Morgunblaðið - 04.07.2017, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2017
Ö Á É
R
Okkar stærsta su
marútsala
frá upphafi
Sumarblóm 30-50% · Tré og runnar 50% · Fjölærar plöntur 50% · Matjurtir 50% · Garðarósir 50% · Útipottar 30% · Garðstyttur 30%
Fræ og sáðbakkar 30% · Silkisumarblóm 30% · Vökvunarkönnur 30% · Úðabrúsar 30% · Sláttuvélar 20% · Garðverkfæri 25% · Hekkklippur 30%
Keðjusagir 30% · Vermireitir og blómakassar 20% · Háþrýstidælur 20% · Áltröppur og stigar 30% · Rafmagnsverkfæri Black&Decker 30%
Reiðjól og fylgihlutir 30% · Garðhúsgögn 30% · Úðarar, slönguhjól og tengi 30% · True North Útivistafatnaður 50% · Pallaolía 25%
Viðarvörn 25% · Innimálning 25% · Útimálning 25% · Vegg- og loftaþiljur 25% · Leikföng 30% · Búsáhöld 25% · BroilKing grill 20%
Grill fylgihlutir, Broil King, GrillPro 30% · Harðparket og undirlag 25% · Electrolux smáraftæki 20% · Verkfæratöskur 35%
og margt fleira
Byggjum á betra verði
B
ir
t
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
og
m
yn
da
ví
xl
.Ú
rv
al
ge
tu
r
ve
rið
m
is
ja
fn
t
m
ill
iv
er
sl
an
a.
í vefverslun husa.is
Frí heimsending
EF VERSLAÐ ER FYRIR 5.990 K
R. EÐAMEIRA
G F
Ö
G
H
K
AFSLÁTTUR
Léttre kt síldarflök
Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Kostur, Iceland verslanir, Kvosin, Melabúðin,
Nettó, Samkaup, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Sunnubúðin.
- þess virði að smakka!
Söluturn
Til sölu góður söluturn og spilasalur í verslunarkjarna á
stór Reykjavíkursvæðinu. Velta um 100.000.000 kr. á ári.
Skoðum ýmis skipti.
Áhugasamir sendi á box@mbl.is merkt:
„S-26246“ fyrir 10. júlí.
Öllum fyrirspurnum svarað.
Finnska fyrirtækið Lumo Nordic
íhugar að opna heilsulind með al-
menningsgufubaði í Reykjavík. Um
er að ræða heilsulind sem inniheldur
veitingastað og sánu en fyrirtækið
hefur opnað eina slíka í Helsinki að
nafni Löyly.
Lumo Nordic á réttinn að hug-
myndinni sem varð að Löyly en rek-
ur ekki heilsulindina. Ville Iivonen,
stofnandi Lumo Nordic, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að vegna vel-
gengni Löyly sé sótt fram með hug-
myndina. „Fyrsti staðurinn eftir
þessari hugmynd hefur verið opn-
aður í Helsinki og hefur gengið mjög
vel. Ég hef verið að skoða mismun-
andi staði um alla Skandinavíu og
Reykjavík er ofarlega á lista hjá
okkur, sérstaklega vegna þess
hversu margir ferðamenn eru þar,“
segir Iivonen en Löyly fékk yfir 350
þúsund gesti á fyrstu 12 mánuðun-
um frá opnun.
Iivonen segir hins vegar að ekkert
hafi verið ákveðið ennþá. „Þetta er á
byrjunarstigi. Við erum búnir að
vera að skoða staði og leita að mögu-
legum samstarfsaðilum á Íslandi,“
segir Iivonen. mhj@mbl.is
Ljósmynd/Wikimedia Commons
Löyly Gestir Löyly geta gengið úr sánunni og í sjóinn til að kæla sig.
Vilja opna finnska
sánu í Reykjavík
Nákvæm staðsetning óákveðin
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Leikskólagjöld í Reykjavík voru
lækkuð um 10% 1. júlí sl. eða um
2.900 krónur. Eftir lækkun er gjald
fyrir barn sem er í átta stundir á dag
tæpar 24.600 krónur.
Leikskólagjöldin voru lækkuð um
100 milljónir árið 2015, en í fyrra
hækkaði fæðisgjaldið um 25% sem
foreldrar greiða að mestu.
„Þessi lækkun leikskólagjalda er
hluti af þeirri stefnu okkar að eðli-
legt sé að menntun sé gjaldfrjáls og
það er verið að taka ákveðin skref að
því marki í áföngum. Leikskólinn er
auðvitað fyrsta skólastigið sam-
kvæmt lögum,“ sagði Skúli Helga-
son, formaður skóla- og frístunda-
ráðs í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Skúli segir að framlög til leikskól-
anna í Reykjavík hafi aukist til muna
síðasta haust og aftur á þessu ári,
miðað við það sem var í ársbyrjun í
fyrra. Hann segir að aukningin fari í
fagstarf leikskólanna, aukinn undir-
búningstíma starfsfólks, námsleyfi,
námsgögn,viðhald og endurbætur.
Þá fái ungbarnadeildir sem verið sé
að opna sérstakt fjármagn. Auk þess
hafi orðið verulegar launahækkanir
hjá leikskólakennurum frá 2014.
Aðspurður hvers vegna ánægja
foreldra með matinn í leiksólunum
hafi ekki aukist til muna, þrátt fyrir
25% hækkun fæðisgjalds í fyrra,
sagði Skúli: „Það er rétt, að í
ánægjuvog foreldra er maturinn sá
liður sem skorar lægst, en ég tel það
vera ágæta útkomu að það eru meira
en tveir af hverjum þremur, sem eru
ánægðir eða í kringum 70% foreldra
og um 76% leikskólabarnanna eru
ánægð með matinn.“
Kristín Ólafsdóttir situr í stjórn
Félags foreldra leikskólabarna í
Reykjavík (FFLR). Hún sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að meiri-
hlutinn í Reykjavík hafi ekki haft
neitt samráð við FFLR um þessa
lækkun og hún væri ekki tilkomin
vegna óska félagsins.
„Við höfum auðvitað fyrst og
fremst viljað tryggja að leikskólarnir
væru fullmannaðir. Það hefur verið
þó nokkuð um það að börn yrðu að
vera heima vegna manneklu. Auk
þess eru mál leikskólanna víða í
ólestri, svo sem vanhirtar lóðir, úr
sér genginn búnaður og fleira,“ sagði
Kristín.
Lækkun leikskólagjalda sé ekki
helsta baráttumál FFLR, enda séu
leikskólagjöld einna lægst í Reykja-
vík. Kristín bendir á að í nýlegri
ánægjukönnun sem gerð hafi verið
meðal foreldra leikskólabarna komi
á daginn að foreldrar í um 95% til-
vika séu ánægðir með starfið á leik-
skólunum og starfsfólkið, en enn sé
minnst ánægja meðal foreldra með
fæðið, eða um 70% og það hafi lítið
breyst þrátt fyrir 25% hækkun mat-
argjaldsins í fyrra.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Leikskólabörn Leikskólakrakkar á Akureyri voru glaðir í bragði í heimsókn í Slökkvistöðina á Akureyri í vor.
Við teljum eðlilegt að
menntun sé gjaldfrjáls
Yfir 90% foreldra ánægðir með starf leikskólanna
Freista á þess í sumar að finna flak
pólska flutningaskipsins SS Wigry
sem fórst í aftakaveðri við Mýrar
fyrir 75 árum. Af 27 manna áhöfn
lifðu aðeins tveir af, Íslendingur og
Pólverji. Í maílok var afhjúpaður
minnisvarði um skipið í fjörunni við
Syðra-Skógsnes og minningarsýn-
ingin „Minningin lifir“ opnuð í Sjó-
minjasafninu í Reykjavík.
Witek (Alexander Witold) Bog-
danski, sem starfar í flutninga-
stjórnunardeild Samskipa, er sýn-
ingarstjóri og hann hefur unnið
óeigingjarnt starf við að afla upplýs-
inga um skipið. Witek hefur meðal
annars beitt sér fyrir byggingu lík-
ans af skipinu, sem er til sýnis í Sjó-
minjasafninu, ásamt öðrum fróðleik
um þessa síðustu sjóferð SS Wigry.
Samskip styrktu smíði líkansins.
Witek Bogdanski var nýverið boð-
ið til Póllands þar sem minningar-
skjöldur um skipstjóra SS Wigry
var afhjúpaður í Gdynia. Við það
tækifæri var hann heiðraður, meðal
annars fyrir rannsóknarvinnu sína
tengda SS Wigry. Um miðjan júlí
tekur Witek þátt í köfunarleiðangri
þar sem þess verður freistað að
finna flak SS Wigry og þar með enn
frekari upplýsingar um þessa síð-
ustu ferð flutningaskipsins.
Leita að flaki Wigry
Leit Flaks pólska skipsins SS Wigry
verður leitað á Faxaflóa.