Morgunblaðið - 01.07.2017, Side 24
24 MESSUR Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2017
Birgir var ljúfur
og skemmtilegur
maður sem var alltaf
tilbúinn að hjálpa
öðrum. Ef einhverj-
um leiddist var ekki
langt að bíða eftir að Birgir deildi
hugleiðingum sínum með fólki og
voru þær mjög fyndnar og há-
fleygar á stundum. Hann skilur
eftir sig tóm sem verður ekki fyllt
og sorgin verður mikil.
Hugur okkar er hjá fjölskyldu
og ástvinum hans, og við sam-
hryggjumst þeim innilega. Við
grátum þennan ljúfa dreng en
skulum líka muna þær fjölmörgu
góðu stundir sem við áttum með
honum Bigga okkar og brosa og
hlæja honum til heiðurs.
Upp, upp mín sál og allt mitt geð,
upp mitt hjarta og rómur með,
Birgir Árnason
✝ Birgir fæddist22. mars 1979.
Hann lést 20. júní
2017.
Útför Birgis fór
fram 30. júní 2017.
hugur og tunga hjálpi
til.
Herrans pínu ég minn-
ast vil.
Ljúfan Jesú til lausnar
mér
langaði víst að deyja
hér.
Mig skyldi og lysta að
minnast þess
mínum Drottni til
þakklætis.
Innra mig loksins angrið sker,
æ, hvað er lítil rækt í mér,
Jesús er kvalinn í minn stað,
of sjaldan hef ég minnst á það.
Ó, Jesús, gef þinn anda mér,
allt svo verði til dýrðar þér
upp teiknað, sungið, sagt og téð,
síðan þess aðrir njóti með.
(Hallgrímur Pétursson)
Minning um góðan dreng mun
lifa í hjörtum okkar.
Fyrir hönd bekkjarfélaga
Bigga í Hringsjá,
Kristinn Ríkharðsson.
Þau systkin lífið
og dauðinn eru
óaðskiljanleg. Með
skáldaleyfi mætti
segja að dauðinn
sé stóri bróðir sem setur lífinu
lífsreglurnar. Gulli var stóri
bróðir minn, var átta árum
eldri en ég og byrjaði ég
snemma að líta upp til hans og
hann að leggja mér lífsreglurn-
ar.
Við ólumst upp í Vogunum
og gengum við systkinin í
Vogaskóla. Ein minning sem ég
á um Gulla þegar hann kemur
heim úr skólanum klæddur í
gráan frakka er sem greypt í
huga mér.
Gulli kemur inn og kastar
töskunni á gólfið og ég sé að
hann heldur á sígarettu. Hann
hafði gleymt að losa sig við
hana áður en hann kom inn og
man ég að þetta var ekki litið
hýru auga hjá mömmu. Hann
fullorðnaðist fljótt og kannski
of snemma. Gulli kenndi mér
ýmislegt um lífið og flest af því
var ekki tímabært fyrir mig að
læra.
Hann kenndi mér að heilsa
með handabandi og fannst að
það skyldi gert með mikilli
festu til að sýna að hér var
enginn aukvisi á ferð. Seinna
lét ég reyna á handabandið í
afmælisveislu og fórnarlambið
kveinkaði sér mér til ánægju og
ég tjáði viðkomandi að stóri
bróðir minn hefði kennt mér að
heilsa eins og alvöru menn
gera. Gulli var eins og traust
og gott handtak, fastur fyrir og
orðheldinn.
Í gegnum árin þegar við hitt-
umst var handtakið alltaf okkar
tjáningarleið, horfa í augun og
takast í hendur, það þurfti eng-
in orð.
Pabbi var skátaforingi í þá
tíð og munstraði mig í ylf-
ingana. Skátafélagið Skjöldung-
ar hafði umráð yfir skála við
Hafravatn.
Þangað fórum við ylfingarnir
til helgardvalar eitt sinn sem
oftar og yfir okkur vöktu tveir
yngri skátar. Eins og siður er á
kvöldvöku er sungið og farið í
Guðlaugur Tryggvi
Óskarsson
✝ Guðlaugurfæddist 11. júní
1952. Hann lést 11.
júní 2017.
Útför Guðlaugs
fór fram 20. júní
2017.
leiki. Í einu laginu
var sungið af mikl-
um móð og ég
reyni að fylgja lag-
línunni. „Gulli
syngdu með“ gell-
ur þá í öðrum
ungskátanum.
Þarna er þá Gulli
kominn upp í sveit
að elta Tobbu sína
sem var að vaka
yfir okkur ungvið-
inu. Ég heyrði að hann tók
undir vita laglaus eins og litli
bróðir en hvað gera menn ekki
fyrir æskuástina.
Gulli var með meðfædda
ástríðu fyrir bílum sem hann
fékk líklega frá pabba og ég
var engu skárri og fékk oft að
sitja í hinum ýmsu köggum því
hann var alltaf að skipta um
bíla.
Ekki batnaði mín della þegar
Balli bróðir fékk prófið og fleiri
bílar bættust við. Það vekur
enga furðu að Gulli skyldi finna
sér sitt ævistarf tengt bílum og
stofnaði hann G.T. Óskarsson
varahlutaverslun sem hann rak
til dánardags ásamt æskuást-
inni sinni henni Tobbu. Þau
byrjuðu í bílskúrnum heima en
fluttu seinna inn á Vesturvör í
Kópavogi.
Ég vann að innréttingu á
húsnæðinu fyrir Gulla og þar
var ekkert verið að bruðla með
hlutina. Allar innréttingar
smíðaðar á staðnum en vandað
til verks.
Gulli gekk mikið sér til
heilsubótar og þá oftast áður
en hann fór til vinnu á morgn-
ana. Ég og Balli bróðir æfðum
fótbolta og þóttumst í sæmi-
legu formi.
Að ganga spottakorn með
Gulla var ekki á allra færi því
hraðari göngumanni hef ég
ekki kynnst. Ef maður spurði
hvort eitthvað lægi á sagði
hann einfaldlega „hvað geturðu
ekki labbað?“ og glotti. Gulli
flíkaði ekki tilfinningum sínum
en þeir sem þekktu hann vissu
að hann var hið mesta gæða-
blóð sem öllum vildi vel. Ég
kem til með að sakna þess að
geta ekki heimsótt hann í versl-
unina, annaðhvort til að fá
kaffibolla eða til að leita ráða.
Að lokum vil ég votta samúð
mína þeim Tobbu, Guðnýju og
Dýrleifu og börnum þeirra.
Þinn bróðir
Óskar.
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík |
Söfnuðurinn hittist þennan laugardag
í Haukadalskirkju. Ræðumaður er Eric
Guðmundsson.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmanna-
eyjum | Brekastíg 17 í dag, laug-
ardag. Samvera kl. 12.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi |
Í dag, laugardag er samkoma í Hauka-
dalskirkju. Ræðumaður: Eric Guð-
mundsson.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnar-
firði | Hólshrauni 3, guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður Stefán Rafn Stef-
ánsson. Biblíufræðsla kl. 11.50.
Barna- og unglingastarf. Umræðuhóp-
ur á ensku. Námskeið kl. 14-15 um
aðferðir við að rannsaka Biblíuna.
Kennt á ensku en hægt að fá þýðingu.
Barnastarf meðan á námskeiði stend-
ur.
Arnarbæli í Ölfusi | Útimessa í
Arnarbæli í Ölfusi kl. 14. Kirkjukór
Hveragerðis- og Kotstrandarsókna
leiðir söng undir stjórn Hannesar
Baldurssonar. Jón Ragnarsson
sóknarprestur messar. Kirkjukaffi í
boði Kotstrandarsóknar og kirkjukórs-
ins.
Arnarbæli er við ósa Ölfusár, ekið er
frá Þjóðvegi nr. 1 u.þ.b. 1 km austan
við Kotstrandarkirkju um Arnarbælis-
veg nr. 375.
ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgi-
stund og gæludýrablessun kl. 11 þar
sem gæludýraeigendur eru sérstak-
lega boðnir velkomnir ásamt dýrum
sínum. Dýrin eru blessuð og beðið fyrir
þeim og samfylgd dýra og manna
þökkuð. Sr. Petrína Mjöll Jóhannes-
dóttir þjónar. Félagar úr kór Árbæjar-
kirkju syngja. Organisti er Krisztina
Kalló Szklenár. Emma Eyþórsdóttir og
Jón Heiðar Þorkelsson syngja og leika
á hljóðfæri. Molasopi og samfélag eft-
ir helgistundina.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sigurður
Jónsson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari. Forsöngvari Ragn-
heiður Sara Grímsdóttir, orgelleikari
Magnús Ragnarsson.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa með nýj-
um sálmum klukkan 11. Kór Bústaða-
kirkju ásamt kantor Jónasi Þóri.
Messuþjónar aðstoða. Heitt á könn-
unni eftir messu. Prestur Pálmi Matt-
híasson.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Kári Þormar leikur á orgelið
og dómkórinn syngur. Kórinn New
Amsterdam Singers frá New York
syngur í kirkjunni kl. 20. Stjórnandi er
Clara Longstreth. Aðgangur ókeypis.
GARÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og
þjónar fyrir altari. Jóhann Baldvinsson
organisti leiðir safnaðarsöng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl.
11. Séra Grétar Halldór Gunnarsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Graf-
arvogskirkju syngur og organisti er Há-
kon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10 og bænastund kl. 10.15.
Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot
til ABC-barnahjálpar. Messuhópur
þjónar. Félagar úr kirkjukór Grens-
áskirkju syngja. Organisti Erla Rut
Káradóttir. Prestur Kristín Pálsdóttir.
Molasopi eftir messu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Kvöldmessa kl. 20. Prestur Karl V.
Matthíasson, organisti Hrönn Helga-
dóttir og kór Guðríðarkirkju syngur.
Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir.
Kaffisopi eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Orgelleikur, ritningar-
lestur, bænagjörð, samfélagið um
Guðs borð. Douglas A. Brotchie leikur
á orgel. Sr. Jón Helgi Þórarinsson leið-
ir stundina. Kaffisopi á eftir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt hópi
messuþjóna. Félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngja. Baldvin Odds-
son leikur á trompet. Organisti er El-
ísabet Þórðardóttir.
Tónleikar alþjóðlegs orgelsumars
laugard. kl. 12 og sunnud. kl. 17. Sop-
hie-Veronique Cauchefer-Choplin frá
Frakklandi leikur.
Árdegismessa miðvikud. kl. 8 og tón-
leikar Schola cantorum kl. 12.
Orgeltónleikar fimmtud. kl. 12. Kitty
Kovacs, organisti í Vestmannaeyjum,
leikur.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl.11.
Prestur Eiríkur Jóhannsson. Organisti
Kári Allansson.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík |
Samkoma kl.20. Sigurður Ingimars-
son talar. Lofgjörð og fyrirbæn. Kaffi á
eftir samkomu.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Kl. 11 samkoma. Kl. 13 samkoma á
spænsku. Reuniones en Español. Kl.
14 samkoma á ensku. English speak-
ing service.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Púttmessa
klukkan 12.30 á púttvellinum Mána-
götu. Helgistund í upphafi, púttmót og
svo kaffi og verðlaunaafhending í
Kirkjulundi. Lára og Hafsteinn sjá um
tónlistarflutning í Kirkjulundi, prestur
er Eva Björk Valdimarsdóttir.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Form og sálmar í sumar-
klæðum. Prestur Ragnheiður Jóns-
dóttir. Organisti Kjartan Jósefsson
Ognibene. Forsöngvari Bryndís Erlings-
dóttir. Meðhjálpari Hildur Backman.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng.
María Kristín Jónsdóttir situr við org-
elið. Prestar Skúli S. Ólafsson og
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sam-
félag og kaffiveitingar.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Helgi-
ganga á Tindastól. Lagt af stað kl. 9
að morgni frá uppgönguleið sunnan
við Skarð. Farið hægt yfir og hlýtt á
fjallræðuna á leiðinni upp. Sr. Sigríður
Gunnarsdóttir.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur Ninna Sif Svavarsdóttir, kór
kirkjunnar syngur, organisti Edit Moln-
ár.
SELJAKIRKJA | Sumarguðsþjónusta
kl. 11, sr. Bryndís Malla Elídóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari, félagar úr
Kór Seljakirkju leiða almennan safn-
aðarsöng, organisti er Tómas Guðni
Eggertsson, kaffi og kleinur að lokinni
guðsþjónustunni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Ferming-
armessa kl. 11. Ragnheiður Karitas
Pétursdóttir og Lilja Kristín Þórsteins-
dóttir, prestar íslenska safnaðarins í
Noregi, ferma börn sem eru búsett í
Noregi. Organisti er Glúmur Gylfason.
SLEÐBRJÓTSKIRKJA í Jökuls-
árhlíð | Hátíðarmessa kl. 14. 90 ára
vígsluafmæli kirkjunnar. Frú Solveig
Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á
Hólum, predikar. Sr. Jóhanna I. Sig-
marsdóttir og sr. Þorgeir Arason þjóna
fyrir altari. Kór Kirkjubæjar- og Sleð-
brjótssókna syngur. Organisti og kór-
stjóri er Jón Ólafur Sigurðsson. Með-
hjálpari er Margrét Dögg Guðgeirsd.
Hjarðar. Að messu lokinni verður bygg-
ingarsaga kirkjunnar rifjuð upp og
sóknarnefnd býður viðstöddum í
vöfflukaffi í safnaðarheimilinu.
Orð dagsins:
Hinn týndi sauður
(Lúk. 15.)
Morgunblaðið/IngóGrenivíkurkirkja
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ellert Ingason
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig
er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en
ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar
á morgun