Morgunblaðið - 04.07.2017, Page 1

Morgunblaðið - 04.07.2017, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. J Ú L Í 2 0 1 7 Stofnað 1913  159. tölublað  105. árgangur  SÝNING RAGN- ARS FÆR FJÓR- AR STJÖRNUR VARÐVEITA SÖGULEGA MUNI ESSO ROKKHÁTÍÐIN EISTNAFLUG Í NESKAUPSTAÐ DAGLEGT LÍF 12-13 BÆJARHÁTÍÐ 14MENNING 30-31 Lífið gekk sinn vanagang við Hraunfossa í Hvítá í Borgarfirði í gær. Ferðamenn komu og fóru án þess að vera rukkaðir um gjald vegna afnota af bílastæðum við náttúruperluna. Meðal ferðamanna skipti í tvö horn hvað varðar slíkt gjald, en innheimtu var frestað fyrir helgi. »4 Skiptar skoðanir um innheimtu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ferðamenn koma og fara við Hraunfossa „Við erum að leita að húsnæði og höf- um meðal annars skoðað St. Jósefs- spítala,“ segir Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri á rekstrarsviði Landspítalans, um mögulega flutn- inga barna- og unglingageðdeildar Landspítalans á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Að sögn Ingólfs er verið að skoða þann möguleika að flytja legudeildar- hluta BUGL úr núverandi húsi þess við Dalbraut í um það bil eitt ár á meðan verið er að klæða húsið og laga þakið. „Það er ekki neitt frágengið í því sambandi. Þetta hefur verið nefnt við Hafnarfjarðarbæ en það er ekki komin nein niðurstaða.“ St. Jósefsspítali er nú í eigu Hafnarfjarðarbæjar en engin starf- semi hefur verið þar frá því honum var lokað í árslok 2011. Að sögn Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarfulltrúa í Hafnarfirði, er áætlað að gera þurfi við húsnæði spítalans fyrir talsverðar upphæðir. BUGL leitar að nýju húsnæði  Viðgerðir á húsnæði barna- og unglingageðdeildar Land- spítalans valda því að flytja þarf legudeildina tímabundið MBUGL flytur vegna viðgerða »6 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur óskað eftir því að Ríkisendurskoðun geri stjórn- sýsluúttekt á aðdraganda þess að neyðarbrautinni á Reykjavíkurflugvelli var lokað. Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, á sæti í nefndinni. „Eins og kemur fram í erindi nefndarinnar til Ríkisendurskoðunar snýst skýrslubeiðnin um að stofnunin framkvæmi úttekt á stjórnsýslu, framkvæmd, skilvirkni og ákvarðanatöku innanríkisráðherra, Samgöngu- stofu og Isavia vegna lokunar á neyðarbrautinni,“ segir Njáll Trausti. Yfirfari samskipti ríkis og borgar „Nefndin telur rétt að varpað sé ljósi á samskipti stjórnvalda og Reykjavíkurborgar og samskipti þessara aðila í stjórnsýslunni og þá sérstaklega lögformleg samskipti Isavia og Samgöngustofu,“ segir Njáll Trausti. Hann segir tilefnið m.a. vera upplýsingar sem komu fram á fundi nefndarinnar með fulltrúum Isavia, Samgöngustofu og öryggis- nefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna í maí og í kjölfarið. Samgöngustofa hafi þá greint frá því að neyðar- brautinni hafi verið lokað tímabundið. Það gangi þvert á útgáfu byggingarréttar á svæðinu. Fáum vikum síðar hafi Samgöngustofa sagt að brautinni hafi verið lokað fyrir fullt og allt. „Frá júlí í fyrra og fram í maí í ár hélt íslensk þjóð að búið væri að loka brautinni að fullu,“ segir Njáll Trausti, sem telur rétt að „þetta mikilvæga mál fái ítarlega skoðun“. Rannsaki lokun á flugbraut  Þingnefnd hefur óskað eftir rannsókn Ríkisendurskoðunar Morgunblaðið/Árni Sæberg Reykjavíkurflugvöllur Fyrirhugað er að byggja hús fyrir tugi milljarða á svæði neyðarbrautar.Hugmyndir Færeyinga um að banna eignaraðild útlendinga í sjávar- útvegsfyrirtækjum þar í landi eru brot á svonefndum Hoyvíkursamn- ingi sem tryggja á gagnkvæmt við- skiptafrelsi milli Íslands og Fær- eyja. Nú mega erlendir aðilar eiga þriðjung í útgerð ytra, en frumvarp sem liggur fyrir færeyska lögþing- inu gerir ráð fyrir að sú heimild verði felld úr gildi á nokkrum árum. Sjónarmiðum Íslendinga í málinu hefur verið komið á framfæri. „Við erum sannfærð um að farið verði vel og málefnalega yfir ábendingar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Í gegnum dótturfyrirtækið Fram- herja í Fuglafirði er Samherji með starfsemi í Færeyjum. Kristján Vil- helmsson útgerðarstjóri segir hana hafa byggst á farsælu samstarfi við færeyska útgerðarfjölskyldu og mið- ur sé ef því þurfi að ljúka. »2 Samstarf í Færeyjum í óvissu  Erlend eign í út- gerð verði óheimil  Leikskólagjöld í Reykjavík voru lækkuð um 10% 1. júlí sl. eða um 2.900 krónur. Eftir lækkun er gjald fyrir barn sem er í átta stundir á dag tæpar 24.600 krónur. Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs, segir að lækkunin sé hluti af þeirri stefnu borgar- stjórnarmeirihlutans að menntun sé gjaldfrjáls. „Það er verið að taka ákveðin skref að því marki í áföng- um. Leikskólinn er auðvitað fyrsta skólastigið samkvæmt lögum,“ seg- ir Skúli. Gjöldin voru lækkuð um 100 milljónir árið 2015, en í fyrra hækkaði fæðisgjaldið um 25%. »11 Menntun eigi að vera gjaldfrjáls Krakkar Leikskólabörn í menningarferð. Leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Ingvar E. Sigurðsson munu fara með hlutverk í annarri kvikmynd syrpunnar Fantastic Beasts and Where to Find Them sem byggð er á sagnaheimi J.K. Rowling, höfundar bókanna um Harry Potter, en hún skrifar handrit kvikmyndarinnar líkt og þeirrar fyrstu. „Það er ógeðslega gaman að vera með í þessari mynd og líka að vera með Ingvari,“ sagði Ólafur Darri í samtali við Morgunblaðið í gær en hann má annars lítið tjá sig um kvik- myndina og hlutverk sitt. Tökur á myndinni hefjast brátt í London og er Ingvar þegar kominn þangað, skv. heimildum Morgunblaðsins. »33 Leika í heimi Rowling  Ingvar E. og Ólafur Darri í Fantast- ic Beasts and Where to Find Them 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.