Morgunblaðið - 04.07.2017, Side 17

Morgunblaðið - 04.07.2017, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2017 Stjórnvöld í Katar fordæmdu í gær úrslitakosti þá, sem Sádi-Arabar, Egyptar og bandamenn þeirra, hafa sett þeim, en fresturinn sem Katarar höfðu til þess að verða við kröfum þeirra var framlengdur um 48 klukkutíma í fyrrinótt. Utanríkisráðherra Katar, Mo- hammed bin Abdul Rahman al- Thani, mun hafa afhent svar landsins við úrslitakostunum í gær til Kúveit, en stjórnvöld þar hafa reynt að miðla málum í deilunni. Ekki var greint frá því hvað staðið hefði í svari Katar, en lögfræðingar landsins fordæmdu úr- slitakostina í sérstakri yfirlýsingu og sögðu þá í „trássi við alþjóðalög“. Reyna að miðla málum Á meðal þess sem Sádi-Arabar og bandamenn þeirra hafa krafist af Katar er að landið loki sjónvarps- stöðinni Al-Jazeera, slíti á tengsl sín við Írani og láti loka herstöð sem Tyrkir hafa haldið úti í landinu. Al- Thani utanríkisráðherra sagði í síð- ustu viku að kröfurnar virtust hann- aðar til þess að þeim yrði hafnað. Verði Katar ekki við kröfunum munu Sádi-Arabar og bandamenn þeirra setja á enn frekari viðskipta- þvinganir við Katar, en tæpur mán- uður er liðinn frá því að þeir skáru á öll tengsl við landið. Sigmar Gabriel, utanríkisráð- herra Þýskalands, fór í gær til Persaflóa, en hann hyggst leita lausna á deilunni. Kallaði Gabriel eftir því að deiluaðilar ræddu saman en létu ekki vantraust ráða ríkjum. Þá hefur Trump Bandaríkjafor- seti einnig rætt við stjórnvöld í Kat- ar og í Sádi-Arabíu, en stærsta her- stöð Bandaríkjamanna við Persaflóa er í Katar. sgs@mbl.is Katar fær gálgafrest  Sagt að verða við kröfum Sádi-Araba og bandamanna þeirra fyrir miðvikudag AFP Katar Þrátt fyrir viðskiptabann gengur lífið í Doha sinn vanagang. Japanskur lögreglumaður á eftirlaunum hefur komist í heimsmetabók Guinness fyrir safn sitt tengt Hello Kitty. Safnið er metið á 250 þúsund Bandaríkjadali, 25,6 milljónir króna, og inniheldur 5.169 muni. „Ég elska Kitty,“ segir Masao Gunji, eigandi safnsins, og bætir við að hún sé dásamleg, ekki síst andlit hennar. AFP Kominn í heimsmetabók Guinness Hello Kitty safnið metið á 25,6 milljónir Emmanuel Macr- on Frakklands- forseti greindi frá því í gær að hann hygðist nema neyð- arlögin í landinu úr gildi í haust. Þau hafa gilt frá því í nóvember 2015 þegar ísl- amskir hryðju- verkamenn felldu 130 manns í Par- ís. Þetta kom fram í stefnuræðu Macrons sem hann flutti í Versala- höll í gær að viðstöddum báðum deildum franska þingsins. Sagði Macron tímabært að færa frönsku þjóðinni aftur frelsi sitt þar sem það væri grundvöllurinn að sterku lýðræði. Gildistími neyðarlaganna hefur nú verið framlengdur fimm sinn- um, en Macron kynnti í júní nýja löggjöf gegn hryðjuverkastarfsemi sem á að koma í stað neyðarlag- anna. Afléttir neyðar- ástandi í haust Emmanuel Macron FRAKKLAND Chris Christie, ríkisstjóri New Jersey, sætir nú harðri gagnrýni fyrir að nýta sér sjálfur strönd sem hann lét loka fyrir almennri umferð. Christie lét loka Island State Beach Park-garðinum og öllum þjóðgörðum ríkisins um síðustu helgi af því að ekki var búið að sam- þykkja fjárlög ríkisins. Bandarískir fjölmiðlar hafa hins vegar birt loft- myndir af Christie að sóla sig á ströndinni ásamt fjölskyldu sinni, en sumarhús ríkisstjórans er á ströndinni. „Ég var ekki að njóta sólar í dag,“ sagði Christie áður en loft- myndirnar voru birtar. Talsmaður Christie sagði að hann hafi ekki notið neinnar sólar þar sem hann hafi verið með derhúfu. Sólaði sig á strönd sem hann lét loka Chris Christie. BANDARÍKIN Talið er að átján hafi látist og 30 slas- ast í bílslysi sem varð í Bæjaralandi í gærmorgun. Angela Merkel, kansl- ari Þýskalands, segir hug þýsku þjóðarinnar hjá aðstandendum þeirra og þeim sem slösuðust. Allir farþegarnir, 46 talsins, voru eftir- launaþegar sem voru á ferðalagi frá Lausitz til Nürnberg þegar slysið varð. Tveir bílstjórar voru í rútunni en henni var ekið aftan á flutningabíl sem sat fastur í umferðarteppu á hraðbrautinni skammt frá bænum Münchberg í Bæjaralandi. Slysið varð skömmu fyrir klukkan sjö í morgun að staðartíma, um 5 að ís- lenskum tíma. Jürgen Stadter, upplýsinga- fulltrúi lögreglunnar í Bæjaralandi, sagði að litlar líkur væru á að þeir sem enn væri saknað myndu finnast á lífi. Í tilkynningu frá lögreglunni í Bæjaralandi er talið að 18 hafi látist í slysinu en 30 farþegar voru fluttir á sjúkrahús. Einhverjir þeirra eru mjög alvarlega slasaðir. Allt bendir til að þeir sem eru látnir hafi brunnið inni þegar kviknaði í rútunni við áreksturinn. urdur@mbl.is Talið að 18 hafi látist í rútuslysi  Farþegarnir voru eftirlaunaþegar AFP Slys Talið er að 18 hafi látist og 30 slasast í rútuslysi í Bæjaralandi. Þeir sem eru látnir hafa líklega brunnið inni þegar kviknaði í rútunni. Xi Jingping, forseti Kína, lýsti yfir áhyggjum sínum yfir framferði Bandaríkjanna síðustu daga, þegar hann ræddi við Donald Trump Bandaríkjaforseta í símann í gær. Kvartaði Xi meðal annars undan vopnasölusamningi Bandaríkjanna við Taívan, en Kínverjar líta svo á að eyjan tilheyri þeim með réttu. Aukin spenna hefur ríkt í sam- skiptum Bandaríkjanna og Kína síð- ustu daga. Á sunnudaginn ákváðu Bandaríkjamenn til dæmis að senda herskip í gegnum hafsvæði Spratly- eyja sem Kínverjar, Taívanir og Ví- etnamar gera allir kröfu til. Kínverj- ar hafa slegið eign sinni á hluta eyja- klasans, en Bandaríkin viðurkenna ekki þá kröfu. Þá hafa kínversk stjórnvöld einnig gagnrýnt Bandaríkin fyrir að beita kínverskan banka refsiaðgerðum fyrir viðskipti sín við Norður-Kóreu, en Bandaríkjamenn segja bankann hafa stundað peningaþvætti fyrir út- lagaríkið. sgs@mbl.is Kvartar undan ögrunum  Xi Jinping ræddi við Trump í síma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.