Víkurfréttir - 30.01.2003, Side 4
STRÁKARNIR okkar eru frábærir. Með því að
hringja í 907-2800 þá styrkið þið strákana um
800 krónur. Kallinn er búinn
að hringja, enda hvernig er
annað hægt eftir svona frá-
bæran árangur. Kallinn
gengur út frá því að Ísland
vinni Pólverja en sá leikur
var í gær [kallinn skrifar
pistilinn á þriðjudagskvöldi].
Stórkostlegur árangur og við
eigum að styðja við bakið á þeim - 800 kallinn
skiptir þá máli, en ekki okkur. Hringjum og
ÁFRAM ÍSLAND!
NÚ EIGA Sandgerðingar að sameinast Reykja-
nesbæ - það er alveg ljóst. Til hvers haldið þið að
fyrirtæki sameinist - til að auka hagkvæmni og
samlegðaráhrif. Það myndi gerast ef sveitarfélög-
in yrðu sameinuð. Hvaða rök eru fyrir því að
Sandgerði eigi ekki að sameinast Reykjanesbæ?
Kannski bæjarstjórinn og allir hinir séu hræddir
við að missa launin sín, en það eru ekki rök. Það
verður að hugsa um hagsmuni sveitarfélagsins!
Það verður að horfa til framtíðar og sjá fyrir sér
hvernig hagkvæmast sé að reka sveitarfélagið.
Hreppapólitíkin er liðin undir lok. Yngri kyn-
slóðir byggja nú sveitarfélögin og unga fólkið
vill sameinast. Það er einfalt reikningsdæmi að
sjá það út að það er hagkvæmt að sameina Sand-
gerði og Reykjanesbæ. Allir þeir sem hafa snert
af skynsemi sjá rökin fyrir því. En ef vera skyldi
að einhver sé með haldbær rök fyrir þvi að sam-
eining ætti ekki að eiga sér stað - þá óskar Kall-
inn eftir þeim rökum.
KALLINN hefur heyrt það að úrvalsdeildarliðin
í körfuboltanum séu ekki sátt við Keflavíkurliðið
vegna þess að liðið sagði upp samningi við
Kevin Grandberg nokkrum dögum eftir að fé-
lagsskiptamarkaði lauk. Kallinn hefur heyrt
margar sögur um það hvernig þetta átti sér stað,
en ekki veit hann hver er sönn. Forsvarsmenn
Keflavíkur hafa ekkert látið í sér heyra um málið
- er ekki mál til komið að þeir geri það. Körfu-
boltaíþróttin á Íslandi á rétt á því.
SÉRSTAKLEGA er gaman að sjá hver við-
brögð við pistli Kallsins í þarsíðasta blaði varð-
andi fátækt hefur fengið mikil viðbrögð. Jón
Gunnarsson og Hjálmar Árnason svöruðu um
hæl með ágætis greinum. Ekkert hefur hinsvegar
komið frá Árna Ragnari Árnasyni og Þórunni
Friðriksdóttur. Þau hafa sjálfsagt ekkert um fá-
tæktarumræðuna að segja fyrst þau svara ekki
kallinu. Var ekki Árni Ragnar annars fluttur til
Keflavíkur aftur? Eða býr hann ennþá í bænum?
ELLERT B. SCHRAM er nú kominn á lista
Samfylkingarinnar í Reykjavík og er flokkurinn
heppinn að fá svo öflugan liðsmann í sveitir fylk-
ingarinnar. Nú er það bara spurning hvort Össur
leiti ekki til Kristjáns Pálssonar og bjóði honum
baráttusæti á lista Samfylkingarinnar í Suður-
kjördæmi. Kristján er með það mikið persónu-
legt fylgi að hann myndi renna inn á þing. Góð
hugmynd - ekki satt!
ANNARS er áhugavert að sjá Sjálfstæðismenn
tala um fyrirhugaða innrás Bandaríkjamanna í
Írak - sérstaklega þegar þeir tala um ógnina sem
Hussein skapar umheiminum. Það er líka gaman
að sjá og heyra þegar þeir þræta fyrir það að um
olíuhagsmuni sé að ræða hjá „Bushurum“. Það
er svo augljóst hvað er í gangi. Allir þeir sem
hafa kynnt sér framgang og stefnu Bandaríkj-
anna í alþjóðamálum á síðustu 30 árum skilja
hvað er í gangi núna. Það er hrein vitleysa að
halda öðru fram en að um viðskiptalega hags-
muni sé að ræða. Hvað er annars málið með N-
Kóreu? Engin hætta þar? Hver er ástæðan fyrir
því að menntafólk um allan heim hefur verið að
vara við stríði? Sjálfstæðismenn ættu að taka upp
sögubækurnar, hugsa af skynsemi og reyna að
átta sig á málinu í heild sinni. Það yrði þeim til
framdráttar.
VONANDI verður Bush ekki endurkjörinn for-
seti Bandaríkjanna!
Kveðja,
Kallinn @vf.is
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
VÍKUR
FRÉTTIR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
Sími 421 0000 (15 línur)
Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, franz@vf.is
Auglýsingar:
Kristín Njálsdóttir,
kristin@vf.is,
Jófríður Leifsdóttir,
jofridur@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson
sími 421 0004 johannes@vf.is
Sævar Sævarsson,
sími 421 0003 saevar@vf.is
Hönnunarstjóri:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is
Hönnun/umbrot:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is,
Stefan Swales,
stefan@vf.is
Skrifstofa:
Stefanía Jónsdóttir,
Aldís Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dreifing:
Íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar
Víkurfrétta ehf. eru:
VF - Vikulega í Firðinum
Tímarit Víkurfrétta,
The White Falcon,
Kapalsjónvarp Víkurfrétta.
MUNDI
Það er greinilega
allt í hassi hjá löggunni
þessa dagana!
Kallinn á kassanum
Með fíkniefni
og áhöld í
umferðinni
Á föstudagskvöldið kl.21:05 stöðvuðu lög-reglumenn akstur
bifreiðar á Njarðarbraut
við Fitjar, vegna gruns um
fíkniefnamisferli. Var öku-
maður og ásamt tveimur
farþegum færðir á lög-
reglustöð. Við leit í bifreið
og á þeim handteknu
fannst tóbaksblanda af
kannabis (hassi) á öku-
manni. Að lokinni yfir-
heyrslu var fólkinu sleppt.
Þarna var á ferðinni fólk á
tvítugs aldri.
Sama kvöld kl. 23:50 stöðv-
uðu lögreglumenn akstur
bifreiðar á Flugvallavegi,
vegna gruns um fíkniefna-
misferli. Við leit á öku-
manni og farþegum fannst
áhald til neyslu fíkniefna.
Lagt var hald á það.
Með hass í
bíl á Sólvalla-
götunni
Á sunnudagsmorgunkl. 05:12 var aksturbifreiðar stöðvaður á
Sólvallagötu í Keflavík.
Við athugun á vettvangi
fannst 1 gr. af kannabis (-
hassmoli) á gólfi bifreiðar-
innar. Tvítugur ökumaður
og tveir farþegar á sama
aldri voru því handteknir
og fæðir á lögreglustöðin í
Keflavík. Við nánari leit í
bifreiðinni á lögreglustöð-
inni fannst annað gramm
(hassmoli). Annar farþeg-
inn viðurkenndi að eiga
efnið. Hann var vistaður í
fangaklefa og var látinn
laus að lokinni yfirheyrslu
hjá rannsóknarlögregl-
unni.
Ökumanninum og hinum
farþeganum var sleppt strax
að lokinni leit á þeim og í
bifreiðinni.
Það snjóaði töluvert í Grindavík á föstudagskvöldið og var snjóföl yfir bænum. Blessuð börnin
hafa lítið séð af snjónum það sem af er vetri og um leið og snjókorn falla til jarðar hlaupa þau
út og leika sér. Þrír hressir strákar voru að renna sér á stórri bílslöngu og virtust þeir skemmta
sér vel, enda er hægt að ná miklum hraða á svoleiðis græjum.
Af gefnu tilefni skal tekið fram
að Kallinn á kassanum er ekki
starfsmaður Víkurfrétta, heldur
sjálfstæður pistlahöfundur.
Þær skoðanir sem koma fram í
pistli Kallsins þurfa því ekki
að endurspegla skoðanir rit-
stjórnar Víkurfrétta. Þar sem
Kallinn skrifar undir dulnefni
er hann á ábyrgð blaðsins.
Slanga á svellinu!
5. tbl. 2003 - 24 pages Kolls 29.1.2003 16:06 Page 4