Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 47

Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Tónlistarnámskeið Red Bull Music Academy (RBMA) urðu vel kunn landsmönnum í fyrra þegar Íslend- ingur, Auðunn Lúthersson, sem gengur undir listamannsnafninu Auður, var valinn til þátttöku. Í ár má gera ráð fyrir að RBMA verði enn sýnilegra því akademían ætlar að halda reglulega tónlistarvið- burði, svokölluð RBMA-klúbba- kvöld, á nokk- urra mánaða fresti til að vekja áhuga tónlistar- manna hér á landi á næsta tónlistarnám- skeiði sem verð- ur haldið í Berlín árið 2018. RBMA hefur boðið bandaríska plötusnúðnum DJ Earl til landsins og mun hann þeyta skífum á klúbbakvöldi Húrra í kvöld. Auk þess mun DJ Earl bjóða upp á opna vinnusmiðju fyrr um daginn til að kenna áhugasöm- um dansstefnu sína, svokallaða fótafimi („footwork“). Djass, fönk og hipphopp „Fótafimi felst aðallega í mjög hröðum takti,“ segir Einar Stef- ánsson sem stendur fyrir skipu- lagningu viðburðarins. „Svo er þungur bassi og bland af djassi og fönktónlist. Kannski svona hörðum hljómgerðum. Svo er líka svolítið hipphopp í þessu. Hver er nátt- úrlega með sinn eigin stíl.“ Einar segir að íslenskir fulltrúar fótfimihreyfingarinnar líti einnig við í vinnusmiðjunni, Plútó-flokk- urinn sem er samsafn reyndustu plötusnúða Íslendinga og þekktir fyrir afar vel heppnuð klúbba- kvöld. „Við ætlum að halda reglulega þessi RBMA-klúbbakvöld,“ segir Einar. „Reyna að vekja svolitla vitund á akademíunni í íslensku tónlistarlífi þar sem þetta er mjög skemmtileg hugmynd. Í hvert skipti flytjum við inn að minnsta kosti einn erlendan tónlistarmann sem tengist akademíunni á ein- hvern máta ásamt einhverjum ís- lenskum listamönnum. Fyrsta RBMA-klúbbakvöldið var núna í maí á Kex hosteli, með henni Sef- valizu sem er írönsk en uppalin og búsett í Hollandi. Þar komu líka fram Sturla Atlas, Cyber, For- gotten Lores og fleiri. Þessi sería okkar heldur síðan áfram á nokk- urra mánaða fresti.“ Stökkpallur „Það hefur alltaf verið þessi tenging bæði við jaðaríþróttir og við menningu, kúltúr og tónlist,“ segir Einar til útskýringar á að- komu Red Bull, sem er betur þekkt sem orkudrykkjaframleið- andi, að tónlistarsenunni. „Red Bull hefur einhvern veginn alltaf haft þá ímynd að tengja sig mikið við tónlistarfólk og svo þessar skrýtnu jaðaríþróttir. Tónlistar- akademían sjálf er alltaf haldin í mismunandi borgum og við komum að henni sem fulltrúar Red Bull á Íslandi. Við hvetjum sem flesta til þess að sækja um því þetta getur verið virkilegur stökkpallur fyrir upprennandi tónlistarfólk eins og þetta var fyrir hann Auðun Lúth- ers. Þegar hann kom úr þessari akademíu var hann á vörum allra og það var mikill spenningur í kringum hann. Svo gaf hann út þessa plötu fyrr á árinu og fékk al- veg frábæra dóma.“ Verkstæði DJ Earl verður opnað kl. 16 og klúbbakvöldið kl. 23. Að- gangur er ókeypis. Mjög hraður taktur í fótafimi  DJ Earl kemur fram á Húrra í kvöld DJ Earl Bandaríski plötusnúðurinn er sagður í fremstu víglínu Chicago danssenunnar. Einar Stefánsson Á næstu tónleikum Pikknikk- tónleikaraðar Norræna hússins mun koma fram unga hljóm- sveitin RuGl. Tónleikarnir fara fram á morgun, sunnudag, og hefjast klukkan 15. Þeir fara fram í gróðurhúsi Norræna húss- ins og er aðgangur ókeypis. Hljómsveitin RuGl er skipuð tveimur 16 ára stúlkum, þeim Ragnheiði Maríu Benediktsdóttur og Guðlaugu Fríðu Helgadóttur. Sú fyrrnefnda spilar á píanó og slagverk en sú síðarnefnda syng- ur og leikur á gítar. RuGl kom fyrst fram á sjón- arsviðið í Músíktilraunum í fyrra þar sem hún komst í úrslit, vakti talsverða athygli og var tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna í ár sem Bjartasta vonin. „Þetta verða lögin sem okkur þykir vænst um og svo eitt nýtt lag sem við sömdum fyrir viku,“ segir Guðlaug. Þær Ragnheiður semja öll lögin sín sjálfar en Guðlaug segir það alltaf koma rangt út þegar hún reynir að lýsa tónlistinni þeirra. „Við erum líka mikið í þróun, fyrsta lagið okkar er allt öðruvísi en það nýjasta. En þetta er ein- hverskonar indie-tónlist.“ Þetta verða síðustu tónleikar RuGl í bili vegna þess að Guðlaug er að flytja til Danmerkur í næstu viku. „Við erum ekki hætt- ar. Við ætlum að spila á Airwa- ves og Ragnheiður kemur í heim- sókn til mín til Danmerkur þar sem við ætlum að æfa okkur,“ segir Guðlaug að lokum. thorgerdur@mbl.is „Lögin sem okkur þykir vænst um“ Bjartar vonir Gunnhildur og Ragnheiður eru aðeins 16 ára gamlar. Auður Ómarsdóttir opnar einka- sýninguna Man I Feel Like a Wom- an í galleríi Hvítspóa á Akureyri í dag klukkan 15. Samkvæmt tilkynningu er Auður fyrst til þess að sýna í nýju sýning- arrými gallerís Hvítspóa, en það er rekið af Önnu Gunnarsdóttur lista- konu. Nafnið á sýningunni vísar í lag eftir Shaniu Twain og þar má sjá verk sem bera keim af klassískri grísk-rómverskri listasögu en einn- ig karllægum heimi nútíma bygg- ingariðnaðar. Verkin á sýningunni eru teikningar, málverk og skúlp- túrar sem eru unnir úr fundnum hlutum. Auður útskrifaðist úr myndlist- ardeild Listaháskóla Íslands árið 2013 og er þetta sjötta einkasýning hennar eftir útskrift. Sýning í nýju galleríi á Akureyri Morgunblaðið/Sigurgeir S. Kona Auður Ómarsdóttir mun opna sína sjöttu einkasýningu eftir útskrift. Hljómsveitin Blakkát gaf út sína fyrstu plötu í mars síðast- liðnum og ætlar að fagna henni með útgáfu- tónleikum á Gauknum í kvöld klukkan 21.30. Platan var gef- in út á vegum Starmýri Re- cords og ber heit- ið Bíbí & Blakkát. Samkvæmt til- kynningu verður platan til sölu á staðnum á svokölluðum „mini-vínyl“ eða „mínyl“ sem þurfti sérstaklega þróa til að grípa hinn nýja og sérstaka hljóm plötunnar. Hljómsveitina Blakkát skipa þeir Ísak Örn Guðmundsson, Leó Ingi Sig- urðsson, Hrafnkell Már Einarsson, Höskuldur Eiríksson og Jóhann Jóns- son. Fyrir tónleika sveitarinnar munu tónlistarmaðurinn Sveinn Guð- mundsson og hljómsveitin Quest hita upp gesti. Útgáfutónleikar Bíbí og Blakkát Veisluhöld Viðbúin, tilbúin, Blakkát. Breska leik- konan Sophie Turner, sem leik- ur Sönsu Stark í þáttaröðinni Game of Thrones sem hefst aftur á sunnudag, sagði í nýlegu viðtali við tímaritið Elle að Sansa yrði óviðkunnanlegri í sjöundu seríu. Turner segir Sönsu loks vera komna með völd sem hún kunni ekki með að fara og því missi hún svolítið móðinn. Hún segir mjög áhugavert að sjá hana svoleiðis því hún hafi verið svo sterk í undan- förnum seríum. Fyrsti þáttur sjö- undu þáttaraðar var forsýndur fyr- ir útvalda í L.A. á miðvikudagskvöld . Óviðkunnanleg Sansa Stark Sansa Stark SÝND KL. 2, 8, 10.20 SÝND KL. 6, 9 SÝND KL. 10.40 SÝND KL. 5, 8 Miðasala og nánari upplýsingar 5% ÍSL. 2D KL. 2, 4, 6 ENSK. 2D KL. 2, 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.