Morgunblaðið - 15.07.2017, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017
15. júlí 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 107.83 108.35 108.09
Sterlingspund 138.71 139.39 139.05
Kanadadalur 83.41 83.89 83.65
Dönsk króna 16.603 16.701 16.652
Norsk króna 13.043 13.119 13.081
Sænsk króna 12.803 12.879 12.841
Svissn. franki 111.96 112.58 112.27
Japanskt jen 0.9497 0.9553 0.9525
SDR 149.88 150.78 150.33
Evra 123.48 124.18 123.83
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 146.2898
Hrávöruverð
Gull 1218.95 ($/únsa)
Ál 1910.5 ($/tonn) LME
Hráolía 47.7 ($/fatið) Brent
● Velta í bílaleigu nam 48 milljörðum
króna og jókst um 25,2% á tímabilinu
maí 2016 til apríl 2017, miðað við síð-
ustu tólf mánuði þar á undan. Nemur
velta í bílaleigu nú svipaðri fjárhæð og í
landbúnaði, þar sem velta nam 51 millj-
arði króna. Þetta má lesa út úr tölum
upp úr virðisaukaskattsskýrslum sem
Hagstofan hefur birt. Velta í rekstri
gististaða og veitingarekstri jókst um
25,9% á milli tímabilanna.
Bílaleigur velta nær jafn
miklu og landbúnaður
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Emil Karlsson, forstöðumaður Rann-
sóknaseturs verslunarinnar, telur að
stórverslun Costco gæti náð 4-8%
hlutdeild á íslenska dagvörumark-
aðnum „Ef maður horfir til Skandin-
avíu og nýrrar rannsóknar sem ég
hef skoðað frá Bandaríkjunum þá
hafa sambærilegar ofur-lágvöru-
verðsverslanir í Skandinavíu náð
markaðshlutdeild á bilinu 4-8% og í
Bandaríkjunum er sú tegund versl-
unar eins og Costco er með um 8%
hlutdeild. Af þessu má draga þá
ályktun að Costco gæti náð hér 4-8%
hlutdeild,“ segir Emil í samtali við
Morgunblaðið.
Spurður um möguleg áhrif slíkrar
hlutdeildar á aðra verslun í landinu
segir Emil að líklega myndu smærri
aðilar verða fyrir mestum áhrifum,
enda eigi þeir erfiðara með að mæta
samkeppninni.
Rannsóknasetur verslunarinnar
birti í gær nýjar tölur um veltu dag-
vöru í júní miðað við sama mánuð í
fyrra, en þar kemur fram að sam-
dráttur varð upp á 3,6%. „Það er
greinilegt að Costco hefur mikil áhrif
og er að klípa af markaðshlutdeild-
inni. Sömuleiðis er athyglisverð verð-
lækkunin sem orðið hefur á matvöru
á milli ára,“ segir Emil, en verð á
dagvöru var 3,9% lægra í júní síðast-
liðnum en í júní í fyrra samkvæmt
verðmælingu Hagstofunnar.
Í frétt Rannsóknasetursins segir
einnig að síðastliðin ár hafi vöxtur í
veltu dagvöruverslana verið nokkuð
stöðugur og samdrátturinn nú sé því
nokkuð úr takti við þá þróun.
Costco gaf ekki upplýsingar
Í frétt Rannsóknasetursins er sér-
staklega tekið fram að Costco sé ekki
með í mælingu á dagvöruveltunni,
heldur aðeins þær verslanir sem voru
á markaði fyrir komu verslunarris-
ans. Costco hafi kosið að veita ekki
upplýsingar um veltu sína þegar eftir
því hafi verið leitað.
„Við áttum fund með Costco og
þeir sögðu að það væri stefna hjá
þeim að veita engar upplýsingar,
a.m.k. ekki þetta snemma eftir opnun
verslunarinnar. Þeir sögðu að Ísland
væri svo sérstakt, og allt væri enn
nýtt fyrir þeim hér,“ sagði Emil og
bætti við að áfram yrði reynt að fá
sölutölur frá versluninni.
Emil segir að athyglisvert sé í töl-
um Rannsóknasetursins að greinilegt
sé að ekki hafi orðið sömu verðlags-
áhrif á markaðnum þar sem sam-
keppni er ekki eins mikil og í dagvör-
unni. „Ég held að allir séu sammála
um að samkeppnin hefur mikil áhrif.
Samkeppni er til dæmis ekki eins
mikil í fatnaði og byggingarvörum,
sem sést þá á því að verðlækkun þar
er minni, eða 2,5% og 1,3% milli ára.“
Emil segir einnig að fataverslun
hafi ekki náð sér á strik eftir efna-
hagshrunið, en þá hrundi fataverslun
hér á landi. „Nú dregst hún enn
meira saman, en þetta ætti að vera
góður jarðvegur fyrir H&M sem opn-
ar sínar verslanir hér á landi í haust.“
Fataverslun dróst saman sam-
kvæmt tölum Rannsóknasetursins
um 18,2% í júní frá sama mánuði í
fyrra á breytilegu verðlagi, og á föstu
verðlagi dróst hún saman um 16,1% á
milli ára.
Mikil verðlækkun á húsgögnum
Í frétt Rannsóknasetursins segir
að fataverslun hafi í auknum mæli
færst til útlanda, bæði með auknum
ferðalögum landsmanna til annarra
landa svo og vegna mikillar aukning-
ar í netverslun með föt frá útlöndum.
Mikil verðlækkun húsgagna vekur
einnig athygli, eða 7,7% milli ára.
Emil segir aðspurður að ástæðan sé
einkum styrking krónunnar.
Telur Costco geta náð 4-8%
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vöruvelta Costco veitti Rannsóknasetri verslunarinnar ekki upplýsingar.
Velta á dagvörumarkaði í júní mældist 3,6% minni en fyrir ári samkvæmt tölum
Rannsóknaseturs verslunarinnar Costco veitti ekki upplýsingar um sína veltu
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á