Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 12

Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017 ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL *Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf. Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is geoSilica kísilvatnið fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica. • Styrkir bandvefinn* • Stuðlar að þéttleika í beinum* • Styrkir hár og neglur* • Stuðlar að betri myndun kollagens fyrir sléttari og fallegri húð* EMILÍA KARLSDÓTTIR Ég hef tekið kísilinn í um það bil eitt ár. Ég fann fljótt að hann hafði góð áhrif á mig. Ég er betur vakandi og hef betra úthald. Hef verið með vefjagigt og veit hvernig orkuleysið fer með mann. Svo er það annar litli puttinn minn, sem ég klemmdi þegar ég var barn. Hann er bæklaður eftir það, og ég var með mjög mikla verki í honum. Svo tók ég allt í einu eftir því að verkirnir voru horfnir. Ég sleppti svo að taka inn kísilinn í einhvern tíma, og þá fór ég að finna fyrir verkjum aftur. Ég finn líka mun á hvað mér líður allri betur, er hressari. Það er eitthvað sem ekki er gott að útskýra. Takk fyrir mig. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég er í „musical-theater“skóla, þar sem ég læridans, söng, leik og fim-leika, en aðaláherslan er á dansinn, við lærum klassískan ball- ett, steppdans, hipphopp og fleiri dansstíla. Við erum aðeins hundrað nemendur við skólann, en fyrir vikið er mikil samheldni meðal okkar og ég hef eignast góða vini í hópnum. Þetta er dæmigerður breskur skóli þar sem er mikil reglufesta, við verðum að mæta hálftíma áður en skólinn byrjar á morgnana og við þurfum að vera í skólabúningum. Það er allt miklu frjálslegra í skólum hér á Íslandi,“ segir Rúnar Bjarna- son sem allan síðasta vetur var við nám í listaskólanum Tiffany Theatre College, sem er í Essex, rétt utan við London. Söng á íslensku í prufunni „Þetta á upphaf sitt í því að ég var einn af þeim sex strákum sem valdir voru til að æfa dans í hálft ár fyrir aðalhlutverkið í Billy Elliot, en danskennararnir sem þjálfuðu okk- ur voru frá Bretlandi, Elizabeth Greasley og Chantelle Carey. Þær hvöttu mig til að sækja um í skólum í Bretlandi og ég gerði það. Ég sótti um í nokkrum skólum og fékk inn- göngu í skólann þar sem Elizabeth er kennari,“ segir Rúnar sem þurfti að fara í prufur og sýna sig og sanna, syngja, dansa og leika fyrir kennar- ana. „Ég söng á íslensku lag úr Billy Elliot-sýningunni og þurfti að semja sjálfur dansatriðið mitt. Þetta var Flutti einn til Essex til að læra dans Hann dansaði á sviðinu með bandarísku söngkonunni Katy Perry þegar hún kom fram á Brits-tónlistarverðlaunahátíðinni í London þetta árið. Og fleiri spennandi verkefni munu efalítið koma í framhaldinu. Rúnar Bjarnason er í námi í Tiffany Theatre College í Bretlandi, en fólk leitar til skólans eftir dönsurum og söngvurum í ólíkustu verkefni. Ungir dansarar Rúnar ungur að árum á dansgólfinu að keppa í samkvæmis- dansi með dansfélaga sínum, Maríu Rán Högnadóttur. Ljósmynd/Fiona Whyte Photography Kraftur Rúnar á nemendasýningu skólans í júní í leikhúsi í London, en fólki frá umboðsskrifstofum er boðið og margir fá tilboð um vinnu í framhaldinu. Kramhúsið við Skólavörðustíg í Reykjavík hefur í meira en þrjátíu ár verið starfrækt fyrir alla þá sem hafa viljað hreyfa sig á skemmtilegan og skapandi hátt, sem nærir bæði lík- ama og sál, svo vitnað sé í heimasíð- una kramhusid.is. Í dag laugardaginn 15. júlí, kl. 12- 13, verður fyrsti tíminn í fjölskyldu- dansi sem til stendur að bjóða upp á alla laugardaga í sumar. Núna verður Birgitta með Beyoncé-dans en næsta laugardag ætlar Sandra að leiða fjöl- skylduafró. Sannarlega ástæða til að hvetja fólk til að nýta sér þetta, fara saman öll fjölskyldan og njóta sam- an. Sumardans í hádeginu á laugar- dögum er hugsaður fyrir fullorðna, börn og unglinga. Boðið verður upp á Beyoncé-dans, Bollywood-dans, magadans, zumba og afró, mismun- andi dansstíla eftir dögum. Allir vel- komnir, börn, konur og karlar. Vefsíðan www.kramhusid.is Reuters Beyonce Knowles Hver vill ekki læra að dansa líkt og þessi gyðja? Fjölskyldudans á laugardögum Getur vinnuumhverfi okkar haft áhrif á afköst okkar? Vissulega, segir Bambi George, starfsmaður tækni- fyrirtækisins Valorem í Missouri í Bandaríkjunum, í viðtali við BBC. Vinnuumhverfi hennar hér áður var lítil skrifstofa þar sem lítið sólskin komst að. Veggirnir voru gráir og rýmið takmarkað. Þegar höfuð- stöðvar Valorem voru fluttar um set kvað hins vegar við annan tón. Veggirnir voru litaðir grænir, bláir og gulir, auk þess sem sólarljós flæddi mun auðveldar um allt rýmið sem var mun stærra en í gömlu höfuðstöðvunum. Að mati Bambi er ástæða fyrir þessari hönnun. Hún er ætluð til þess að auðga hugmyndaflæði starfs- manna fyrirtækisins og auka þannig afköst þeirra. „Það er ekki aðeins að við höfum flust yfir í stærri skrifstofur, starfs- mennirnir eru mun öflugri og koma með mun fleiri og fjölbreyttari hug- myndir en áður.“ Og Bambi gæti haft rétt fyrir sér. Sífellt fleiri rannsóknir virðast benda til þess að bjartari og litríkari skrifstofa með hátt til lofts geti haft áhrif á hvernig við hugsum í vinnunni. Kay Sargent er yfirmaður hjá HOK, alþjóðlegu hönnunarfyr- irtæki og að hans sögn voru skrif- stofur HOK hannaðar til þess að starfsmenn væru sem afkastamestir, því fyrirtækið gerir sér grein fyrir þeim verðmætum sem liggja í öflug- um og hugmyndaríkum starfsmanni sem fær tækifæri til þess að leyfa sköpunargáfunni að njóta sín. Sum fyrirtæki hafa ekki enn áttað sig á þessu, en önnur keppast við að með- taka boðskap vísindanna. Bjartara vinnuumhverfi eykur sköpunarkraftinn Rými, birta og litir skipta máli Reuters Skrifstofa Bjart rými og mikil loft- hæð auðveldar fólki vinnuna. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Þorp eitt í Transylvaníu er líkt og það sé frosið í tíma. Þorpið, Picturesque Biertan, er einstakt að mörgu leyti en hestakerrur eru ennþá partur af dag- legu lífi íbúanna, auk þess sem fólk hittist ennþá á mörkuðum í mið- bænum til þess að skiptast á vörum. Sólin er reglulegur gestur í þessu fal- lega þorpi, sumir þorspbúar sitja úti, drekka bjór og spjalla á meðan bænd- ur flytja hey á milli bæja í hestakerr- um í gegnum bæinn. Bændurnir not- ast margir hverjir ennþá við alda- gamlar aðferðir við búskapinn og því er ekki ofsögum sagt að þetta litla fallega þorp minni um margt á gamla tíma. Þetta kemur fram á vef BBC. Í hjarta þorpsins stendur gullfalleg fimmtándu aldar kirkja sem gnæfir yfir og er vel sýnileg frá flestum hól- um og hæðum allt í kring. Inn í einni af níu byggingum kirkjunnar sem standa allt í kringum kirkjuturninn, má hins vegar finna lítið herbergi með þykkum veggjum, varla stærra en meðal matarbúr, sem gegnir afar óvenjulegu hlutverki. Í yfir 300 ár voru hjón, sem af einhverjum ástæð- um voru á barmi skilnaðar, sett í þetta herbergi þar sem þau voru læst inni í hátt í sex vikur í senn, og var það biskupinn á staðnum sem sá um þann gjörning. Allt var þetta gert í þeirri von að hjónin næðu á endanum að leysa úr ágreiningi og koma þannig í veg fyrir mögulegan skilnað. Þessi aðferð hljómar kannski eins og martröð en tölfræðin sýnir þó að þetta virðist hafa virkað. „Þökk sé þessari blessuðu bygg- ingu, þá höfðum við aðeins einu sinni á 300 árum, fengið til okkar hjón sem enduðu á því að skilja eftir dvölina í herberginu,“ fullyrti Ulf Ziegler, nú- verandi prestur í þorpinu. Í dag er herbergið orðið að safni. Þar má finna tvær gínur sem tákna þau hjón sem dvöldu í herberginu, ásamt borði og stól, lítilli kistu fyrir föt og annað slíkt, sem og rúm sem er ekki mikið stærra en barnarúm. Fyrir þau hjón sem freistuðu þess að bjarga hjónabandi sínu með því að dvelja í herberginu, var þetta það eina sem var í boði. Það þýddi að þau þurftu að deila öllu, allt frá kodda og teppi, yfir í þetta eina litla borð. Lútherstrú er allsráðandi á þessu svæði í Transylvaníu, og þó að lög- skilnaður hafi verið leyfilegur undir sérstökum kringumsstæðum, til dæmis ef hjúskaparbrot var framið, Íbúar sveitaþorps í Transylvaníu fóru óhefðbundnar leiðir til að koma í veg fyrir hjónaskilnaði Hjónafangelsið í Transylvaníu kom í veg fyrir marga skilnaði Reuters Trú Biskup staðarins sá um að læsa hjón inni í allt að sex vikur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.