Víkurfréttir - 30.01.2003, Síða 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
NJARÐVÍKURSKÓLI VEKUR ATHYGLI / Guðmundur Sigurðsson verkefnisstjóri erlendra samskipta
N jarðvíkurskóli tekur nú í þriðjasinn þátt í Sokrates verkefnisem er samstarfsverkefni skóla
í Evrópu styrkt af Evrópusamband-
inu. Fyrsta verkefnið var milli tveggja
skóla í Evrópu sem stóð yfir skólaárið
1998 - 1999. Var þar um að ræða
Comenius Lingua-E tungumálaverk-
efni og var samstarfsskóli Njarðvík-
urskóla frá Oeiras í Portúgal. Verk-
efnið gekk út á að nemendur höfðu
samskipti sín á milli á tölvupósti og
fóru í gagnkvæmar heimsóknir á
milli skóla. Nemendur útbjuggu land-
kynningu sem sett var upp í skólun-
um þegar þeir fóru í heimsóknirnar.
Þannig fengu nemendur að kynnast
lifnaðarháttum, menningu, tungu-
máli og íþróttum í hinu landinu.
Annað verkefnið var Comeniusar 1
verkefni milli 5 skóla í Evrópu, sem
stóð yfir skólaárið 2000 - 2001. Skól-
arnir sem þátt tóku í verkefninu voru frá
Ítalíu, Svíþjóð, Búlgaríu, Íslandi og
Spáni sem voru stjórnendur verkefnis-
ins. Um var að ræða þriggja ára verkefni
þar sem við, ásamt Búlgörum, komum
inn í verkefnið á þriðja árinu.
Verkefni þessa árs var að finna þjóðsög-
ur eða goðsagnir, (2 - 4 sögur) þýða þær
yfir á ensku, setja á vefsíðu alnetsins og
útbúin bók, útbúa myndband og senda
hinum skólunum.
Nemendur og kennarar skoðuðu síðan
verkefnin frá hinum skólunum og
kynntu sér þannig þjóðsögur þeirra og
menningu.
Árið 2002 fékk þetta verkefni fyrstu
verðlaun í samkeppni um frekari út-
færslu á verkefnum sem þessum. Fær
skólinn á Spáni og kennararnir sem
stjórnuðu verkefninu bæði góðan tíma
og fjármuni til að kynna verkefnið s.s.
með bóka-, myndbands- og geisladiska
útgáfu auk þess sem þau fara í skóla í
sínum landshluta og kynna verkefnið.
Okkur hér í Njarðvíkurskóla þykir þetta
mikill heiður og erum að vonum mjög
ánægð með verðlaunin.
Þriðja verkefnið stendur yfir á þessu
skólaári (2002 - 2003) er Comenius
Lingua-E, tungumálaverkefni. Sam-
starfsskóli Njarðvíkurskóla er í Frakk-
landi á eyjunni Olreon sem er í Biscu-
yaflóa. Heiti verkefnisins er „Nýting
sjávar á eylandi“ og gengur út á að nem-
endur safni saman upplýsingum um það
hvernig Íslendingar/Frakkar vinni afurði
úr sjó og nýti hafið sér til framdráttar.
Hluti af verkefninu eru heimsóknir
nemenda á milli skóla þar sem nemend-
ur kynnast menningu og tungumáli ann-
arrar þjóðar og auka þannig víðsýni
þeirra og þekkingu.
Nemendur sem hafa tekið þátt í þessum
verkefnum eru úr 8. - 9. og 10. bekk.
Ekki má gleyma þætti foreldra nemend-
anna sem hafa opnað heimilin fyrir
gestum frá öðrum Evrópulöndum og
stutt nemendurna í þessum hluta skóla-
starfsins. Þeir kennarar sem séð hafa um
framkvæmd verkefnanna hér hjá okkur
eru: Guðmundur Sigurðsson, Kristbjörn
Albertsson, Margrét Stefánsdóttir og
Guðrún Guðmundsdóttir.
Eins og áður segir auka verkefni sem
þessi bæði viðsýni, þekkingu og áhuga
nemenda þar sem þeir kynnast lifnaðar-
háttum og menningu annarra þjóða í
Evrópu. Verkefnin og afrakstur þeirra
má skoða á vefsíðu skólans www.njard-
vikurskoli.is undir erlend samskipti.
Guðmundur Sigurðsson
Verkefnisstjóri erlendra samskipta
Lýsa yfir undrun
á vinnubrögðum
stjórnenda HSS
og stjórnvalda
Læknaráð Heilbrigðis-stofnunarinnar á Sel-fossi sendi þann 20. jan-
úar eftirfarandi yfirlýsingu
frá sér til formanns stjórnar
Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja þar sem þau segja að
skilningsleysi lýsi framgöngu
stjórnenda HSS í tilraunum
þeirra til að leysa vanda
stofnunarinnar á Suðurnesj-
um. Yfirlýsingin hljóðar
þannig:
Yfirlýsing
Selfossi 20.01.2003
Heilbrigðisstofnunin
Suðurnesjum
b/t formanns stjórnar
...
Læknaráð Heilbrigðisstofnun-
arinnar Selfossi lýsir yfir undr-
un á framgangi stjórnvalda og
stjórnenda Heilbrigðisstofn-
unnar á Suðurnesjum í tilraun
þeirra til þess að leysa vanda
HSS á Suðurnesjum.
Vel flestir Suðurnesjabúar hafa
nú misst sinn sérmenntaða
heimilislækni. Hugmynd að 7 -
8 heimilislæknar sinni 17 þús-
und íbúum er fráleit og lýsir
skilningsleysi stjórnenda HSS
á Suðurnesjum á eðli heilsu-
gæslu.
Sandhverfueldi Sæbýlis við Vogastapa er nú að fá þak yfir höfuðið. Nú er unnið aðbyggingu 940 fermetra húss yfir eina af fimm eldiskerjalínum fyrirtækisins. Sand-hverfueldi fyrirtækisins gengur vel að sögn Jóns Gunnarssonar, framkvæmdastjóra
Sæbýlis ehf. Mikill vöxtur er í eldinu og ljóst að byggja þarf allt að 5000 fermetra húsnæði
yfir starfsemina á næstu misserum. Sandhverfan er dýrasti flatfiskur sem fluttur er á Evr-
ópumarkað. Seiðaeldi fyrirtækisins gengur vel. Sæbýli hefur yfir fimm kerjalínum að ráða
fyrir áframhaldandi eldi og ljóst að þær þurfa brátt undir þak. Starfsmenn hafa notað alla
góðviðrisdaga að undanförnu til að sinna byggingarframkvæmdum.
Evrópuverkefni Njarðvíkurskóla fær verðlaun á Spáni
E inungis tveir heilsu-gæslulæknar starfa áHeilsugæslu Heilbrigð-
isstofnunar Suðurnesja og
var annar læknanna veikur á
mánudag og þriðjudag. Einn
læknir sinnti því þeim sjúk-
lingum sem þurfa á aðstoð að
halda, en hjúkrunarfræðing-
ar aðstoðuðu hann við grein-
ingu sjúklinganna. Starfs-
maður á Heilsugæslunni
sagði í samtali við Víkurfrétt-
ir að það væri mesta furða
hvað þeim tækist að taka á
móti mörgum sjúklingum:
„Þessir tveir læknar njóta
náttúrulega liðsinnis hjúkr-
unarfræðinga þannig að það
minnkar álagið á þá. Gunnar
Valtýsson sykursýkislæknir
er einnig tekinn til starfa og
er einu sinni í viku við stofn-
unina. En það reyna allir að
gera sitt besta,“ sagði starfs-
maður HSS í samtali við Vík-
urfréttir.
Sandhverfueldi fær þak yfir höfuðið
„Helmingur“ heilsugæslulækna í Keflavík frá vegna veikinda
Frá byggingu kerskála við
Sæbýli við Vogastapa.
Rúmlega
16.000 innlit
á vf.is í
síðustu viku
V íkurfréttir á Netinunutu mikillar athygli ísíðustu viku. Fréttir af
vefnum rötuðu inn á frétta-
síður „hinna stóru“ frétta-
miðlanna alla daga síðustu
viku.Aðsókn að síðunni jókst
um rúmt 71% í síðustu viku
frá vikunni þar á undan sem
er mesti vöxtur á síðunni frá
því mælingar hófust hjá
Virkri vefmælingu Modern-
us.
Aðallega voru það tvær fréttir
sem nutu mikillar athygli í vik-
unni sem leið. Víkurfréttir eru í
dag 17. vinsælasti vefurinn á
Íslandi samkvæmt mælingu
Virkrar vefmælingar og jafn-
framt 16. mest sótti vefur
landsins með 16.176 innlit í
síðustu viku. Gestirnir voru á
sama tíma 6516 talsins.
Netnotkun:
5. tbl. 2003 - 24 pages Kolls 29.1.2003 16:04 Page 2