Morgunblaðið - 04.07.2017, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 185. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Innsýn í skemmtanalífið í LA
2. Sauðaþjófar skáru lamb á háls
3. Réðst að stýrimanni í Herjólfi
4. Skotum hleypt af á vinnustað …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Djassinn mun duna í kvöld á Kex
hosteli þegar flutt verður tónlist
sænsku söngkonunnar Monicu Zett-
erlund. Norski kontrabassaleikarinn
Andreas Dreier kemur fram á tónleik-
unum ásamt hljómsveit sem skipuð
er söngkonunni Gro Bjørnes, Andrési
Þór Gunnlaugssyni gítarleikara, Sig-
urði Flosasyni saxófónleikara og Ein-
ari Scheving trommuleikara en
Dreier sendi nýverið frá sér plötu
með tónlist Zetterlund. Á tónleik-
unum verður megináhersla lögð á lög
sem Zetterlund söng á sjöunda ára-
tug síðustu aldar en einnig blandast í
efnisskrána áhrif frá sænska saxó-
fónleikaranum Lars Gullin og banda-
ríska píanóleikaranum Bill Evans,
sem báðir tengdust Monicu.
Tónlist Zetterlund
leikin á djasskvöldi
Kammerkórinn Schola cantorum
heldur vikulega tónleika í hádeginu
á miðvikudögum í Hallgrímskirkju í
sumar og eru þeir liður í Alþjóðlegu
orgelsumri í kirkjunni. Kórinn mun
flytja fallegar íslenskar kórperlur í
bland við verk af nýjasta geisladiski
kórsins, Meditatio, sem sænska út-
gáfufyrirtækið BIS gaf út í fyrra. Að
loknum tónleikum verður boðið upp
á kaffi í safnaðarheim-
ili kirkjunnar. Tónleik-
arnir hefjast kl. 12
og miðaverð er
2.500 kr. Stjórnandi
kórsins frá upp-
hafi er Hörð-
ur Áskels-
son.
Kórperlur á Alþjóð-
legu orgelsumri
Á miðvikudag Suðaustan 8-13 m/s og rigning. Hægari vindur á
Norður- og Austurlandi, skýjað með köflum og stöku skúrir síðdeg-
is. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast fyrir norðan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Áfram hægur vindur í dag og líkur á skúrum
í flestum landshlutum. Hiti 8 til 16 stig.
VEÐUR
Leiknir Reykjavík varð í gær
síðasta liðið til að tryggja
sér sæti í undanúrslitum
Borgunarbikars karla í
knattspyrnu eftir 2:1-sigur
á ÍA í framlengdum leik á
Leiknisvelli. Þetta er í fyrsta
sinn sem Leiknismenn ná
svo langt í keppninni. Elvar
Páll Sigurðsson skoraði sig-
urmarkið sem tryggði
Leikni sæti í undanúrslitum
ásamt FH, Stjörnunni og
ÍBV. »2
Í undanúrslit í
fyrsta skipti
„Ég er með Kínamúr fyrir framan mig
og það er mjög sterkt hversu vel við
náum saman í öftustu línu. Það er
töluð enska, íslenska og spænska og
stundum mállýska sem ég veit ekki
alveg hver er en við skiljum hver
aðra, það er fyrir öllu,“ segir Bryndís
Lára Hrafnkels-
dóttir, mark-
vörður Þórs/
KA, toppliðs
Pepsi-deildar
kvenna. »4
Skiljum hver aðra og
það skiptir mestu máli
Kristján Flóki Finnbogason skaut FH
upp í þriðja sæti Pepsi-deildar karla í
knattspyrnu þegar hann skoraði
bæði mörkin í 2:1-sigri á Breiðabliki á
Kópavogsvelli. Þetta var fyrsti leikur
11. umferðar sem var flýtt og leikinn í
gær vegna Evrópuleikja FH-inga. Blik-
ar eru nú aðeins þremur stigum frá
fallsæti og möguleiki á toppbaráttu
orðinn fjarlægur. »3
Kristján Flóki skoraði
bæði mörkin í sigri FH
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslendingadagurinn á Gimli í Mani-
toba í Kanada er haldinn hátíðlegur
fyrstu helgina í ágúst og er fjölmenn-
asta hátíð fylkisins ár hvert. Kristine
Sigurdson, nýr framkvæmdastjóri
viðburðarins, segir að á döfinni sé að
auka enn tengslin
við Ísland og þá
vonandi í sam-
vinnu við íslensk
ferðamálayfirvöld
og ferðaskipu-
leggjendur á Ís-
landi.
Kristine er vel
þekkt í „íslenska“
samfélaginu á
Gimli. Hún rak
lengi gjafavöru-
verslun í bænum, er fyrrverandi for-
maður Verslunarsambands Gimli og
var framkvæmdastjóri kvikmynda-
hátíðar Gimli fyrstu árin, 2003 til
2010. Til að byrja með var kvik-
myndahátíðin samtímis Íslendinga-
dagshátíðinni, en verður 26.-30. júlí í
ár.
Víkingagarðurinn einstakur
Íslendingadagshátíðin fer nú fram
í 128. sinn og í 65. skipti á Gimli en áð-
ur var hún í Winnipeg. Þetta er engin
venjuleg bæjarhátíð heldur þver-
skurður af samfélaginu með íslensku
og kanadísku ívafi, en Kanada hélt
upp á 150 afmæli ríkisins sl. laugar-
dag. Dagskráin er í föstum skorðum,
en ætla má að hápunkturinn í ár verði
opnun á Víkingagarði með álfum og
tröllum sunnan við Betel, dval-
arheimili aldraðra. Hann verður samt
ekki endanlega tilbúinn fyrr en næsta
ár. „Þetta er viðamesta verkefni Ís-
lendingadagsnefndar og stjórnin hef-
ur unnið þrekvirki,“ segir Kristine,
en verkefnið er unnið í samvinnu við
bæjarstjórn Gimli. Kristine bætir við
að garðurinn eigi eftir að vera helsta
aðdráttarafl Gimli um ókomin ár og
tengja fólk enn fastari böndum.
Íslendingadagurinn er einn af
hornsteinum íslenska samfélagsins í
Manitoba og Kristine segir að hátíðin
sé hluti af lífi fólks. Hún sameini fjöl-
skyldur og vini, sem komi víða að,
ekki síst til þess að minnast íslenska
upprunans, en svo eigi allir sín
áhugamál. Sumir taki alltaf þátt í
keppninni í að byggja sandkastala,
aðrir hafi mestan áhuga á þjóðlegum
gildum, íþróttum, menningu og list-
um, en allir njóti flugeldasýning-
arinnar. „Dagskráin er fjölbreytt og
þar eiga allir að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi,“ segir hún. „Það má
líkja hátíðinni við köku. Það eru ekki
eggin, hveitið eða sykurinn sem gera
hana gómsæta heldur hvernig öll efn-
in tengjast.“
Þar kemur til kasta Kristine, því
sem framkvæmdastjóri heldur hún
um alla þræðina og sér til þess að
hlutirnir gangi upp. „Hátíðin hefur
gengið eins vel og raun ber vitni um
árabil vegna þrotlausrar vinnu
stjórnarmanna og annarra sjálf-
boðaliða,“ áréttar hún, en ótrúlega
margir leggja hönd á plóg.
Eitt af helstu markmiðum stjórn-
arinnar er að tengja hátíðina enn
frekar við Ísland. Kristine segir að þá
sé einkum verið að hugsa um að bjóða
upp á auknar upplýsingar um land og
þjóð. Í því sambandi nefnir hún al-
mennar leiðbeiningar til ferðamanna
og eins upplýsingar um hvernig fólk
geti aflað sér nánari þekkingar um
uppruna sinn, fjölskyldutengsl og
fleira.
Sérstakir heiðursgestir í ár frá Ís-
landi verða Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra, sem flytur minni
Kanada, og Heimir W. Hannesson,
formaður Þjóðræknisfélags Íslend-
inga.
Ísland í brennidepli á Gimli
Íslendingadag-
urinn í Manitoba í
Kanada í 128. sinn
Ljósmyndir/Jenna Boholij
Íslendingadagurinn Bílalestin liðast í gegnum Gimli og gestir raða sér upp beggja vegna alla leiðina.
Kristine
Sigurdson
Hátíð Uppruninn leynir sér ekki.