Morgunblaðið - 01.07.2017, Side 21

Morgunblaðið - 01.07.2017, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017 Arnarhóll Saxófónleikari lék af fingrum fram á hljóðfæri sitt í skjóli styttunnar af landnámsmanninum Ingólfi Arnarsyni. Tónarnir flæddu niður Arnarhólinn og glöddu gesti miðborgarinnar. Ófeigur Reykjavíkurflug- völlur er nauðsynlegur og fastur hlekkur í sjúkraflutningum hér á landi. Það er ber- sýnilegt við lestur nýrrar skýrslu Viðars Magnússonar, yf- irlæknis og formanns fagráðs sjúkraflutn- inga. Þar færir hann skýr rök fyrir því, að óhjákvæmilegt sé að skipta landinu í tvö svæði, þannig að minni og létt- ari þyrlur séu til taks á Suður- og Vesturlandi. Af landfræðilegum og veðurfarslegum ástæðum annist flugvélar og eftir atvikum björgunarþyrlur sjúkraflutninga á Vestfjörðum, Norður- og Austur- landi. Í skýrslunni er bent á, að í vestrænum löndum eru þyrlur oft notaðar til sjúkraflutninga ef það eru meira en 50 km á sjúkrahús en flugvélar ef um er að ræða meira en 250 km fjarlægð (ca. einnar klst. flug með þyrlu). Áhersla er lögð á, að sjúkraþyrlur og flug- vélar geti flutt með sér teymi sem getur hafið bráðameðferð strax á vettvangi. Augljóst er, að þessi skipting landsins í tvö svæði fellur um sjálfa sig, ef sjúkraflug fyrir fjarlægustu byggðir landsins ætti að fara um Keflavíkurflugvöll og þaðan með þyrlu eða sjúkrabíl til Reykjavíkur. Við það tapaðist of mikill tími. Svo vill til, að góður vinur minn varð fyrir alvarlegu slysi. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og mátti ekki tæpara standa, – hann hefði aldrei lifað af akstur frá Keflavík og þær tafir sem slíkri lykkju fylgdu. – „Þá væri ég ekki hér,“ sagði hann þegar við hitt- umst. Það er athyglisvert hversu mikil áhersla er á það lögð í skýrslunni að stytta tímann sem það tekur að koma sjúklingi á Landspítalann í sérhæfða meðferð. Fyrsti klukku- tíminn getur ráðið úrslitum um bata, – og hver mínúta skiptir auð- vitað máli. Kransæðastífla, heila- blóðfall, alvarlegar sýkingar og fjöl- áverkar eru sérstaklega nefnd til sögunnar. Og svo fleygir læknavís- indunum fram. Þannig eru nú að opnast möguleikar til að sækja blóðtappa í heilann sem enn þreng- ir tímarammann. Þegar fréttir bárust af því, að Hvassahraun væri vatnsvernd- arsvæði hélt ég satt að segja að hugmyndir Rögnu-nefndarinnar um flugvöll þar væru úr sögunni. En það er síður en svo. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er búin „að kynna sér málin ofan í kjölinn“. Þvert ofan í það sem hún áður sagði segir hún núna að framtíð innanlandsflugsins sé ekki í Vatns- mýrinni. Og bætir því við, að það sé alls ekkert vandræðalegt fyrir sig að skipta um skoðun. Ég fór að velta þessum orðum fyrir mér og það er rétt sem hún segir: Hún stendur ekki fyrir það sem hún stóð fyrir áður. Hún er önnur póli- tísk manneskja. Góður vinur minn, sem hefur dvalist langdvölum erlendis og er alltaf á ferð og flugi milli heimsálfa, segir um Reykjavíkurflugvöll að hann sé aðaljárnbrautarstöð lands- ins, – öll lönd þurfi að hafa sína „central station“. Glöggt er gests- augað. Þingmaður fyrir norðaust- urhornið í áratugi þekki ég þá þýð- ingu sem völlurinn hefur fyrir þau byggðarlög sem fjærst eru Reykja- vík. Fjölmargir þurfa að skjótast suður, reka erindi sín og komast heim aftur helst um kvöldið. Í flug- stöðinni í Reykjavík hittist fólk af öllu landinu, rifjar upp gömul kynni og treystir vináttuböndin. Lengi hefur það beðið eftir nýrri flugstöð og nú loksins er von um að það geti orðið. En auðvitað heyrast úrtölu- raddir. Hæst lætur í borgarstjór- anum: Flugstöðin verður þá að vera færanleg, – væntanlega á hjólum! Og undir þetta taka ráðherrar úr Viðreisn og Bjartri framtíð, – það er ljóti samsöngurinn! Í skýrslu Viðars Magnússonar er lögð áhersla á, að með vaxandi sér- hæfingu verði sjúkraflutningar lyk- illinn að því, að „allir landsmenn eigi kost á fullkomnustu heilbrigð- isþjónustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita“. Mikil vinna hefur verið lögð í skýrsluna. Það er rök- rétt framhald af henni að heilbrigð- isráðherra hafi forgöngu um að mörkuð verði stefna í sjúkraflutn- ingum, – hvernig þeir skuli byggðir upp og hvernig þeir falli inn í heil- brigðiskerfið í heild sinni. Þá mun koma í ljós, að Reykjavíkurflug- völlur verður hornsteinninn í þeirri stefnumörkun. Undan því verður ekki vikist. Eftir Halldór Blöndal »Hæst lætur í borgar- stjóranum: Flug- stöðin verður þá að vera færanleg, – væntanlega á hjólum! Halldór Blöndal Höfundur er fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis. Reykjavíkurflugvöllur verður áfram miðstöð sjúkraflutninga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.