Morgunblaðið - 04.07.2017, Blaðsíða 15
Dagskrá Allir finna eitthvað við sitt hæfi á fjölbreyttri dagskrá Eistnaflugs. Að-
aldagskrá fer fram í íþróttahúsinu en hliðarviðburðir verða í Beituskúrnum.
Morgunblaðið/Elín Arnórsdóttir
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2017
Vegagerðin hefur opnað alla vegi á Syðra-Fjallabaki, en fjallvegir á land-
inu hafa undanfarið verið opnaðir hver á fætur öðrum. Enn er þó lokað á
smá kafla á Nyrðra-Fjallabaki og á fleiri fáfarnari fjallvegum.
Nokkrir fjallvegir, sérstaklega á Norðausturlandi, opnuðu snemma í ár.
Vegagerðin hefur síðustu vikur unnið að því að opna fleiri vegi eftir því
sem færð batnar. Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni í gær er búið að
opna alla vegi á Syðra-Fjallabaki. Dómadalur á Nyrðra-Fjallabaki er hins
vegar áfram lokaður, en að öðru leyti eru allir fjallvegir á Suðurlandi opn-
ir. Fjallvegur F347 milli Kjalar og Þjórsárvera er hins vegar enn lokaður.
Þá eru allir vegir á Auðkúluheiði norðan Langjökuls enn lokaðir.
Skagafjarðarleið og Eyjafjarðarleið sem liggja að Sprengisandsleið eru
einnig lokaðar auk fjallvegar F910 sem liggur frá Nýjadal að Öskju.
Á Austurlandi eru Snæfellsleið og Jökuldalsvegur áfram lokaðar, en
aðrir vegir hafa verið opnaðir.
Vegagerðin opnar alla vegi á Syðra-Fjallabaki
Víða eru komin skilti sem banna
drónaflug en að sögn Þórhildar Elín-
ardóttir, samskiptastjóri hjá Sam-
göngustofu, geta Umhverfisstofnun,
lögreglan og Samgöngustofa sett tak-
markanir á notkun dróna á tilteknum
svæðum.
Hún segir hins vegar að Sam-
göngustofa hafi ekki sett upp nein
skilti sem banna drónaflug. „Slík skilti
eru væntanlega að frumkvæði land-
eigenda.“
„Auk almennra eignarréttarreglna
er í drögum að reglugerð um dróna
gert ráð fyrir að Samgöngustofu sé
heimilt að skilgreina svæði, þar á með-
al svæði innan þéttbýlis sem svæði
þar sem bannað sé að fljúga drónum.
Þá er einnig gert ráð fyrir því í reglu-
gerðinni að önnur stjórnvöld svo sem
Umhverfisstofnun og lögregla geti
sett takmarkanir á notkun dróna á til-
teknum svæðum,“ segir Þórhildur.
„Sértæk verndun ákveðinna svæða
hefur ekki verið hjá Samgöngustofu
fyrir utan í kringum flugvelli,“ segir
Þórhildur og bætir við að Umhverf-
isstofnun geti sett ákveðnar takmark-
anir varðandi fuglavarp og annað
slíkt.
Að sögn hennar er lagastoð Sam-
göngustofu til þess að setja upp slík
skilti fengin úr loftferðalögum. „Laga-
stoð hinna er fengin úr þeim lögum
sem um starfsemi þeirra gilda, segir
Þórhildur.“
„Sem landeigendi máttu setja regl-
ur um að fólk sem er statt inni á þínu
landssvæði sé ekki að nota dróna. Þú
getur ákveðið að einhverju leyti hvað
fer ekki fram á þínu yfirráðasvæði.“
urdur@mbl.is
Landeigendur mega
setja upp drónaskilti
Reglur um per-
sónuvernd koma til
álita um drónaflug
Morgunblaðið/Eggert
Dróni Víða hafa sést skilti sem banna drónaflug. Umhverfisstofnun, lög-
reglan og Samgöngustofa geta sett takmarkanir á notkun dróna.
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Bókaðu
núna og
tryggðu þér
pláss
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . . kr. 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð á mann frá . . . . kr. 74.500
1
Bókaðusnemma ogtryggðu þér pláss
Taktu bílinnmeð í ferðalagiðFæreyjar - Danmörk - Evrópa 2017
Færeyjar2 fullorðnir
með fólksbíl
Verð á mann frá34.500
Danmörk
2 fullorðnir
með fólksbíl
Verð á mann frá
74.500
570 8600 / 470 2808 · www.smyrilline.is
Mikið er bókað nú þegar með Norrænu á næsta ári. Því er mikilvægt fyrir þá sem ætla að ferðast
með Norrænu að bóka sig sem fyrst og tryggja sér pláss á meðan enn er laust pláss.
Aðeins25% núna,eftirstöðvarmánuði fyrirbrottför
Bæklingur 2017
Nýja bæklinginn okkar
er nú hægt að sækja á
heimasíðuna,
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Fjarðargötu 8 | 710 Seyðisfjörður | Sími: 4702808
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Taktu bílinn
með í ferðalagið
til Færeyja og Danmerkur 2017
Allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi á Eistnaflugi af þeim
rúmlega 50 hljómsveitum sem
fram koma.
Miðvikudagur
World Narcosis hefur leik fyrst
hljómsveita á Eistnaflugi kl.
16.45. Þar á eftir koma hljóm-
sveitirnar Cult of Lilith, Grave
Superior, Oni, Andlát, Zatokrev,
Hatari, Sinistro, Anaal Nathrakh
og Neurosis. Innvortis slær botn-
inn í dagskrána kl. 2.15.
Fimmtudagur
Dagskráin hefst kl. 14.30 með
hljómsveitinni Vofu. Á eftir koma
Lith, Hubris, Kronika, Röskun,
Kælan mikla, Une Misére, Zhrine,
Naga, Auðn, Bloodbath, Brain-
police og Misþyrming sem endar
með tónleikum kl. 1.50.
Föstudagur
Atómstöðin hefur leik kl. 14.00 Þar
á eftir koma hjómsveitirnar Dynfari,
Skurk, Monolith Deathcult,
200.000 naglbítar, Kontinuum,
Voices, Mugison, Akercocke, Max &
Iggor Cavalera, Skálmöld og Atari
Teenage Riot, sem rekur lestina kl.
1:45.
Laugardagur
Hljómsveitin Asyllex hefur tón-
leikana kl. 16.00. Næst á svið er
hljómsveitin Futue Figment. Á eftir
henni koma Morðingjarnir, Dr.
Spock, Saktmóðigur, Ham, Dimma,
The Dillinger Escape Plan og Sól-
stafir. Klukkan 2.15 aðfaranótt
sunnudags stíga svo á svið og loka
hátíðinni Jónas Sig. og Ritvélar
framtíðarinnar ásamt Dj. Töfra.
Auk þessa verða fjölbreyttir
hliðarviðburðir í Beituskúrnum.
Fjölbreytt dagskrá Eistnaflugs
ALLIR FINNA EITTHVAÐ GOTT