Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 28

Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017 Kveð þig með söknuði, kæra Jó- hanna amma. Við kveðjustund kemur margt upp í huga. Ég naut þess að vera elsta barnabarn Jóhönnu og Victors. Foreldrar ömmu fluttust til Vestmannaeyja frá Steinum undir Eyjafjöllum. Í Vestmannaeyjum fæddist amma og var hún fjórða elst af tíu systkinum og önnur af tveimur systrum auk átta bræðra kennda við Reyki á Vestmanna- braut. Amma var alla tíð mikill Vest- mannaeyingur. Amma taldi það sjálfsagt að börn hennar og barna- börn litu einnig á sig sem Vest- mannaeyinga, þrátt fyrir að eng- inn okkar hafi fæðst í Vestmannaeyjum eða nokkru sinni búið þar. Hugur ömmu leit- aði oft til Eyja og talaði hún ætíð um Vestmannaeyjar sem sitt heimili, þrátt fyrir að hafa flutt upp á land 1946. Var hún alltaf í góðu sambandi við fólk sitt í Eyj- um og fylgdist vel með ættingjum sínum og vinum þrátt fyrir að búa ekki lengur þar og að hafa flust þaðan fyrir mörgum árum. Það gladdi hana mikið þegar að Reyk- irnir, æskuheimili hennar varð áfram í eigu ættingja eftir að hún og bræður hennar seldu Reykina. Amma starfaði í mörg ár sem sjúkraliði og var það örugglega ekki auðvelt starf. Hún kenndi mér mikilvægi þess að koma fram við aðra, eins og maður óskar sjálfur að aðrir komi fram við mann sjálfan. Fjölskyldan var ömmu minni mjög kær og fylgdist hún vel með öllu sem var að gerast hjá fjöl- skyldunni. Amma naut þess að gera upp bústaðinn á Stokkseyri. Sérstak- lega var gaman að koma þar í heimsókn eftir að amma og afi hættu að vinna. Ekki skorti heldur verkefnin, þegar bústaðurinn var allur tekinn í gegn fyrir nokkrum árum. Ekki var eitt tré á lóðinni fyrir nokkrum árum og var oft tal- að um að tré þrifust ekki svona ná- lægt sjónum. Í dag sést varla í bú- staðinn frá götunni fyrir trjám. Rétt áður en ég fæddist flutti fjölskyldan á Fellsmúlann og Jóhanna Guðjónsdóttir ✝ Jóhanna Guð-jónsdóttir fæddist 5. júní 1922. Hún lést 26. júní 2017. Útför Jóhönnu fór fram 6. júlí 2017. bjuggu amma og afi þar, allt þar til að amma var orðin ekkja og þurfti að komast í lyftuhús og flutti hún þá á Strik- ið í Garðabæ. Bergþóra langamma bjó oft hjá ömmu og afa auk þess sem amma hugsaði vel um Önd- ísi langömmu og Sölu frænku. Er ég ríkari eftir að hafa fengið að kynnast þeim og mörgum öðrum úr umhverfi ömmu og afa á Fellsmúlanum. Elsku amma, þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við átt- um saman og þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mun ég ætíð geyma minninguna um góða ömmu í hjarta mínu. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Victor Þór Sigurðsson. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Jóhanna frænka hefur kvatt okkur eftir langa og viðburðaríka ævi og stórt skarð er nú komið í fjölskylduna. Minningarnar streyma um hugann og söknuður- inn er mikill. Með þessum orðum vil ég kveðja hana í hinsta sinn. Jóhanna föðursystir mín var gull af manneskju, einstök, hlý, ljúf og góð uppáhaldsfrænka sem breiddi faðm sinn yfir fjölskyld- una og mér þótti alltaf svo mikið vænt um. Hún kenndi mér margt í gegnum lífið og var alltaf til staðar fyrir „strákana sína“ (bræður sína) og fjölskyldur þeirra. Hún mátti ekkert aumt sjá og reyndi alltaf að líta á björtu hliðar lífsins og leggja öðrum lið ef hún mögu- lega gat. Hún kvartaði sjaldan þótt hún hefði upplifað ýmsa erf- iðleika og áföll á langri ævi. Hún var ákveðin og hreinskilin en jafn- framt ráðagóð, hjálpsöm og hjartahlý. Jóhanna frænka var einstak- lega gestrisin og góð heim að sækja. Fátt þótti henni skemmti- legra en að taka á móti gestum og ósjaldan voru tekin upp spil sem var eitt af því skemmtilegasta sem hún gerði ásamt því að prjóna og skoða nýjar mataruppskriftir og prófa þær, svo eitthvað sé nefnt. Fyrir yngstu kynslóðina lumaði Jóhanna frænka á hlýjum Jó- hönnusokkum, kubbum og forláta dótakassa sem gat fangað athygli barna svo tímunum skipti. Það var ávallt glatt á hjalla í þessum heim- sóknum og hlý nærveran og um- hyggjan leyndi sér ekki. Elsku Jóhanna, margar ljúfar minningar eru tengdar þér, jafnt úr barnæsku sem og á síðari ár- um. Skemmst er þó að minnast þegar öll fjölskyldan kom saman nú í byrjun júní í tilefni af 95 ára afmælinu þínu þér til heiðurs. Af- mælið lukkaðist vel og þú varst hrókur alls fagnaðar með alla þína nánustu í kringum þig. Þú varst stolt af fólkinu þínu. Elskaðir og umvafðir fjölskyldu þína, bræður þína og fjölskyldur þeirra og slepptir í raun aldrei af þeim hendinni. Nú er komið að kveðjustund. Viljum við fjölskyldan þakka þér samfylgdina og biðjum góðan Guð að geyma þig og varðveita. Við viljum kveðja þig með fallega ljóð- inu frá Eyjum, „Góða nótt“. Dagurinn kveður, mánans bjarta brá blikar í skýja sundi. Lokkar í blænum, leiftur augum frá, loforð um endurfundi. Góða nótt, góða nótt, gamanið líður fljótt, brosin þín bíða mín, er birtan úr austri skín. Dreymi þig sólskin og sumarfrið, syngjandi fugla og lækjarnið. Allt er hljótt, allt er hljótt ástin mín, góða nótt. (Ási í Bæ) Hvíldu í friði, elsku frænka, og takk fyrir allt sem þú gafst okkur með nærveru þinni. Minning þín er ljós í lífi okkar. Svandís Þórhallsdóttir og fjölskylda. Við sem byggjum þessa jörð og njótum lífsgæða hennar hljótum að vera þeim þakklát sem hafa lagt grunninn að því sem við eig- um í dag. Ef við lítum til baka nokkra tugi ára verðum við þess áskynja svo um munar að þar var oft lítið til skiptanna og minna úr að moða. Fyrir líklega um 30 árum síðan kynntist ég þeim hjónum Victori og Jóhönnu sem bjuggu stærstan part ævi sinnar í Hreyf- ilsblokkinni þar sem ég var að bera mig upp við núverandi eig- inkonu mína Málfríði Sjöfn. Æskuvinkona Málfríðar Sjafnar er einmitt Bergþóra Victorsdóttir sem er ein barna Jóhönnu og Vic- tors. Eiginmaður Jóhönnu sem við nú kveðjum yfirgaf jarðvistina á miðju ári 2010. Þau hjónin Jó- hanna og Victor voru alla tíð afar náin og samrýnd hjón þótt vissu- lega megi segja að Victor hafi haft það hlutskipti að bera björg í bú á meðan Jóhanna sá um heimilið og uppeldi barnanna þó að reyndar megi því við bæta að Jóhanna vann vaktavinnu sem sjúkraliði á Kleppsspítala og á Landspítala um árabil. Það var því mikið tekið frá Jóhönnu þegar Victor heitinn féll frá. Börn þeirra Jóhönnu og Victors eru fjögur talsins og eru þau öll í blóma lífsins í dag. Mikil vinátta hefur verið á milli okkar hjóna og Bergþóru og Æv- ars enda bjuggum við um árabil í nágrenni við þau á Ártúnsholtinu. Þar fengum við Málfríður oftsinn- is að vera viðstödd mannamót í fjölskyldunni þeirra þar sem Jó- hanna og Victor voru yfirleitt við- stödd og ekki þurfti mikið að velta fyrir sér hverjir væru þar sannir ættarkóngar. Þar mátti glöggt sjá hve vel þau Jóhanna og Victor höfðu undirbyggt uppeldi barna sinna og búið þau út til þess lífs sem þau nú eru þátttakendur í. Í minningunni lifa samtöl við þau hjónin, Jóhönnu og Victor, þar sem endminningar úr lífsskeiði þeirra voru vaktar til lífsins að nýju. Þær voru ógleymanlegar sögurnar sem Victor sagði af fjallaferðum sínum en hann starf- aði um árabil sem rútubílstjóri hjá Vestfjarðarleið einkum við fjalla- ferðir ýmsar. Þau hjónin voru alla tíð mikið reglufólk og lögðu sig fram um að samverustundir stór- fjölskyldunnar yrðu sem flestar. Jóhanna bjó seinustu árin í sam- býli eldra fólks í Garðabænum en börnin stóðu dyggilega við hlið móður sinnar sem upplifði ein- semd eftir missi Victors. Við hjón- in viljum senda fjölskyldunni inni- legustu samúðarkveðjur um leið og við horfum á bak Jóhönnu Guð- jónsdóttur sem skilur eftir sig góðar endurminningar. Hún er nú gengin til síns manns sem án efa hefur beðið hennar. Eftir lifir minningin um yndisleg hjón. Málfríður Sjöfn og Sigurþór. Ég var svo lánsöm að kynnast Jóhönnu fyrir 35 árum þegar ég hóf störf á deild 32C á Landspít- alanum. Þarna kynntist ég einnig mínum helstu fyrirmyndum í hjúkrun og góð vinátta myndaðist sem hefur haldist fram á þennan dag. Jóhanna var ein af þessum einstöku konum sem umvafði allt og alla með kærleik og umhyggju- semi hvort sem það voru sjúkling- ar eða starfsfólk. Einnig átti hún einstaklega gott með að komast í samband við fólk þó það væri al- varlega veikt og margir skjólstæð- ingar hennar minnast hennar enn þann dag í dag með miklu þakk- læti og hlýju. Oft gaukaði hún ýmsu að þeim sem bjuggu við erf- ið kjör og fyrir sjúklinga sem stóðu höllum fæti í lífinu var það ómetanlegt að finna þessa hlýju og ekki síst að þeir skiptu máli, kannski í fyrsta sinn á lífsleiðinni. Jóhanna var alltaf sívinnandi hvort sem hún var heima eða í vinnunni og var einstaklega flink í höndunum. Hún kenndi t.d. mörg- um að prjóna sem oft skilaði sér í meiri innri ró og friðsæld á erf- iðum stundum. Einnig var hún sjálf einstaklega gjafmild á handa- vinnuna sína og óteljandi litlir fæt- ur fengu listilega útprjónaða sokka sem margir geyma sem dýrgripi í dag. Við Jóhanna tengdumst sterk- um böndum og naut ég ávallt um- hyggju hennar og hlýju. Þennan kærleika yfirfærði hún á börnin mín og barnabörnin eiga öll sokka frá henni. Þó að við ynnum ekki lengur saman vorum við ávallt í góðu sambandi og einnig höfum við sem unnum saman á 32C hald- ið hópinn og hist reglulega í mörg ár. Seinustu árin átti Jóhanna orð- ið erfitt með að koma, en hún fylgdist vel með hópnum og naut þess að „stelpurnar“ heimsæktu hana eða hringdu til hennar. Ég á margar góðar minningar frá heimsóknum mínum til hennar í gegnum árin. Ein þeirra er frá síð- astliðnu sumri þar sem við sátum með kaffibolla á svölunum hennar í einstaklega fallegu veðri. Þó að hún væri komin á tíræðisaldur var ekkert að minninu og hún fylgdist vel með. Við rifjuðum upp gamlar sögur og hlógum og eins og vana- lega lituðust samræðurnar af von hennar um að öllum liði vel og allt væri í lagi. Ég sá Jóhönnu í síðasta sinn fyrir mánuði en þá hélt hún stórveislu fyrir fjölskyldu og vini í tilefni af 95 ára afmælinu sínu. Það er gott að eiga þessa góðu minningar og hafa náð að koma og fagna með henni á þessum tíma- mótum. Vinkvennahópurinn kveður í dag kæra vinkonu með söknuði en jafnframt djúpu þakklæti fyrir all- ar góðu stundirnar í gegnum árin. Hugur okkar allra og samúð er hjá fjölskyldu Jóhönnu sem henni þótti svo óendanlega vænt um. Blessuð sé minning hennar. Rósa María. Ég hitti Friðrik ekki svo oft en þegar ég hitti hann var það oftast meðan ég var hjá systur hans, langömmu minni, Ragnheiði. Ég man ekki eftir atvikum þar sem hann var ekki með bros á vör eða nær því. Ég man best eftir honum sem voða hressum gömlum manni, lík- amlega og andlega, og virtist hafa nóg af heilsu. Hann sagði mér oft skemmti- legar sögur af því sem hann var að gera eða sögur af einhverju sem einhverjir sem hann þekkti gerðu. Friðrik Júlíus Jónsson ✝ Friðrik JúlíusJónsson fædd- ist 5. október 1918. Hann lést 12. júní 2017. Friðrik var jarð- sunginn 22. júní 2017. Friðrik spurði líka um hvað ég væri að gera í lífinu og hvort mér gengi ekki vel. Hann spurði allt- af þegar ég hitti hann hvort það væri ekki allt fínt á milli mín og langömmu minnar Ragnheiðar og alltaf svaraði ég að það væri allt í besta á milli okkar, sem lét hann brosa í hvert skipti þar sem hann vissi hve nánar ég og langamma mín vorum. Þegar Friðrik talaði við mig um hina ýmsu hluti gat ég ekki annað en hlustað, hann hafði svo mikið af áhugaverðum hlutum til að tala um og var vel til í að segja frá sömu hlutum aftur ef ég bað um það. Ég sendi fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur. Tara Þöll Danielsen Imsland. FALLEGIR LEGSTEINAR Verið velkomin Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á GÓÐU VERÐI Þökkum auðsýnda samúð við fráfall elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÞÓRIS ÞÓRÐASONAR leigubílstjóra, Kópavogstúni 5, áður til heimilis að Safamýri 83. Ingibjörg Einarsdóttir Þórður Þórisson Unnur Jónsdóttir Einar Þórisson Ólafía Sigurjónsdóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, amma og langamma, GUÐLAUG HARALDSDÓTTIR, Grensásvegi 58, Reykjavík, lést á líknardeild LSH í Kópavogi fimmtudaginn 22. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar Rvk. svo og Karítas heimahjúkrunar og líknardeildar LSH í Kópavogi fyrir hlýhug og góða umönnun. Nína Margrét Perry Barbara Ann Howard ömmubörn og langömmubörn Móðir okkar, SIGRÍÐUR BREIÐFJÖRÐ PÁLSDÓTTIR íþróttakennari, Hömrum, Grundarfirði, lést á Borgarspítalanum 11. júlí. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 17. júlí klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á SOS barnahjálp eða líknarfélög. Ólöf Guðmundsdóttir Huber Kristín Helga Guðmundsdóttir Guðmundur Páll Guðmundsson tengdabörn og barnabörn Ástkær móðir okkar, HALLA KJARTANSDÓTTIR, fyrrverandi bóndi og veðurathugunarkona, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ miðvikudaginn 12. júlí. Útförin fer fram í Valþjófsstaðarkirkju laugardaginn 22. júlí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Skógarbæjar: kt. 530596-2739, reikn. 537-04-1220. Þórhalla Guðmundsdóttir Beck Sólveig Guðmundsdóttir Beck Hallfríður Guðmundsdóttir Beck Inga Mekkin Guðmundsdóttir Beck tengdabörn og barnabörn Okkar ástkæra ÁSTA HERMANNSDÓTTIR, Norðurbrún 1, lést mánudaginn 10. júlí á Vífilsstöðum. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 18. júlí klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Ástþór Harðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.