Morgunblaðið - 15.07.2017, Page 23

Morgunblaðið - 15.07.2017, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017 Margt hefur áunnist á und- anförnum árum er varðar end- urreisn eftir efnahagsáfallið haustið 2008. Þeirri vegferð er þó ekki lokið þar sem íslenskt sam- félag á nokkuð í land með að end- urvekja traust til fulls. Þar er sér- staklega horft til fjármálakerfisins en atburðir lið- inna mánaða gefa til kynna svo ekki verður um villst að þar er enn verk að vinna þó margt hafi áunnist. Regluverk bankakerfisins hefur verið stórbætt frá hruni til að draga úr áhættu. Eft- irlit þarf að vera skilvirkt og grípa inn í þegar þörf krefur. Tiltrú almennings er forsenda þess að traust sé endurvakið, að almenningur upplifi að gripið sé inn í ef hætta steðjar að. Vísbend- ingar eru um að sú tiltrú sé ekki til staðar auk þess sem stjórnvöld skortir sýn um framtíð fjármálakerfisins. Þess vegna þarf að bregðast við nú þegar komið er að því að selja banka til einkafjárfesta. Með því að sameina eftirlit með bönkunum á einum stað má auka skilvirkni og traust. Efnahagsleg endurreisn hefur gengið vel Efnahagsleg endurreisn Íslands hefur geng- ið vonum framar. Hagvöxtur er kröftugur, fjöl- mörg störf hafa orðið til, skuldir heimila og rík- issjóðs lækkað og erlendar eignir eru nú meiri en erlendar skuldir í fyrsta sinn síðan mælingar hófust. Að sama skapi hafa átt sér stað miklar breytingar á íslensku fjármálakerfi frá því að bankakerfið hrundi. Regluverk hefur verið auk- ið í þeim tilgangi að draga úr áhættu kerfisins og stofnanaumgjörð hefur verið efld. Ríkari kröfur eru nú gerðar til fjármálafyrirtækja bæði hvað varðar fjárhagslega stöðu sem og stjórnarhætti. Bankakerfið hefur minnkað og er nú brot af því sem áður var eða rúm 150% af landsframleiðslu. Bankarnir standa mun betur en áður enda með ríflegt eigið fé, vanskil hafa minnkað verulega og kjör á erlendri markaðs- fjármögnun hafa batnað mikið. Efasemdir í tengslum við bankasölu Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun þá skortir enn á traust og eru nokkur nýleg dæmi um það. Eitt slíkt er nýleg sala á stórum hlut í Arion banka til erlendra vogunarsjóða.Margir hafa goldið varhug við þessari þróun og má nefna a.m.k. þrjár ástæður þess. Í fyrsta lagi þá er ekki vitað hverjir eiga þessa sjóði. Gagnsætt eignarhald er forsenda þess að skapa traust og tiltrú á íslensku bankakerfi. Í öðru lagi má nefna vafasama fortíð eins sjóðanna en hann tengist mútumáli í Afríku. Það sýnir ágætlega hversu langt slíkir aðilar ganga til að verja sína hagsmuni. Í þriðja lagi er alls kostar óljóst hverjar fyrirætlanir nýrra eigenda eru. Eins og fyrr segir eru íslensku bankarnir með ríflegt eigið fé og því hugs- anlegt að nýir eigendur vilji greiða sér myndarlegan arð úr Arion. Eins er ekki hægt að útiloka það að einstaka eignir Arion, sbr. dótt- urfélög bankans, verði seld í þeim tilgangi að skila eigendum bank- ans fjármunum. Kjarni málsins er sá að ef eftirlitið virkar sem skyldi þá geta eigendur bankanna ekki gengið of nærri þeim og þar með varpað of mikilli áhættu á sam- félagið. Viðbrögð stjórnvalda vekja ekki traust Áhyggjur almennings í tengslum við þetta mál benda til þess að tiltrú skorti á eftirlit, að eigendur banka geti farið með þá eign sína að vild án þess að gripið sé inn í og að almenningur sitji eftir með reikninginn ef illa fer. Ef ekki tekst að auka traust og tiltrú á fjármálakerfið, þá mun næsti áfangi í endurreisninni misheppn- ast. Á þeim mánuðum sem liðnir eru frá því málið kom inn á borð stjórnvalda hefur málið lítið skýrst. Fjármálaeftirlitið hefur ekki svarað lykilspurningum í málinu eins og hvort einhver hinna nýju hluthafa í Arion banka fari með virk- an eignarhlut, beint eða óbeint. Margítrekað hefur efnahags- og viðskiptanefnd óskað eftir skýrari rökstuðningi en hann hefur ekki fengist þrátt fyrir fundi og skrifleg samskipti við Fjár- málaeftirlitið. Þrátt fyrir skort á upplýsingum þegar málið var kynnt opinberlega taldi fjár- mála- og efnahagsráðherra ekki eftir sér að fagna viðskiptunum og segja að nú væru vog- unarsjóðirnir að veðja með Íslandi. Þessi fram- ganga er ekki til að byggja upp traust á kerfinu. Styrkja þarf fjármálaeftirlit til að byggja upp traust Fyrir hina alþjóðlegu fjármálakreppu sem hófst árið 2008 þá var í mörgum ríkjum starf- semi fjármálaeftirlits og seðlabanka aðskilin, m.a. vegna þess að skynsamlegt þótt að aðskilja ætti eftirlit með öryggi innstæðueigenda og fjármálastöðugleika. Bankaeftirlitið var aðskilið Seðlabanka Íslands árið 1999 og Fjármálaeft- irlitið stofnað. Í fjármálakreppunni komu fram miklir gallar á þessari hugmyndafræði sem gekk út á að skilja að peningalegan og fjármála- legan stöðugleika, þar sem heildarsýn á áhættuþætti fjármálakerfisins skorti hjá seðla- bankanum sem lánveitanda til þrautavara. Fram hafa komið sterk rök hjá sérfræðingum á þessu sviði í þá veru að bankaeftirlit eigi heima hjá seðlabankanum. Nefnt er þar að skipulag fjármálaeftirlits, þ.e. aðskilnaður Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins, hafi haft þau áhrif að lánveitandi til þrautavara hafi haft ófullnægjandi mynd af fjárhagslegri stöðu bankanna í aðdraganda fjármálahrunsins á Ís- landi. Þróunin hefur verið sú hjá þeim ríkjum sem lentu í mestum erfiðleikum í fjár- málakreppunni að þau hafa verið að færa seðla- bönkum sínum auknar heimildir á sviði þjóð- hagsvarúðar og nefna má Holland og Írland. Sum ríki, líkt og Bretland, hafa sameinað eft- irlit með fjárhagsstöðu lánastofnana á nýjan leik innan Englandsbanka. Þar í landi er einnig rekin stofnun, FCA, sem annast neyt- endavernd á fjármálamarkaði og að fjármála- fyrirtæki breyti í samræmi við góða við- skiptahætti. Veigamikil rök hníga í þá átt að sameina fjár- málaeftirlit á Íslandi. Í fyrsta lagi mun það auka heildarsýn á helstu áhættuþætti fjár- málakerfisins að sameina krafta Fjármálaeft- irlits og Seðlabanka Íslands. Í öðru lagi með því að sameina eftirlit með lausafjárstöðu við- skiptabanka og eiginfjárstöðu þeirra, þá verður framkvæmd fjármálaeftirlits skýrari og auð- veldara fyrir lánveitanda til þrautavara að bregðast við með skilvirkari hætti. Í þriðja lagi mun takast betur að viðhalda peningalegum og fjármálalegum stöðugleika í hagkerfinu með því að stýritæki þjóðhagsvarúðarstefnu séu hjá einum aðila. Í fjórða lagi þá mun mannauður nýtast betur og upplýsingaskipti verða greiðari með þessu fyrirkomulagi. Þekkingargrunnur sameinaðs eftirlits verður fjölbreyttari og þar af leiðandi meiri slagkraftur. Kallað hefur verið eftir endurskoðun á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og ætti endurskoðunin að horfa til ofangreindra þátta. Hörð gagnrýni AGS á fjármálaeftirlit Það er ekki eingöngu almenningur á Íslandi sem óttast að eftirlitið sé ekki nægilega skil- virkt. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti nýverið reglubundna skýrslu sína um stöðu og horfur í íslensku efnahagslífi. Meginniðurstöðurnar eru jákvæðar og bent á að Ísland hafi náð miklum árangri eftir fjármálahrunið. Sá árangur hefur verið drifinn áfram af ferðaþjónustu, hag- felldum ytri skilyrðum og síðast en ekki síst skynsamlegri nálgun er varðar úrlausn á fjár- málahruninu og eftirmálum þess. Hins vegar er bent á að teikn séu á lofti um ofþenslu hagkerf- isins. Ekkert í þessari umsögn kemur á óvart og í samræmi við fyrri álit. Hörð gagnrýni AGS á fjármálaeftirlit í land- inu vekur hins vegar mikla athygli. AGS segir styrkingu fjármálaeftirlits vera forgangsatriði í stefnumótun fyrir fjármálakerfið. Sérstaklega er nefnd sala á hlut í Arion banka og tilgreint að áhættusækni gæti aukist innan kerfisins ef fjármálaeftirlitið sé ekki eflt. Lagt er til að stjórnvöld taki djarfar ákvarðanir og að stofn- anauppbyggingin sé endurskoðuð í þeim til- gangi. Annars vegar að fjárhagslegt og rekstr- arlegt sjálfstæði Fjármálaeftirlitsins sé aukið frá fjármálaráðuneytinu og hins vegar að eft- irlit með bankakerfinu og lausafjárstöðu þess verði flutt aftur til Seðlabanka Íslands. Meg- inástæða þess er að þá hefur lánveitandi til þrautavara mun betri yfirsýn yfir bankakerfið og verkaskipting verður skýrari og einfaldari. Auglýst eftir framtíðarsýn um bankakerfið Bankakerfið þarf að þjóna almenningi og at- vinnulífi á hagkvæman hátt. Fjármálakerfið þarf að vera traust og almenningur að bera traust til þess sem og til eftirlits. Áður en lengra er haldið og tilkynnt er um umfangsmikla eignasölu á kerfislega mikilvægum fjármálafyr- irtækjum þarf að útfæra nánar hvernig fjár- málakerfi hentar okkur best og hvernig megi styrkja umgjörðina enn frekar. Stjórnvöld, sem setja fjármálakerfinu umgjörð auk þess að vera hluthafi í bönkunum þremur, virðast skila auðu þegar kemur að framtíðarskipan fjármálakerf- isins. Í byrjun júlímánaðar tók gildi ný eig- endastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki. Engin framtíðarsýn fyrir framtíðarskipan á fjármálamarkaði er sett þar fram fyrir utan það að selja skuli eignarhluti í bönkunum. Rík- isstjórnin stefnir að því að ríkið eigi 34-40% eignarhlut í Landsbankanum hf. til langframa. Að öðru leyti er nefnt að 60-66% eignarhlutur í bankanum verði seldur á næstu árum þegar hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir hendi og jafnframt verði stefnt að skráningu á hluta- bréfamarkaði. Ríkisstjórnin stefnir að því að selja allan eignarhlut ríkissjóðs í Íslandsbanka og Arion banka þegar aðstæður leyfa. Engin haldbær rök eru færð fyrir því hvers vegna rík- issjóður hyggst eiga að hámarki 40% í Lands- bankanum, en ekki meira eða minna. Ástæða þess einföld. Hún er sú að stjórnvöld skortir sýn í þessu veigamikla máli. Það er verðugt um- hugsunarefni að ný eigendastefna hafi tekið gildi án þess að vinna sé hafin við heildarend- urskoðun á framtíðarskipan fjármálakerfisins. Svo virðist sem ríkisstjórnin ætli stjórnendum bankanna sjálfra að móta slíka stefnu. Almenn- ingur á Íslandi þarf því að reiða sig á erlenda vogunarsjóði, nýja eigendur Arion banka, til að móta slíka sýn fyrir ríkisstjórnina. Bregðast þarf við fyrir sölu banka Til að auka traust og tiltrú á fjármálakerfinu og stofnanaumgjörðinni er nauðsynlegt að ráð- ast í breytingar og færa eftirlit með fjár- málastofnunum undir einn hatt í stað tveggja í dag. Að sama skapi þarf að útfæra framtíð- arstefnu um fjármálakerfið áður en ráðist er í frekari sölu á bönkum. Að öðrum kosti mun ekki takast að byggja upp traust í samfélaginu. Eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur Lilja Dögg Alfreðsdóttir Byggjum upp traust Höfundur er varaformaður Framsóknarflokksins og alþingismaður. » Bankakerfið þarf að þjóna almenningi og atvinnulífi á hagkvæman hátt. Fjár- málakerfið þarf að vera traust og almenningur að bera traust til þess sem og til eftirlits. Við Íslendingar telj- um okkur búa í lýðræð- isríki, þar sem virtar eru vissar grundvall- arreglur um réttindi borgaranna og sam- skipti okkar hvert við annað. Eitt af því sem við teljum þýðing- armest er að fá að njóta tjáningarfrelsis. Í því felst frelsi til að tjá skoðanir okkar hvert við annað um þau þjóðfélagsmál sem efst eru á baugi hverju sinni. Við vit- um að hjá öllum þjóðum greinir menn á um hin margvíslegu málefni. Aðferðin sem við og önnur lýðræð- isríki beita er að láta mismunandi skoðanir koma fram og mætast á grundvelli þess málefnis sem til um- ræðu er. Þetta höfum við talið að sé farsælli leið heldur en valdbeiting sem bannar skoðanir sem falla ekki í kram rétttrúnaðarins. Mér en nær að halda að á Íslandi nútímans sé vegið með alvarlegum hætti að þessari grunnstoð. Það eru ekki stjórnvöld sem það gera heldur miklu fremur fjölmiðlar og þó allra helst fjölskrúðugur hópur undir- heimafólks sem tjáir sig á net- miðlum, oft með athugasemdum við frásagnir fréttaveitna sem þar birta efni. Þetta felst í því að ráð- ast heiftarlega á þá sem tjá aðrar skoðanir á málefninu en þetta fólk telur hina einu réttu. Verða slíkir þá oft fyrir heiftarlegum persónulegum árásum með alls kyns at- hugasemdum, sem í reynd koma umræðu- efninu ekkert við. Er nú svo komið að margir mætir menn veigra sér við að taka þátt í umræðum um mál- efni líðandi stundar af ótta við þetta lið rétttrúnaðarins sem veitist per- sónulega að þeim sem tjá sig. Nýlega tók ég að mér verk fyrir mann sem hafði verið sviptur mál- flutningsréttindum með dómi fyrir allmörgum árum. Hann hafði af- plánað hina dæmdu refsingu og fengið samkvæmt lögum svonefnda uppreist æru á síðasta ári. Ég fór fyrir hans hönd fyrir dómstóla með ósk hans um að fá fellda niður svipt- ingu málflutningsréttindanna. Var fallist á þá kröfu í héraði og Hæsta- rétti eins og lög stóðu til. Svæsin umfjöllun Næsta leik áttu nú fjölmiðlar og netsíður. Þar var efst á baugi harð- svíruð gagnrýni á þessa ákvörðun og fjallað mest um brotin sem maðurinn hafði verið dæmdur fyrir og hve sví- virðileg þau væru. Jafnframt var opnað fyrir svonefnt athugasemda- kerfi og þar birtar athugasemdir les- enda hversu ósmekklegar sem þær reyndust verða. Ég ákvað að stíga fram með tvenns konar erindi. Í fyrsta lagi að skýra lagagrundvöllinn fyrir niðurfellingu sviptingarinnar og benda á að í honum fælist sú hugsun að þjóðfélagið vildi gefa dæmdum afbrotamönnum tækifæri til að hefja nýtt líf. Þá hvatti ég til þess að þeir sem liðið hefðu fyrir af- brot mannsins ættu að leita í huga sínum að fyrirgefningu honum til handa. Fyndu þeir hana yrði það þeim sjálfum léttir í lífinu fram- undan. Þetta er reyndar boðskapur sem Biblían boðar og kristnir menn kveðjast hafa tileinkað sér. Ég vissi svo sem vel að ég væri að „stinga út hausnum“ með því að setja þessar ábendingar fram á opinber- um vettvangi. Mér datt samt ekki í hug að ég myndi kalla fram þau við- brögð sem urðu. Veist var harkalega að mér á vettvangi rétttrúnaðarins. Ég var meðal annars talinn vera sér- stakur stuðningsmaður kynferðis- brotamanna og jafnvel barnaníð- ingur sjálfur! Svo rammt kvað að þessari opinberu fordæmingu á óverðugri persónu minni, að þess var óskað að ég hætti við að flytja erindi á opnum fundi um alls óskylt við- fangsefni á sviði lögfræðinnar. Skild- ist mér að það yrði fundarmönnum ofviða að sjá þetta skelfilega óarga- dýr í ræðustól á fundinum. Ritskoðun undirheimanna Eftir að ég tjáði mig um þetta mál opinberlega hafði allmikill fjöldi manna samband við mig og tjáði mér ánægju með það sem ég hefði haft fram að færa. Enginn þeirra hugðist samt láta þau viðhorf í ljósi á opin- berum vettvangi. Vissu menn vel að með þeim hætti myndu þeir kalla yf- ir sig persónulegar árásir sprottnar úr neðanjarðarveröld fordóma og rétttrúnaðar. Ég skil þau viðhorf vel. Slíkar árásir reyna á þolrif manna, hversu ranglátar sem þær eru, og þá ekki bara viðkomandi sjálfs heldur einnig þeirra sem eru honum ná- komnir. Og jafnvel þó að ég sjálfur sé kominn með harðan skráp og hafi upplifað ýmislegt get ég ekki neitað því að það reynir svolítið á mig að verða fyrir svona glórulausum árás- um. Þessir gáfumenn mega hins veg- ar vel vita að ég mun aldrei láta hót- anir um bit úr snákagryfjum þeirra hindra mig í að segja það opin- berlega sem ég tel þörf á að segja og snertir þau málefni sem til umfjöll- unar koma hverju sinni. Þetta mál er líklega gott dæmi um það ástand sem mætir menn hafa nefnt á síðustu tímum og jafnast á við beina ritskoðun. Veist er harka- lega að tjáningarfrelsi þeirra sem setja fram skoðanir sem samrýmast ekki þeim rétttrúnaði og skamm- hugsun sem tröllríður þjóðfélaginu og margir fjölmiðlar virðast einatt taka undir. Heggur þar sá er hlífa skyldi, því fjölmiðlar hljóta að byggja tilveru sína á því að frjáls og óheft skoðanaskipti eigi sér stað í þjóðfélagi okkar. En hvers virði eru svo sem þau grunnréttindi þegar í húfi er uppsláttur fyrir morgundag- inn um eitthvað sem lýðurinn vill heyra og eykur stundarvinsæld- irnar? Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Veist er harkalega að tjáningarfrelsi þeirra sem setja fram skoðanir sem samrým- ast ekki þeim rétttrún- aði og skammhugsun sem tröllríður þjóð- félaginu og margir fjölmiðlar virðast einatt taka undir.Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Undirheimafólk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.