Morgunblaðið - 01.07.2017, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017
Jóhann Hjartarson er í efstasæti eftir sex umferðir íopna flokki Norðurlanda-mótsins í Växjö í Svíþjóð
ásamt Allan Stig Rasmussen frá
Danmörku og Svíunum Nils
Grandelius og Jonathan Wester-
berg. Þeir hafa hlotið fimm vinn-
inga. Jóhann gerði jafntefli við
stigahæsta keppanda mótsins, Nils
Grandelius, í 6. umferð.
Íslandsmeistarinn Guðmundur
Kjartansson vann fyrstu þrjár
skákirnar, náði svo jafntefli úr tap-
aðri stöðu í skák sinni við Jóhann í
4. umferð en tapaði skákum sínum í
fimmtu og sjöttu umferð. Kepp-
endur eru 73 talsins og verða tefld-
ar níu umferðir.
Í flokki keppenda 50 ára og aldri
er Áskell Örn Kárason í 3.-5. sæti
með 3 ½ vinning úr fimm skákum
og Lenka Ptacnikova er fulltrúi
okkar í kvennaflokknum og hefur
hlotið 2 vinninga úr þrem fyrstu
skákum sínum.
Möguleikar Jóhanns á loka-
sprettinum hljóta að teljast góðir
en hann hefur teflt af miklu öryggi
og allir sigrar hans sannfærandi. Í
eftirfarandi skák sem tefld var í 2.
umferð stóð hann frammi fyrir ör-
væntingarfullri gagnsókn og hratt
atlögunni á fumlausan hátt:
NM 2017; 2. umferð:
Jóhann Hjartarson – Tom Ryd-
ström
Slavnesk vörn
1. c4 c6 2. Rf3 d5 3. e3 Rf6 4. b3
Bf5 5. Bb2 e6 6. Be2 Rbd7 7. Rh4
Bg6 8. O-O Bd6 9. g3 De7 10. Rc3
e5?! 11. cxd5 Rxd5 12. Rxd5 cxd5
13. f4!
Snarplega teflt eftir hinn vafa-
sama 12. leik svarts.
13. … f6 14. Bb5
Enn betra var 14. Bh5! með hug-
myndinni 14. … Bxh5 15. Dxh5+
Df7 16. Rf5! og svartur tapar peði,
t.d. 16. … Dxh5 17. Rxg7+ og 18.
Rxh5.
14. … O-O-O 15. Dg4 Kb8 16.
Rxg6 hxg6 17. Dxg6
Öruggara var 17. Bxd7.
17. … exf4 18. exf4 Bc5+?!
Í eina skiptið í skákinni gat svart-
ur náð tafljöfnun og jafnvel gott
betur, best var 18. … Rc5!
19. Kg2 De6 20. h4 Hh6 21. Dd3
a6 22. De2 Dd6 23. Bxd7 Dxd7 24.
Hfe1 g5?!
Reynir að opna taflið en Jóhann
hirðir peðið óhræddur.
25. fxg5 fxg5 26. De5+ Ka8 27.
Dxg5 Hf8 28. Hf1 Hxf1 29. Hxf1
He6 30. Dg4 De8 31. Kh3 Hg6 32.
Df3 Bd6 33. g4 He6 34. Dxd5 Bb8
35. Hf2 He1 36. Hf7 Dc8 37. Hf6
Bc7 38. Df3 He8 39. Hxa6+
Það er eftirtektarvert að hvítur
var ekkert að flýta sér að þessu.
Hótunin er sterkari en leikurinn.
39. … Kb8 40. Hh6 Dd7 41. Bc3
Ha7 42. Hf6 He7 43. Df2 b6 44. Df3
De8 45. Hf8 He2
Hótar máti á h2. Hvað er nú til
ráða?
46. Be5!
Línurof, 46. … Dxe5 er svarað
með 47. Ha8 mát og eftir 46. …
Bxe5 kemur 47. Hf7+ o.s.frv.
Svartur gafst upp.
Magnús tapaði þrem í röð
en vann samt í París
Magnús Carlsen tapaði þrem
skákum í röð á lokaspretti fyrsta
móts syrpunnar Grand chess tour í
París um síðustu helgi. Mótið er
byggt upp með atskákum og hrað-
skákum. Við þessar hrakfarir
komst heimamaðurinn Vachier-
Lagrave í efsta sætið og hafði ½
vinnings forskot fyrir lokaumferð-
ina. Hann varð að sætta sig við jafn-
tefli en Magnús vann og þeir þurftu
því að tefla tvær hraðskákir til að
útkljá baráttuna um efsta sætið. Og
eins og áður hafði Magnús betur,
1½ : ½.
Á miðvikudaginn hófst svo í
Leuven í Belgíu annað bikarmótið
og eftir sex fyrstu atskákirnar var
Wesley So efstur með 10 stig en
Magnús og Vachier-Lagrave fylgdu
honum fast á eftir með 8 stig hvor. Í
dag og á morgun tefla keppendur
samtals 18 hraðskákir, 5 3 Bron-
stein. Gott er að fylgjast með bar-
áttunni á vefnum Chess24.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Jóhann í hópi efstu
manna á Norður-
landamótinu Því er ekki að neitaað marga rak í roga-stans þegar birtar
voru ákvarðanir kjar-
aráðs um hækkanir
launa hjá alþingis-
mönnum, ráðherrum,
hæstaréttardómurum
og öðrum vel laun-
uðum starfsmönnum
hins opinbera. Skýr-
ingarnar á þessum
launahækkunum eru rökstuddar á
þeim forsendum að hrunið hafi
dregið úr launum þessa fólks og nú
sé verið að bæta því launatapið.
Gott og vel. Ef ég man rétt
neyddust stjórnvöld til að draga úr
greiðslum til eldri borgara þegar
hrunið skall á. En eldri borgarar og
kjör þeirra heyra ekki undir kjara-
ráð og tilraunir til að hækka grunn-
lífeyri og kjarabætur hafa hvorki
fengið undirtektir né stuðning.
Grunnlífeyrir hefur meira að segja
verið felldur niður hjá fjölmörgum.
Kjör eldri borgara, sem búa við
tryggingabæturnar einar, hafa
versnað ef eitthvað er og enn eru
hámarksgreiðslur tvö hundruð og
áttatíu þúsund krónur á mánuði.
Fyrir skatt. Á sama tíma er staðan
núna sú að þeir þjóðfélagsþegnar
sem hafa hæstu launin og heyra
undir kjararáð fá
hundruð þúsunda
króna hækkanir á mán-
uði sem eru auk þess
afturvirkar um marga
mánuði. Afgangurinn
er svo sá að allir hinir
eru settir í fjár-
málaáætlanir og lok,
lok og læs. Einhvers
staðar las ég: jú, við er-
um orðin gömul en ekki
dauð. Elsta kynslóðin í
þessu landi er ekki
ómagi upp á náð hins
opinbera. Eldri borgarar eru enn á
lífi og þeim verður ekki kennt um
neitt hrun og þeir eiga þann rétt
eins og hver annar að njóta þess
tryggingakerfis sem sett var á lagg-
irnar í þeim tilgangi að hjálpa fólki
sem aldurs vegna dettur út af launa-
listum og situr margt hvert í fá-
tæktargildrum sem kerfið býður
upp á. Það ástand er ekki greypt í
stein, það er mannanna verk, það er
sýnishorn þeirra gilda sem stjórn-
málin, Alþingi og ríkisstjórnir
hverju sinni bjóða upp á. Því miður.
Í raun og veru leyfi ég mér að
segja að ákvarðanir kjararáðs og
stjórnvalda eru til skammar í sam-
félagi, sem kennir sig við jafnræði,
frelsi og samkennd. Hinum velefn-
uðu er hyglað en eldra fólk er í sömu
stöðu og fyrr. Mismunurinn, bilið
milli ríkra og fátækra, lengist og er
æpandi staðfesta þeirra sem fara
með völdin og vanvirða þá kynslóð
sem hefur lagt sitt af mörkum til
samfélagsins, alla sína ævi. Það er
sorgleg stjórnsýsla og ekki bjóð-
andi.
Eldri borgarar njóta ekki verk-
fallsréttinda. Eldri borgarar eru
ekki betlarar, eldri borgarar eru
máttarstólpar, feður og mæður,
ömmur og afar, fólkið sem hvorki
vælir né kvartar og á sínar stundir í
sögu, virðingu og framförum. Við
erum orðin gömul en ekki dauð. Við
eigum ekki að vera hornrekur, við
erum ekki að gera annað en að miðla
til samfélagsins reynslu okkar og
framlagi. Við erum orðin gömul. En
við erum ekki dauð. Bara svo það sé
sagt.
„Við erum gömul en ekki dauð“
Eftir Ellert B.
Schram »Kjör eldri borgara,
sem búa við trygg-
ingabæturnar einar,
hafa versnað ef eitthvað
er og enn eru hámarks-
greiðslur tvö hundruð
og áttatíu þúsund krón-
ur á mánuði.
Ellert B Schram
Höfundur er formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni.
Hinn 16. júní sl. lést
Helmut Kohl, kanslari
Vestur-Þýskalands
1982-1990 og samein-
aðs Þýskalands 1990-
1998. Ég varð þeirrar
gæfu aðnjótandi að
kynnast Kohl, en leiðir
okkar lágu fyrst sam-
an í ferð ungra sjálf-
stæðismanna til
Þýskalands sumarið
1955. Þannig vildi til
að vorið 1954, er ég lauk kandídats-
prófi í viðskiptafræði frá Háskóla
Íslands, bauðst mér námsdvöl við
Christian-Albrechts-háskólann í
Kiel fyrir forgöngu Alexanders Jó-
hannessonar háskólarektors og
mikils Þýskalandsvinar.
Í Kiel kynntist ég Gerhard Stol-
tenberg, þáverandi formanni ung-
liðahreyfingar Kristilegra demó-
krata, Junge Union. Stoltenberg
kom því til leiðar að
Konrad Adenauer
kanslari bauð 20 ung-
um sjálfstæðismönnum
til Þýskalands til að
kynnast endurreisn
landsins. Sú ferð var
okkur öllum ógleym-
anleg og þar hitti ég
fyrst Helmut Kohl,
sem fjórum árum síðar
varð yngsti fulltrúinn
á þingi Rhineland-
Pfalz og síðar for-
sætisráðherra þar.
Þegar Kohl tók við
kanslaraembættinu 1982 gerðist
Stoltenberg fjármálaráðherra í rík-
isstjórn hans og varð loks varnar-
málaráðherra.
Ég hélt til Kiel til að læra fjár-
málafræði og gerð þjóðhagsreikn-
inga, en lærði í reynd meira um
stjórnmál í ríki þar sem gríðarleg
uppbygging átti sér stað á öllum
sviðum þjóðlífsins. Það var ólýsan-
legt að verða vitni að þeim mikla
krafti og áræðni sem bjó í ungum
Þjóðverjum á þessum tíma og þar
ríkti sannur lýðræðisandi. Gæfa
Þjóðverja var að eiga mikilhæfa
unga forystumenn, eins og þá Kohl
og Stoltenberg.
Alla mína starfsævi átti ég því
láni að fagna að eiga mikil sam-
skipti við Þjóðverja, austan og vest-
an járntjalds, bæði í starfi mínu
fyrir Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna og einnig sem formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur
og fulltrúi ASÍ í miðstjórn Alþýðu-
sambands Vestur-Evrópu. Sérlega
minnisstæðar eru mér samninga-
viðræðurnar í deilunni um 200
mílna fiskveiðilögsögu, en þar
sýndu Þjóðverjar mun meiri samn-
ingsvilja en Bretar.
Á þeim tíma og á næstu árum
var ég tíður gestur í Bonn og
kynntist mörgum þýskum þing-
mönnum. Þeirra á meðal var Hel-
mut Kohl, sem kjörinn hafði verið
formaður Kristilegra demókrata ár-
ið 1973. Kohl var þreklegur að vall-
arsýn og svipur hans og framganga
bar merki skapfestu og stillingar.
Hann var hlýr maður og bar góðan
hug til Íslands.
Með Helmut Kohl er genginn
einn af fremstu forystumönnum
Evrópu á liðinni öld. Að leiðar-
lokum þakka ég hans vegferð.
Eftir Guðmund H.
Garðarsson
Guðmundur H.
Garðarsson
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaður.
Helmut Kohl
Reuters
Forystumenn Francois Mitterrand, fyrrverandi Frakklandsforseti, og Hel-
mut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, um það leyti sem Kohl barðist
fyrir umboði kjósenda til að sitja fjórða kjörtímabilið.
Landsvirkjun
áformar að virkja
neðri hluta Þjórsár,
breyta glæsilegu
straumhörðu fljóti í
uppistöðulón og um
leið útrýma laxastofni
og urriðastofni fljóts-
ins. Virkjunin er
óafturkræf aðgerð og
í þeim eina tilgangi
að framleiða orku
fyrir eiturmengandi
verksmiðju í eigu erlendra auð-
hringja. Landsvirkjun hefur haft
frjálsan aðgang að auðlindum okk-
ar síðastlin fimmtíu ár án endur-
gjalds. Þrátt fyrir þetta hefur
Landsvirkjun litlum sem engum
arði skilað til þjóðarinnar þar sem
orkan hefur verið afhent erlendum
auðhringjum á verði langt undir
kostnaði. Nú er mál að linni,
stöðvum Landsvirkjun í áformum
um Hvammsvirkjun í Þjórsá. Al-
þingi hefur samþykkt Hvamms-
virkjun eftir flýtimeðferð hjá
rammaáætlun. Ég skora á rík-
isstjórn Íslands og Alþingi að aft-
urkalla þetta gerræðisverk. Lög
um rammaáætlun eru meingölluð
og þeim þarf að breyta. Stöðvum
helför stjórnmálamanna og orku-
fyrirtækja gegn náttúru og lífríki
Íslands.
Stöðvum helför Landsvirkjunar
gegn náttúru og lífríki Íslands
Eftir Ólaf Kr.
Sigurðsson
»Nú er mál að linni,
stöðvum Lands-
virkjun í áformum um
Hvammsvirkjun í
Þjórsá.
Ólafur Kristinn
Sigurðsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
ok@non.is
Þjórsá Til stendur að virkja neðri hluta Þjórsár.