Morgunblaðið - 04.07.2017, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.07.2017, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2017 Loftpressur - stórar sem smáar Í fréttum mbl.is sagði frá því, aðríkissaksóknari hefði gert til- lögu til dómsmálaráðherra um að sekt fyrir notkun farsíma án hand- frjáls búnaðar yrði 40 þúsund krón- ur.    Núverandi sekt er aðeins 5.000krónur og hefur ekki hækkað í rúman áratug.    Um 500öku- menn eru árlega kærðir fyr- ir notkun farsíma undir stýri. Óformleg og óvís- indaleg athugun sýnir að nær þriðj- ungur ökumanna er á hverjum tíma að tala í síma sinn við akstur.    Talan um 500 kærða, einn á dag,bendir til að einn af hverjum 100.000 (óvísindalegt) sé að þvaðra í síma við akstur.    Eftir mörg hrikaleg slys, þar afmörg banaslys, hafa sektir hækkað mjög og önnur viðurlög verið hert hjá nágrönnum okkar Bretum.    Því hefur verið haldið fram aðökumenn talandi í síma, svo ekki sé talað um vitleysingana sem eru að senda SMS, séu mun hættu- legri í umferðinni en drukknir öku- menn. Þeir séu oftast nær að reyna að vanda sig.    Aðeins drukknir ökumenn semeru talandi í síma eða send- andi SMS séu hættulegri. Dóms- málaráðherra ætti að lesa tillögur ríkissaksóknara yfir alvörugefin og bæta svo í. Talandi og tikkandi sprengjur STAKSTEINAR Veður víða um heim 3.7., kl. 18.00 Reykjavík 11 skýjað Bolungarvík 7 rigning Akureyri 11 rigning Nuuk 6 léttskýjað Þórshöfn 13 léttskýjað Ósló 14 rigning Kaupmannahöfn 14 rigning Stokkhólmur 16 heiðskírt Helsinki 16 skýjað Lúxemborg 22 léttskýjað Brussel 22 heiðskírt Dublin 17 rigning Glasgow 16 léttskýjað London 22 léttskýjað París 24 léttskýjað Amsterdam 19 léttskýjað Hamborg 19 skúrir Berlín 22 heiðskírt Vín 25 heiðskírt Moskva 18 skýjað Algarve 29 heiðskírt Madríd 34 heiðskírt Barcelona 27 heiðskírt Mallorca 26 léttskýjað Róm 29 skýjað Aþena 32 léttskýjað Winnipeg 21 léttskýjað Montreal 20 skýjað New York 28 heiðskírt Chicago 24 léttskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:13 23:52 ÍSAFJÖRÐUR 2:13 25:03 SIGLUFJÖRÐUR 1:50 24:51 DJÚPIVOGUR 2:31 23:34 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Hafa þarf í huga þegar kreditkort eru notuð til að eiga viðskipti á er- lendum síðum eða notuð erlendis að gengi krónunnar er skráð með mis- munandi hætti hjá kortafyrirtækjum annars vegar og Seðlabanka Íslands hins vegar. Þau svör fengust frá kortadeild Íslandsbanka að vegna samstarfs við kortasamsteypur geti verið hærra álag á kortagengi en gengi Seðlabanka Íslands. Til dæmis var dönsk króna skráð hjá Seðlabanka Íslands á 16,1 í gær en kortagengið var 16,4 hjá Master- card. Bandaríkjadalur var hjá Seðla- bankanum skráður 104,15 á móti 105,8 hjá Mastercard og 30. júní var seðlabankagengi á breska pundinu 136,04 á móti 136,7 hjá Mastercard á hinu svokallaða kortagengi. Sú staða hefur líka komið upp, samkvæmt upplýsingum frá Íslands- banka, að kortagengið hefur verið hagstæðara en seðlabankagengið, en yfirleitt er kortagengið örlítið óhag- stæðara. Þá getur verið munur milli korta, t.d. American Express og Mastercard, og stafar það af því að um tvö ólík fyrirtæki er að ræða. Álagið er því mismunandi eftir því hvort kortið er notað. Annað gengi á kreditkortum  Hærra álag á svokölluðu kortagengi en skráðu gengi Seðlabanka Íslands Morgunblaðið/Golli Kort eða seðlar Það getur verið ódýrara að notast við peningaseðla. Nýlega var lögð lokahönd á gerð fuglaskoðunarhúss við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Húsið fellur vel að landslaginu og hentar almenningi og grunnskólanemum á Seltjarn- arnesi og víðar vel við fuglaskoðun og rannsóknir, en Bakkatjörn er einstök hvað varðar fjölskrúðugt fuglalíf allan ársins kring. Húsið er einnig kjörið fyrir fuglaáhugamenn og ljósmyndara, en hönnun þess býður upp á fyrsta flokks aðstöðu til að koma sér vel fyrir og sæta færis fyrir rétta myndaaugnablikið, segir á heima- síðu Seltjarnarness. Staðsetning hússins er nálægt bakkanum og veitir góða yfirsýn yfir Bakkatjörn þar sem fjöldi vað- fugla heldur til. Ljósmynd/Soffía Karlsdóttir Hús til fugla- skoðunar við Bakkatjörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.