Morgunblaðið - 04.07.2017, Page 12
Ingibjörg Rósa
ingibjorgrosa@gmail.com
S
umir fara í golf eftir
vinnu, ég fer hingað,“
segir Jóhann Örn Ingi-
mundarson „safnvörður“
sem ver frítíma sínum í
að koma upp litlu safni um Olíu-
félagið Esso, betur þekkt sem N1 í
dag. Jóhann hefur starfað hjá
fyrirtækinu í tæp fjörutíu ár, er nú
viðskiptastjóri en var olíubílstjóri
til margra ára og hefur, ásamt
fleiri starfsmönnum Olíufélagsins, í
áranna rás sankað að sér alls kon-
ar hlutum, myndum og skjölum frá
Esso sem annars hefðu glatast. Þá
hefur hann verið sérlegur umsjón-
armaður fornbíla fyrirtækisins
undanfarin ár og ásamt félaga sín-
um, Jóni Þorbergi Jakobssyni,
nostrað við bílana og haldið þeim
gangfærum.
„Lengi vel voru þetta bara
tveir bílar en fyrir nokkrum mán-
uðum hafði Eggert Þór, forstjóri
N1, frumkvæði að því að við fengj-
um loks þetta húsnæði til að hýsa
alla bílana svo nú erum við smátt
og smátt að koma þeim öllum í
gang,“ segir Jóhann, sem stillir
þessum fallegu gömlu olíubílum
upp við bensínstöðvar hér og hvar
á sumrin, sem ljær borginni bæði
lit og sjarma. „Svo förum við
stundum smárúnt á þeim þegar
veðrið er gott, náum okkur í olíu
og kaffi á einhverjum af bensín-
stöðvunum og þá fyllist planið fljót-
lega af forvitnu fólki, þessir bílar
trekkja mikið að.“
Forstjóraskrifstofan
Sannarlega má sjá aðdráttar-
afl gömlu bílanna þegar þeir fé-
Jóhann stendur
vörð um sögu Esso
Jóhann Örn Ingimundarson ver frítíma sínum í að koma upp litlu safni um Olíu-
félagið Esso, betur þekkt sem N1 í dag. Hann hefur í áranna rás sankað að sér
alls konar hlutum, myndum og skjölum frá Esso, og er sérlegur umsjónarmaður
fornbíla fyrirtækisins ásamt félaga sínum, Jóni Þorbergi Jakobssyni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjá um fornbílana Jóhann Örn t.v. með derhúfu, Jón Þorbergur sitjandi.
Fegurð Þeir eru sannarlega augnayndi bílarnir sem þeir hafa gert upp.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2017
Tónlistarmaðurinn Tómas R. Einars-
son hefur haft fyrir reglu undanfarin
ár að halda tónleika í æskuslóðum
sínum, Laugum í Sælingsdal. Annað
kvöld, miðvikudagskvöldið 5. júlí, ætl-
ar þessi Dalamaður einmitt að vera
með árlegu tónleikana sína á hótelinu
á Laugum. Í tilkynningu kemur fram
að með í för verði tveir tónlistarmenn,
ekki af verri endanum; gítarleikarinn
Ómar Guðjónsson og söngvarinn og
gítarleikarinn Mugison.
Leiðir þessara þriggja félaga hafa
legið áður saman; Mugison söng á
plötu Tómasar Trúnó og Tómas spilaði
á plötu Mugisons, Hagléli. Þeir Ómar
og Mugison hafa margsinnis unnið
saman, ekki síst í hljómsveitinni
Dröngum. Efnisskrá tónleikanna
verður blanda af tónlist þessara
þriggja félaga. Tónleikarnir hefjast kl.
20.30 og aðgangur er ókeypis.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að gista
er vert að taka fram að sérstakt til-
boð verður á Hótel Eddu Laugum í
Sælingsdal í tilefni tónleikanna. Þar
er boðið upp á gistingu með morgun-
verði og aðgangi að Sælingsdalslaug
með 30% afslætti dagana 5.-9. júlí.
Hægt er að bóka gistingu á vefsíð-
unni www.hoteledda.is/is/offers/
tonleikatilbod.
Frítt inn á tónleika með Tómasi, Ómari og Mugison
Morgunblaðið/Golli
Tónlistarmaður Tómas R. Einarsson hefur starfað við tónlist árum saman.
Tómas R. spilar á heimaslóðum
Ljónynjan Mariska kom þessum tveimur krúttsprengjum í heiminn í gær í
Beekse Bergen-safarídýragarðinum í Hilvarenbeek í Hollandi.
Ungviðið dregur ævinlega að sér athyglina
Ljónsungar líta dagsins ljós
AFP
Bandarísku leiðbeinendurnir Devon
og Craig Hase bjóða áhugasömum
upp á þriggja daga hugleiðslu-
námskeið (meditation retreat) síð-
ar í mánuðinum, það verður haldið
í Skyrgerðinni í Hveragerði 28.-30.
júlí. Á námskeiðinu munu Devon og
Craig leiða þátttakendur inn í hug-
arheim jóga, hugleiðslu og núvit-
undar með áherslu á tækni til
djúprar sjálfsskoðunar og uppgötv-
un á innviðum hugar og líkama.
Boðið verður upp á jóga, hug-
leiðslu og æfingar í meðvitaðri
hreyfingu (mindful movement).
Einnig verður farið í gönguferðir
um næsta nágrenni bæjarins með
áherslu á slökun í hversdaglegu
umhverfi; að virkja skilningarvitin í
djúpu samtali við náttúruna, bæði
stóra og smáa.
Fyrir þá þátttakendur sem vilja
er boðið upp á gistingu í Skyrgerð-
inni. Fyrir þá sem gista ekki á
staðnum er innifalinn í námskeiðs-
gjaldi hádegisverður dagana þrjá
og hægt er að óska eftir græn-
metisfæði og vegan. Nánari upplýs-
ingar: exploringiceland.is/-
iceland-meditation.html.
Hugleiðslunámskeið með Devon og Craig Hase
Nú er lag að slaka á í Hveragerði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hveragerði Sannarlega notalegur bær og gott að njóta þess að hugleiða þar.
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Stýrðu birtunni heima hjá þér
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is