Morgunblaðið - 15.07.2017, Page 41

Morgunblaðið - 15.07.2017, Page 41
97, Eyþings 1998-2002, Iðnþróunar- félags Eyjafjarðar hf. 1987-92, Lífeyr- issjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar 1998-2007 og Lífeyrissjóðs Norður- lands 2000-2007, og sat í stjórn Sam- bands íslenskra sveitarfélaga 1998- 2007. Kristján sat í stjórn Útgerðarfélags Dalvíkinga hf. 1987-90, Söltunarfélags Dalvíkur hf. 1987-93, Sæplasts hf. 1988-94, Togaraútgerðar Ísafjarðar hf. 1996-97, Slippstöðvarinnar og var formaður stjórnar Samherja hf. 1996- 98. Hann sat í stjórn Eignarhalds- félagsins Brunabótafélags Íslands 1999-2008, Landsvirkjunar 1999-2007, Fjárfestingabanka atvinnulífsins, FBA, 1999-2000, í Ferðamálaráði Ís- lands 1999-2003, í stjórn Fasteigna- mats ríkisins 2000-2008 og stjórn Byggðastofnunar 2007-2010 Kristján sat í miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins 2002-2013, var formaður sveitarstjórnarráðs flokksins 2002- 2008, fór, ásamt Árna Sigfússyni, fyrir Evrópuumræðu sjálfstæðismanna 2008-2009 og var annar varaformaður flokksins 2012-2013. Kristján hefur setið í fjárlaganefnd Alþingis, iðnaðarnefnd, umhverfis- nefnd, Íslandsdeild Norðurlandaráðs og Íslandsdeild þingmannaráðstefn- unnar um norðurskautsmál. Fjölskylda Eiginkona Kristjáns er Guðbjörg Ringsted, f. 12.1. 1957 myndlistar- kona. Foreldrar Guðbjargar voru Baldvin Gunnar Ringsted, f. 23.10. 1914, d. 27.12. 1988, tannlæknir, og Ágústa Sigurðardóttir Ringsted, f. 3.8. 1925, d. 27.8. 2003, húsfreyja. Börn Kristjáns og Guðbjargar eru 1) María, f. 12.8. 1984, flugfreyja í Reykjavík; 2) Júlíus, f. 15.12. 1986, læknir við LSH, búsettur í Reykjavík, en kona hans er Rósa Þórólfsdóttir læknir og er sonur þeirra Kristján Árni, f. 2014; 3) Gunnar, f. 16.7. 1990, læknir á Akureyri, en sambýliskona hans er Þuríður Ingvarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og tónlistar- maður, og er dóttir þeirra Guðbjörg Júlía, f. 2017, og 4) Þorsteinn f. 15.1. 1997, nýstúdent en unnusta hans er Sara Mist Gautadóttir nýstúdent. Bræður Kristjáns eru Sigvaldi, f. 7.7. 1952, útvarpsþulur í Reykjavík, og Ásgeir Páll, f. 26.7. 1961, viðskipta- fræðingur í Danmörku. Foreldrar Kristjáns: Júlíus Krist- jánsson, f. 16.9. 1930, fyrrv. forstjóri, búsettur á Dalvík, og k.h., Ragnheiður Sigvaldadóttir, f. 5.5. 1934, fyrrv. skjalavörður á Dalvík. Úr frændgarði Kristjáns Þórs Júlíussonar Kristján Þór Júlíusson Lára Gissurardóttir húsfr. á Syðri-Haga Jóhann Jóhannsson b. á Syðri-Haga á Árskógsströnd María Jóhannsdóttir húsfr. á Akureyri Sigvaldi Þorsteinsson skipstj. á Akureyri Ragnheiður Sigvaldadóttir fyrrv. skjalavörður á Dalvík Anna Björg Benediktsdóttir húsfr. á Upsum Sigvaldi Júlíusson útvarps- þulur Ásgeir Páll Júlíusson viðskiptafr. í Danmörku Jónína Jónsdóttir húsfr. á Dalvík Magnús Þorsteinsson skipstj. á Akureyri Rósa Soffía Þorsteins- dóttir húsfr. á Akureyri Anna Björg Björnsdóttir fyrrv. skrifstofuk. á Akureyri Magnús Gauti Gautason framkv.stj. á Akureyri og fyrrv. kaupf.stj. KEA Jón Hjalta- son sagnfr. og rith. á Akureyri Magnús Pétursson píanóleikari Atli Rúnar Halldórsson blaðam. Óskar Þór Halldórsson blaða- og leiðsögum. Jón Baldvin Halldórsson upplýsingafulltr. Sigrún Júlíusdótt- ir verkak. á Dalvík Edda Magnúsdóttir kennari á Akureyri Hólmfríður Sveinsdóttir húsfr. í Efstakoti Friðbjörn Gunnarsson útvegsb. í Efstakoti á Upsaströnd Þórey Friðbjörnsdóttir húsfr. í Nýjabæ Kristján Eldjárn b. og sjóm. í Nýjabæ á Dalvík Júlíus Kristjánsson fyrrv. forstj., á Dalvík Þorsteinn Jónsson (Mínervu-Jóns) útvegsb. á Upsum, systursonur Snjólaugar, móður Jóhanns Sigurjónssonar skálds, og systursonur Þorsteins á Krossum, langalangafa Samherjabræðra, af Krossaætt Helgi Jónsson verkam. á Ólafsfirði Ingibjörg Friðrika Helga- dóttir húsfr. á Akureyri Sig- urður Draupn- isson formaður Margrét Sigurðar- dóttir húsfr. í Garði á Akureyri Sigur- steinn Magn- ússon forstöð- um. SÍS í Edinborg Magnús Magn- ússon dag- skrár- gerðarm. hjá BBC Sallý Magn- ússon dagskrár- gerðarm. hjá BBC og rithöf- undur Jón Sigurðsson útgerðarm., póststj. og frumbyggi á Dalvík Steinþór Þorsteinsson b. á Einhamri í Hörgárdal og Hömrum við Akureyri Sigur- steinn Steinþórs- son b. í Hörgárdal, síðast á Akureyri Þórbjörg Sigursteins- dóttir húsfr. á Akureyri Bernharð Haralds- son fyrrv. skólam. VMA Haraldur Bern- harðsson Ph.D., dósent í miðalda- fræðum við HÍ Rósa Þorsteinsdóttir húsfr. á Dalvík Kristján Þor- steinsson b. að Miðsetju í Blöndu- hlíð og á Þverbrekku í Öxnadal Jón Kristján Kristjánsson kennari, organisti og b. að Espigrund í Eyjafirði Björn Jónsson alþm., ráðherra og forseti ASÍ Sigríður Sigursteins- dóttir húsfr. á Akureyri Steinþór Friðriksson vélvirkjam. á Akureyri Kristín Steinþórsdótt- ir húsfr. á Akureyri Sigurður Sigurðsson bifreiðarstj. á Akureyri Sigurður J. Sigurðsson fyrrv. forseti bæjarstjórn- ar Akureyrar ÍSLENDINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017 Valdemar Helgason fæddist íGunnólfsvík á Langanes-strönd, N-Múl. 15.7. 1903. Foreldrar hans voru hjónin Helgi Sigurður Pálsson bóndi, síðast í Ás- seli í Sauðaneshreppi í Norður- Þingeyjarsýslu, og Arndís Karitas Sigvaldadóttir húsfreyja. Eiginkona Valdemars var Jóhanna Björnsdóttir húsfreyja og eignuðust þau einn son, Arnald. Valdemar flutti ungur með for- eldrum sínum að Ásseli og ólst þar upp, lauk gagnfræðaprófi á Akureyri 1928 og stundaði tungumálanám við HÍ í tvo vetur. Valdemar var skrifstofumaður hjá Skipaútgerð ríkisins í Reykjavík 1930-32, sölumaður og fulltrúi hjá Áfengisverslun ríkisins frá 1932-61 og fulltrúi hjá ÁTVR 1961-73. Valdemar var í hópi þekktari leik- ara hér á landi um miðbik síðustu ald- ar. Hann lék sitt fyrsta hlutverk í Ímyndunarveikinni eftir Moliére, hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1931. Af minnisstæðum hlutverkum hans í Þjóðleikhúsinu má nefna Hjálmar tudda í Manni og konu og Jón Jóns- son úr Kjósinni í Íslandsklukkunni. Þá lék hann í fjölda barnaleikrita en eftirminnilegasta hlutverk hans þar var án efa Stóri Kláus, sem hann lék á móti Bessa Bjarnasyni, sem lék Litla Kláus. Valdemar var leikari hjá Leik- félagi Reykjavíkur 1931-50 og fast- ráðinn leikari í Þjóðleikhúsinu frá stofnun þess, 1950-82, en síðasta hlut- verk sitt hjá Þjóðleikhúsinu lék hann 1985. Auk þess tók hann þátt í leik- sýningum einkaleikflokka og fór í leikferðir um landið. Valdemar lék fjöldamörg hlutverk í Ríkisútvarpinu, lék í íslenskum kvikmyndum, auk þess sem hann kom fram í sjónvarpi. Valdemar var einn af stofnendum Félags íslenskra leikara haustið 1941 og var ritari stjórnar 1948-57. Hann sat í stjórn og varastjórn Finnlands- vinafélagsins, SUOMI, og sat í stjórn Félags Þingeyinga í Reykjavík 1942- 61. Valdemar lést 10.3. 1993. Merkir Íslendingar Valdemar Helgason Laugardagur 95 ára Ragnar Bergsveinsson 90 ára Sturlaugur Björnsson 85 ára Kolbrún Svavarsdóttir Margrét F. Imsland Sigríður Á. Kristófersdóttir Þorvaldur Stefánsson 80 ára Erla Njálsdóttir Jón Rafn Einarsson Katrín Sigurðardóttir Þorsteinn Sigurðsson 75 ára Aðalheiður Ása Jónsdóttir Guðrún Þorgeirsdóttir 70 ára Einar Jónsson Guðrún Helga Friðriksdóttir Hildur Kjartansdóttir Jón Arason Sólrún Björnsdóttir Þorgrímur Benjamínsson 60 ára Bergþóra V. Ingimarsdóttir Ingibjörg Jóna Gestsdóttir Ingólfur Helgi Tryggvason Jófríður Valgarðsdóttir Kristján Þór Júlíusson Margrét Kristín Jónsdóttir Margrét Rósa Einarsdóttir Sigurður H. Jónsson Símon Már Ólafsson 50 ára Elías M. Rögnvaldsson Gyða Björk Jónsdóttir Halldór B. Sverrisson Jón Bergmann Kjartansson Kristján O. Gunnarsson Magnús Ólafur Rossen Ólöf Á. Sigurðardóttir Símon Arnar Sverrisson Sveinn Arnarson Waldemar T. Andrzejczak 40 ára Adelina Alipoyo Ybanez Baldur Heiðar Sigurðsson Bartlomiej Witold Chudio Berglind Magnúsdóttir Csaba Juhász Dorothea Lueck Grzegorz Trzonek Guðmundur Guðbjörnsson Gunnar Valgeirsson Jakob Björnsson Jóhann Emil Elíasson Leó Örn Ólafsson Licinío F. Saraiva De Abreu Margrét Viðarsdóttir Marlon Viliela Labandero Radislava Miskovic Wioletta Maszota 30 ára Alda María Ingadóttir Anna Walicka Aron L.N. Bjarnason Álfheiður Lára Óðinsdóttir Benedikt Hallgrímsson Christopher T. Harrington Emma Elísabet Grímsdóttir Eyjólfur Unnarsson Helgi Guðjónsson Josef Filip Justas Molotokas Krzysztof Czeslaw Ziernicki Sylvía Lind Stefánsdóttir Tinna Ásta Pálsdóttir Þórveig Jóhannsdóttir Sunnudagur 95 ára Guðrún Sigurjónsdóttir Jóhann Waage 90 ára Hallur Jónasson Sveinbjörn Dagfinnsson 85 ára Haukur Jónsson Unnur Þorleifsdóttir 80 ára Eðvarð Felixson Finnur Karlsson Fríða Sigurðardóttir Guðrún Á. Sigurðardóttir Kristjana Ragnarsdóttir Kristján Ottósson Nikolay Proskurnin 75 ára Ásmundur A. Jóhannsson Erla Nielsen Guðrún Leifsdóttir Ragnar Sigurðsson Stefán Magnús Ólafsson Tsisana Lebanidze Vignir Kárason 70 ára Anna S. Pálsdóttir Ársæll B. Ellertsson Friðrik R. Guðmundsson Guðmundur Þórðarson Haukur Ívarsson Hörður Þór Benediktsson Margrét Sigurðardóttir Marta M. Haraldsdóttir Ómar Hjörleifsson 60 ára Anna Björg Stefánsdóttir Ásta Hrönn Jóhannsdóttir Björgvin J. Guðbjörnsson Davíð Einarsson Eve Alice Lucienne Leplat Guðmundur Björnsson Gunnar Örn Ísleifsson Margrét Ingólfsdóttir Páll Einar Kristinsson Sigríður Sigurðardóttir Sjöfn H. Bachmann Sveinn Bjarnason Þóra Kristín Jónsdóttir 50 ára Árný Erla Bjarnadóttir David Francis ÓDonoghue Guðmundur Jónsson Guðmundur K. Birgisson Haukur Fjalar Stefánsson Orapin Chaksukhiaw Przemyslaw T. Milczarek Þórdís Súna Pétursdóttir Þórgunnur Ársælsdóttir 40 ára Aðalsteinn Jón Bergdal Eiríkur Stefán Ásgeirsson Eliseu Manuel V. Ribeiro Elva Dröfn Sveinsdóttir Éva Mária Galambos Hildur Ólafsdóttir Jóhann Friðriksson Katarzyna Anna Bochra Kolbrún B. Franzdóttir Ólafur Sigurjónsson Sigurður Hreiðarsson Silvia Björk Kristjánsdóttir Sumalee Karerum Viesturs Lapins 30 ára Aðalsteinn Sigfússon Antonio Barbeta Davíð Örn Guðmundsson Dorothea Pálsdóttir Eyjólfur Óli Hólm Eyjólfsson Fannar Sigurpálsson Hanna Guðrún Pétursdóttir Ingibjörg Þórdís Jónsdóttir Jóhann Frímann Rúnarsson Kristófer R. Magnússon Selma Guðnadóttir Sigurður M.G. Matthíasson Valdemar Ásbjörnsson Þórður Kárason Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.