag það
væri sem þig langaði að hlusta
á.
Þú sættir þig ekki við hvaða
lag sem er ef þú hafðir tiltekið
lag í huga. Að fylgjast með
þessari staðfestu þinni gaf mér
kjark til þess að gera kröfur í
mínu eigin lífi og sætta mig
aldrei við eitthvað sem ég ekki
vil. Takk fyrir það, elsku Raggi.
Þú og fjölskyldan þín eruð
miklir brautryðjendur og ég
veit að barátta ykkar mun hafa
áhrif á líf fjölda fatlaðs fólks
um ókomin ár. En baráttan tók
oft á og það er ósanngjarnt að
þú hafir þurft að berjast fyrir
sjálfsögðum réttindum. Það
versta er þó að þú og foreldrar
þínir hafið þurft að berjast fyr-
ir tilverurétti þínum alla ævi
þína.
Lífið hér á jörðinni verður
ekki samt eftir fráfall þitt,
elsku Raggi. Sorgin er óbæri-
leg en minningarnar og þakk-
lætið ylja. Takk fyrir allt það
sem þú gafst og kenndir, elsku
Ragnar Emil.
Embla Guðrúnard.
Ágústsdóttir.
Elsku fallegi og ljúfi 10 ára
strákurinn okkar.
Þau spor sem þú markaðir í
líf okkar eru djúpt grafin og
annan eins demant og þig er
erfitt að finna. Þú sýndir okkur
upp á hvern einasta dag hvað
ákveðni, lífsþróttur og gleði
merkir og þá visku höfum við í
farteskinu það sem eftir er.
Við erum endalaust þakklát-
ar fyrir að hafa kynnst þér og
hafa fengið að eiga þennan tíma
saman sem góðir vinir og átt þú
stóran þátt í því hvernig mann-
eskjur við erum í dag.
Mundu svo að við munum
alltaf passa þig.
Aldís, Halli og fjölskylda, við
vottum ykkur okkar dýpstu
samúð.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Þínar aðstoðarkonur og vin-
konur,
Maríanna og
Ella Karen.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Innilegar þakkir fyrir hlýhug, blóm og
kveðjur við andlát og útför elskulegs föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
FRIÐRIKS J. JÓNSSONAR
frá Kópaskeri,
til heimilis að Lindarsíðu 4, Akureyri.
Kærar þakkir, starfsfólk SAk og Öldrunarþjónustu Akureyrar,
fyrir mannlega og faglega umönnun.
Árni V. Friðriksson Gerður Jónsdóttir
Ólafur Friðriksson Freyja Tryggvadóttir
Kristín Helga Friðriksdóttir Bjarki Hrafn Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og
langafa,
MAGNÚSAR SIGURÐSSONAR,
Víðivöllum 6,
Selfossi.
Aðalheiður Björg Birgisdóttir
Þorsteinn Magnússon Þóra S. Jónsdóttir
Íris Björk Magnúsdóttir Jón Ari Guðbjartsson
Ólöf Ósk Magnúsdóttir Steindór Guðmundsson
Helga Skúla Magnúsdóttir Arnar Þór Sveinsson
Ólöf Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓHANNA GUÐJÓNSDÓTTIR
sjúkraliði,
frá Reykjum, Vestmannaeyjum,
Strikinu 8, Garðabæ,
lést mánudaginn 26. júní.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. júlí
klukkan 13.
Vigdís Victorsdóttir Sigurður Þorvarðarson
Lilja Dóra Victorsdóttir Halldór V. Frímannsson
Bergþóra Victorsdóttir Ævar Valgeirsson
Guðjón Þór Victorsson Aðalbjörg Benediktsdóttir
barnabörn og langömmubörn