Morgunblaðið - 04.07.2017, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.07.2017, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2017 Ármúla 24 - s. 585 2800 ÚRVAL ÚTILJÓSA Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Við ætlum að flytja lög með text- um eftir konur,“ segir Sara Bland- on söngkona sem kemur fram á tónleikum Freyjujazz ásamt Söru Mjöll Magnúsdóttur píanista í dag. Tónleikarnir hefjast að venju klukkan 12.15 í Listasafni Íslands, en Freyjujazz er á dagskrá alla þriðjudaga. Sara segir þær Söru Mjöll fyrst hafa kynnst í Tónlistarskóla FÍH. en þær séu nú saman í hljómsveit- inni Til trafala ásamt Ævari Erni Sigurðssyni bassaleikara og Skúla Gíslasyni trommuleikara. „Reyndar flytjum við eitt lag sem er ekki með texta eftir konu heldur eftir Davíð Stefánsson við lag eftir mig,“ segir Sara. Auk þess nefnir hún að á tónleikunum, sem eru í styttra lagi, verði lög eftir Billie Holiday og lag eftir Des’ree úr myndinni Romeo + Juliet eftir Baz Luhrmann. „Lag- ið, sem heitir „I’m Kissing You“ er reyndar ekki djasslag en það verður djassslegið hjá okkur á tónleikunum.“ Bjartasta vonin Sara var á árinu kjörin bjart- asta vonin í djass flokki á Íslensku tónlistarverðlaununum. „Það var rosalega mikill heiður að fá þessi verðlaun. Ég var afar upp með mér af því að ég er ekki mjög þekkt en fólk man aðeins meira eftir mér núna. Þetta var líka ágætis áminning um að gefast ekki upp heldur njóta þess að vera hluti af tónlistarbransanum,“ segir Sara, en um þessar mundir stund- ar hún nám í skapandi tónlistar- miðlun við Listaháskóla Íslands. „Ég er að kenna djasssöng og ryþmasöng við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, við deild sem kall- ast tónkvísl. Ég hef nóg fyrir stafni í því og er að gera allskonar skemmtilegt með vinum mínum. Það kemur svo bara í ljós hvað verður úr því,“ segir Sara Blandon að lokum. „Áminning um að gefast ekki upp“  Sara Blandon og Sara Mjöll Magnús- dóttir koma fram í Freyjujazzi í dag Ásýningunni Guð hvað mérlíður illa, sem stendur núyfir í öllum sölum Hafn-arhússins, hafa verið val- in saman verk listamannsins frá árinu 2004 til dagsins í dag, þar sem hann hyllir hinar fjölbreyttu birtingarmyndir listarinnar; leik- húsið, bókmenntirnar, kvikmynd- irnar, tónlistina og myndlistina. Þrír lifandi gjörningar fara fram á sýn- ingartímabilinu en auk þess má þar sjá málverk, ljósmyndir, högg- myndir, teikningar, myndbands- innsetningar auk skissubóka lista- mannsins. Verk Ragnars vísa gjarnan í leik- húsheiminn og á framhlið Hafnar- húss hefur verið komið fyrir mál- uðum eldtungum sem minna á sviðsmynd í leikhúsverki, og teygja sig upp eftir framhlið hússins. Eld- urinn hefur fylgt Ragnari lengi og skýtur upp kollinum í verkum hans af og til. Endurtekningin og tíminn er annar mikilvægur þáttur í list- sköpun Kjartans, gjörningar hans eru maraþonlist sem stendur yfir tímunum og jafnvel vikum saman. Þeir reyna bæði á þátttakendur og áhorfendur en um leið verða til tengsl þeirra á milli. A-salur á fyrstu hæð hefur verið tekinn undir lifandi gjörninga á sýningartímabilinu og sá fyrsti var „Til tónlistarinnar “ þar sem fimm pör óperusöngvara og píanóleikara fluttu lagið „An die Musik“ (1817) eftir Franz Schubert við róm- antískan texta Franz von Schober, samfleytt í átta daga á sama tíma og safnið er opið. Yrkisefni róm- antíkurinnar tekst á við marglaga tilfinningar þar sem ljóðskáldin yrkja um trega, þrá og depurð, allt í sama verkinu. Textinn er óður til tónlistarinnar þar sem þakkaðar eru þær stundir sem hún lyftir and- anum yfir amstur hversdagsins „frá drunga heims til drottins himin- vega“. Listafólkið dreypir á freyði- víni og nartar í jarðarber milli stríða. Sífella tónlistarinnar hefur seiðmagnandi áhrif, samkennd og nánd myndast bæði milli áhorfand- ans og listamannanna og líka milli áhorfendanna sem gleyma stað og stund og njóta upplifunarinnar. Til 3. september stendur yfir gjörningurinn „Kona í e-moll“. Á snúningspalli stendur glæsileg ung kona í gullpallíettukjól með raf- magnsgítar í hönd. Með reglulegu millibili slær hún á strengina og hinn tregafulli e-hljómur í magnast upp og ómar um salinn. Tjald úr gullstrimlum skermar konuna af og áhorfandinn getur smeygt sér inn fyrir og virt hana fyrir sér í návígi. Þar blasir hún berskjölduð við en um leið upphafin líkt og höggmynd af gyðju, hlutgerð en töff á sama tíma. Ragnar vinnur oft og tíðum með þversögnina í verkum sínum og það á sannarlega við hér. Fjöldi vatnslitaverka sem nefnast „Brúðkaupsnóttin“ (2015-2016), er af dökkleitum stjörnubjörtum himni á endavegg salarins og er nokkurs konar baksvið tveggja fyrstu gjörn- inganna. Þar endurtekur Ragnar viðfangsefnið aftur og aftur. End- urtekningin í athöfninni að mála sama viðfangsefnið er andstæða stöðnunar, hún á sér stað í veru- leikanum og er framkvæmd í tíma og hreyfingu. Stjörnubjartur nætur- himinn er eitthvað sem allir geta tengt við, hvenær og hvar sem þeir eru staddir í heiminum – sammann- leg upplifun sem getur lyft and- anum upp úr drunga heimsins líkt og í ljóði Schobers. Vatnslitaverkin hæfðu einstaklega vel sem bak- grunnur „Til tónlistarinnar“; þar náðist fallegt samspil milli verkanna en undir flutningi „Konu í e-moll“ næst ekki sama rómantíska teng- ingin, þar sem flæðið á milli verk- anna er rofið af gullstrimlunum. Spýtnabrak liggur á gólfi, það glittir í rautt flauel og gyllta snúru með dúski, marmaraskjöldur hangir Ljúfsár óður til listarinnar og lífsins Morgunblaðið/Golli Til tónlistarinnar Kristján Jóhannsson var einn þeirra söngvara sem tóku þátt í fyrsta lifandi gjörningi Ragnars á sýningunni í Hafnarhúsi. Hér sést Kristján syngja „An die Musik“ við opnun sýningarinnar 3. júní. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Guð, hvað mér líður illa bbbbn Sýning með verkum eftir Ragnar Kjart- ansson frá 2004 til dagsins í dag. Sýningarstjóri: Markús Þór Andrésson. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús. Til 24. september 2017. Opið alla daga frá kl. 10-17 og til kl. 22 á fimmtudögum. ALDÍS ARNARDÓTTIR MYNDLIST Stúka Hitlers Verk eftir Ragnar frá árinu 2006 byggir á leifum fyrrum einkastúku Hitlers í Admirals Palast leik- húsinu í Berlín. „Dýnamískt samtal verður til, minningar mannvonsku mannkynssögunnar gegn hversdagslegri endurnýjun innréttinga, samtal um list, vald, sögu og sviðsetningu kjarnast í þessu magnaða verki.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.