Morgunblaðið - 04.07.2017, Side 19

Morgunblaðið - 04.07.2017, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2017 Sumarfjör í Grafarholti Emma Karen Helgadóttir notaði blíðuna um nýliðna helgi til að leika sér í busllaug. Það er gott að geta kælt sig aðeins með vatni þegar sólin skín sem heitast. Eggert Í aldarþriðjung hef- ur blasað við að dreif- ing alaskalúpínu hér- lendis stefndi gróður- ríki landsins í mikla hættu, sem erfitt gæti reynst að sporna við. Þessi stórvaxna og blómfagra tegund sem flutt var til landsins í góðri trú frá Alaska ár- ið 1945 hefur sem ágeng planta hérlendis reynst vargur í véum. Eftir að hafa komið sér fyrir og hafið fræmyndun dreifist hún hratt um auðnir og gróið land og gjörbreytir ásýnd þess og aðstæðum fyrir náttúrulega gróð- urframvindu. Frá aldamótum hefur verið heimilt að banna að flytja inn og rækta framandi plöntutegundir en þeim ákvæðum hefur lítið verið fylgt eftir í reynd. Enn framleiðir Landgræðsla ríkisins lúpínufræ til dreifingar undir merkjum land- græðslu. Skógræktin og tengdir að- ilar hafa lengi átt stóran hlut í dreif- ingu lúpínu um landið og með því skellt skollaeyrum við aðvörunum og augljóst vaxandi hættu. Þegar þann- ig er staðið að málum er skiljanlegt að almenningur sé ráðvilltur, og al- menn leiðsögn og fræðsla um gróð- urríkið er þess utan af skornum skammti. Horft frá hringveginum Umhverfi Reykja- víkur segir sína sögu um yfirtöku lúpínunnar og þeir sem aka hring- veginn árlega á blómg- unartíma hennar fá glögga mynd af hversu hratt hún breiðist út, t.d. á söndunum sunn- anlands og í Öræfum. Löngu er þekkt bar- áttan við lúpínu í Morsárdal sem dreifðist út frá einum hnaus sem þar var komið fyrir vorið 1954. Á Skeið- arársandi þar sem hægt er að fylgj- ast með og dást að sjálfgræðslu með birkinýgræðingi er lúpína nú að hefja sitt landnám. Stóralda framan við Svínafellsjökul er á röskum ára- tug orðin alþakin lúpínu og þaðan á hún greiða leið áfram vestur yfir þjóðgarðinn framan við Skaftafells- jökul. Klettabjörgin suður af Hofi í Öræfum, sumpart með fágætum tegundum eins og munkahettu, verða innan tíðar alþakin lúpínu sem þangað berst frá landgræðslusvæð- inu við Fagurhólsmýri. Sandar og aðrar jökulminjar eftir skriðjöklana sunnan Vatnajökuls eru meðal ein- stæðra verðmæta í jarðfræðisögu Íslands eins og skýrt er dregið fram í nýlegu riti David Evans, 2016: Vatnajökull National Park (South Region). Guide to a glacial landscape legacy. Kroppað hefur verið í slíkar minjar á nokkrum stöðum með efn- istöku, en alvarlegri ógn stafar þeim af því að lenda undir lúpínubreiður. – Staðan á Austfjörðum blasir við sjáendum, þar sem fjarðaþorpin eru flest þegar umkringd lúpínu, sem tekur yfir berjalönd og ógnar frið- lýstum svæðum eins og Hólmanesi og Fólkvangi Neskaupstaðar. Einna örust er útbreiðsla lúpínu víða fram með lækjum og ám, t.d. við Grímsá á Héraði og á Vesturlandi meðfram Norðurá og Hvítá í Borgarfirði. – Samkvæmt nýlegri kortlagningu Náttúrufræðistofnunar er lúpína nú talin þekja nær 400 ferkílómetra lands hérlendis og finnst hún í öllum landshlutum, m.a. á nokkrum stöð- um á hálendinu allt upp í 900 m hæð. Langmest er útbreiðslan á Suður- landi og Norðausturlandi, en minnst á Vestfjörðum. Sauðfjárbeit heldur henni niðri, m.a. í Húnaþingi, en hún tekur fljótt við sér ef beit leggst af. Fari fram sem horfir mun lúpína þannig á næstu áratugum leggja undir sig stóran hluta Reykjanes- skagans. Hættuspil sem verður að linna Náttúrufræðistofnun er fyrir Ís- lands hönd þátttakandi í samstarfs- verkefni þjóða í Norður-Evrópu um ágengar tegundir undir heitinu NOBANIS. Þar er mikill fróðleikur saman dreginn, sem undirstrikar að hér er alþjóðlegt og vaxandi vanda- mál á ferðinni, bæði varðandi jurta- og dýraríkið. Íslensk náttúruvernd- arsamtök hafa lengi gagnrýnt skort á árvekni gagnvart ágengum teg- undum og náttúrustofur landshlut- anna hafa reynt að hamla gegn út- breiðslu þeirra. Ljóst er að talsmenn Landgræðslu ríkisins gera sér nú, a.m.k. í orði, grein fyrir neikvæðum áhrifum alaskalúpínu á umhverfið (sjá heimasíðu LR, 22. jan. 2016). Þessu þarf að fylgja eftir með raun- verulegri stefnubreytingu þar sem lúpínan verði tekin af lista stofn- unarinnar sem æskileg landgræðslu- planta og hætt verði að nýta hana sem slíka. Áframhaldandi hlýnun hérlendis ýtir enn frekar undir út- breiðslu lúpínunnar, þar sem allt miðhálendið utan jökla getur fyrr en varir orðið vettvangur hennar, sé ekki rönd við reist. Fjölþætt úrræði þurfa að koma til Ágengar tegundir eru alþjóðlegt vandamál sem undirritaður hefur séð dæmin um erlendis allt frá Ír- landi til Suður-Afríku. Samning- urinn um verndun líffræðilegrar fjölbreytni myndar ramma til að hamla gegn dreifingu þeirra. Ísland sem eyland er um margt sérstætt og hrörnun gróðurvistkerfa landsins vegna ofnýtingar um aldir hefur skapað hér aðstæður sem kalla á sérstaka árvekni þegar innfluttar tegundir eiga í hlut. Brýnt er að stilla saman strengi opinberra aðila og almennings með fræðslu og fjöl- þættum aðgerðum. Lög og reglur hérlendis um samskipti manna við gróðurríkið eru í senn gloppótt og löngu úrelt. Líta þarf samþætt á gróður- og jarðvegsvernd og fella ákvæði um beit, landgræðslu og skógrækt undir heildstæð markmið með vistheimt og náttúruvernd að leiðarljósi. Aðeins þannig fæst sú sýn sem brýnt er að hafa að leið- arljósi gegn aðsteðjandi röskun vegna ágengra tegunda. Eftir Hjörleif Guttormsson » Þessi stórvaxna og blómfagra tegund sem flutt var til landsins í góðri trú 1945 hefur sem ágeng planta hér- lendis reynst vargur í véum. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Lúpínuplágan og framtíð gróðurríkis Íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.