Morgunblaðið - 15.07.2017, Síða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2017
inn strax á mjög svipaðri bylgju-
lengd, hvernig við hugsuðum
þetta,“ svarar María.
En hefur hún unnið áður með
vídeólistamanni á þennan hátt?
„Nei, ekki á þennan hátt, ekki í
svona samhliða samstarfi,“ svarar
María. Clocworking hafi hún unnið
með vídeólistakonunni Þorbjörgu
Jensdóttur en það samstarf hafi
komið öðruvísi til. „Þá fann ég
myndefni á netinu sem hafði áhrif
á tónlistina og það var síðan end-
urunnið og þróað eftir á,“ útskýrir
hún.
Unnið á staðnum
– Í tilkynningu vegna tón-
leikanna stendur að á sunnudag-
inn muni tólf manna kammerkór
slást í hópinn með Nordic Affect
og frumflytja verk eftir þig …
„Þessi tólf manna kammerkór
er breytilegur að stærð eftir dög-
um,“ segir María og hlær. Hún ef-
ist um að kórinn verði tólf manna
en hann muni engu að síður flytja
fyrrnefnda hljóðinnsetningu án tit-
ils. „Það má kalla þetta kammer-
kór en þetta verður fólk sem not-
ar raddir sínar og við verðum líka
með bjöllukórsbjöllur og þetta
verður unnið inn í rýmið. Þetta er
ekki alveg fastmótað ennþá því
þetta verður unnið á staðnum,“ út-
skýrir hún.
Fólkið í kórnum, ef kór skyldi
kalla, komi héðan og þaðan og eigi
sameiginlegt að njóta þess að
syngja en hafi þó ekki atvinnu af
söng. „Þetta verður hópur af
skapandi fólki sem getur lagt sitt
af mörkum í ferlinu,“ segir María.
Verkið sé hugsað sem hljóðinn-
setning fyrir raddir og bjöllur.
„Þetta er spennandi, þetta er það
opið að ég er sjálf mjög spennt að
sjá hvernig þetta kemur út. Hin
verkin fjögur eru rosalega fast út-
skrifuð og formföst þannig að
hugmyndin er að koma með eitt-
hvað opnara og alveg nýtt inn á
tónleikana.“
Með sína fagurfræði
í farteskinu
– Greinir þú einhvern samhljóm
milli þessara verka og þeirra sem
þú hefur samið með hljómsveitinni
sem þú ert í, amiinu?
„Já, fólk heyrir alveg einhvern
samhljóm í sumum þeirra og það
er alltaf eitthvert samhengi. Ég
hef samið fyrir sinfóníuhljómsveit
og um síðustu helgi var ég með
tvö ný kórverk í Skálholti og mér
finnst ég alltaf koma fersk að
borðinu, reyni alltaf að koma að
hverju verkefni eins og það kemur
fyrir á hverjum tíma og gera eitt-
hvað nýtt. En maður hefur alltaf
með í farteskinu sína fagurfræði
og hún hlýtur að lita allt sem mað-
ur gerir,“ svarar María.
„Eftir að rytmíska deildin bætt-
ist við amiinu hefur hún kannski
orðið sterkari rödd í amiinu en ég
hef notað í eigin tónsmíðum, að
vissu leyti,“ bætir hún við. Hún sé
fiðluleikari í grunninn og það liti
eflaust tónsmíðar hennar fyrir
strengi.
Dagskrá Sumartónleika í Skál-
holti og frekari upplýsingar um þá
og flytjendur má finna á sumar-
tonleikar.is.Staðartónskáld María Huld Sigfúsdóttir Markan.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Smellti mér á tónleika á dögunum
með minni kæru systur, sem Bíó
Paradís stóð að. Náði þar hinum
frábæra Anda (sem ég hef skrifað
um hér áður) en missti nær alger-
lega af TSS, sem mér þótti miður.
Það er eins tónleikamenning, upp á
tímasetningar, sé að lagast, en fólk
af minni kynslóð er vant því að atið
hefjist aldrei fyrr en í fyrsta lagi
hálftíma eftir auglýstan tíma.
Alltént, ég er reyndar búinn að
vera með TSS lengi vel á skrá hjá
mér, langaði til að hripa niður
nokkur orð af þeirri einföldu
ástæðu að hann er að gera dásam-
lega hluti. Nolo var í miklu dálæti
hjá mér á sínum tíma, og eftirfar-
andi hafði ég að segja um plötu
þeirra Nology frá 2011: „Lög sem
eru skökk, skæld og hljóma „illa“ –
miðað við það sem almennt er talið
gott – hljóma þvert á móti vel.
Þetta heilnæma skeytingarleysi
gagnvart viðteknum fegurð-
Fallegt, furðulegt og flott
Geimfari Jón Gabríel Lorange er maðurinn á bak við við skrítipopp TSS.
arstöðlum í popptónlist er styrkur
Nolo, það sem byggir undir gald-
urinn.“ Nolo var ferskur andblær í
senuna á þeim tíma, „líkt og þruma
úr heiðskíru lofti, eða kannski öllu
heldur eins og einhver dularfull
sending úr geimnum; torkennilegar
segulbylgjur frá áður ókannaðri
reikistjörnu“, eins og yðar einlæg-
ur komst að orði um þá pilta, og átti
greinilega erfitt með sig, sökum
hrifningar.
TSS stendur alls ekki fjarri
þessum lýsingum, tónlistin er á
svipaða lund. Stundum er þægilegt,
eiginlega nauðsynlegt, að hætta að
leita að snertipunktum og samlík-
ingum í svona skrifum, TSS hljóm-
ar eins og þessi eða hinn. Því að
þrátt fyrir að það sé vissulega hægt
(hey, ég hef atvinnu af slíku!) lang-
ar mig í þetta sinnið bara til að tala
um hvað þetta er skemmtileg tón-
list. Fyrst og síðast. Gamlir svuntu-
þeysarar, bergmálssöngur, óvænt-
ar sveigjur og beygjur og stundum
hreinasta flipp, greinilega „af því
bara“. Allt er þetta einfaldlega gott
og ég ætla að taka hippísku afstöð-
una og segja, leyfum tónlistinni að
tala. Hana má nálgast á Bandcamp
eins og segir, Meaningless Songs er
fyrsta platan (2015) en hin tólf laga
Glimpse of Everything kom svo út í
fyrra, algerlega frábær (tékkið t.d.
á „Stranger than Strangers“).
Stuttskífan Self Portrait kom svo út
í liðnum nóvember og sú nýjasta,
Decaying Man, einnig stuttskífa, í
febrúar á þessu ári. Tékkið á þessu
sem allra fyrst. Það er allt of mikið
af drasli þarna úti. Verið góð við
ykkur.
» Gamlir svuntu-þeysarar, bergmáls-
söngur, óvæntar sveigj-
ur og beygjur og
stundum hreinasta
flipp, greinilega „af því
bara“.
TSS er listamannsnafn Jóns Gabríels Lorange,
sem fyrst varð þekktur sem annar helmingur
dúettsins Nolo. TSS á nú að baki fjórar útgáfur,
sem nálgast má á Bandcamp, miklir mektargripir
allir sem einn.
inguna. „Ballettinn var ekki góð-
ur,“ er haft eftir Urin í enska dag-
blaðinu Telegraph. Urin segir
ástæðuna fyrir því að sýningin var
slegin af einfaldlega þá að hún hafi
ekki verið tilbúin og að hún muni
fara á svið Bolshoi-leikhússins í maí
á næsta ári. Medinsky mun þó hafa
rætt við Urin en talsmaður ráðu-
neytisins segir það af og frá að
hann hafi krafist þess að hætt yrði
við sýninguna.
Fyrrnefnd lög gegn áróðri fyrir
samkynhneigð voru sett í Rússlandi
árið 2013 og kveða þau á um að
ekki sé löglegt að standa fyrir við-
burði eða fjalla um samkynhneigð
með öðrum hætti þannig að beinist
að börnum undir 18 ára aldri.
Vladimir Urin, stjórnandi Bolshoi-
leikhússins í Moskvu, hefur varist
ásökunum þess efnis að hætt hafi
verið við ballettsýningu um dans-
arann Rudolf Nureyev, sem var
samkynhneigður, vegna rússneskra
laga sem banna „áróður fyrir sam-
kynhneigð“. Hætt var við að frum-
sýna verkið þremur dögum fyrir
frumsýningu og sagðist rússneska
fréttastofan Tass hafa heimildir
fyrir því að menningarmála-
ráðherra Rússa, Vladimir Med-
insky, hefði gripið í taumana og
krafist þess að hætt yrði við sýn-
Ekki aflýst vegna áróðurslaga, segir Urin
AFP
Í vörn Vladimir Urin, stjórnandi Bolshoi-leikhússins í Moskvu, á blaðamannfundi.
Katrín H.
Ágústsdóttir
opnar sýningu á
nokkrum mynd-
verkum unnum
með vatnslita- og
akríltækni í dag
kl. 14 á veit-
ingastaðnum
Munaðarnes res-
taurant. Katrín
hefur undan-
farin ár lagt stund á vatnslita-, olíu-
og akrílmálun og er myndefnið inn-
blásið af náttúru Íslands.
Sýnir í Munaðarnesi
Katrín H.
Ágústsdóttir
Glæpaþáttaröðin Sacred Games
verður fyrst indverskra þáttaraða
til að komast í heimsdreifingu á
kvikmynda- og sjónvarpsþáttaveit-
unni Netflix. Með aðalhluverkið í
þáttunum fer Bollywood-stjarnan
Saif Ali Khan og verður þáttaröðin
bæði á hindí og ensku. Khan er ein
skærasta stjarna Bollywood, að því
er fram kemur í frétt á vef The
Hollywood Reporter.
Netflix hyggst herja frekar á ind-
verskan markað og eru þættirnir
Sacred Games fyrsta skrefið í þá
átt. Þættirnir verða byggðir á met-
sölubók eftir Vikram Chandra og
er sögusviðið Mumbai. Skipulögð
glæpastarfsemi, spilling, pólitík og
njósnir munu m.a. koma við sögu í
þáttunum.
Svalur Bollywood-leikarinn Saif Ali Khan.
Fyrstu indversku
Netflix-þættirnir