Víkurfréttir - 30.01.2003, Page 7
VÍKURFRÉTTIR I 5. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 I 7
Kvenfélag Keflavíkur
Við minnum ykkur á febrúarfundinn 3. febrúar n.k. í
Rauðakrosshúsinu á Smiðjuvöllum 8. Takið með ykk-
ur gesti og fjölmennum. Mæting kl. 20:30
Skömmu eftir hádegi á laug-
ardag höfðu lögreglumenn
afskipti af tíu mönnum sem
hugðust fara í Sandvík á
Reykjanesi og aka þar um á
torfærubifhjólum. Mönnum
þessum var bent á að akstur
utan vega væri óheimill sem
og akstur á óskráðum og
númerslausum ökutækjum.
Mennirnir sinntu ábendingu
lögreglumannanna og hættu
við akstur í Sandvík.
Litli og stóri
Flutningaskipið Nordic Ice sem siglir reglulega til Sandgerðis
og nær í afurðir frá Skinnfiski lét úr höfn úr Sandgerði í há-
deginu á sunnudag. Skipið er nokkuð stórt og virtist sem lóðs-
bátnum Sigga Guðjóns tækist fremur auðveldlega að ýta skip-
inu úr höfn. Það var ekki laust við að vegfarendur á bryggj-
unni hefðu á tilfinningunni að lóðsinn hefði þetta ekki, en
allt gekk þetta vel.
Þó svo allt hafi gengið vel í Sandgerði varð skipið fyrir áfalli
við Vestmannaeyjar þegar slagsíða kom á það og var skipinu
fylgt inn til hafnar í Eyjum þar sem farmur þess var skorðaður
betur.
Tíu torfærukarlar
stöðvaðir í Sandvík
Ásíðasta ári seldi Þor-björn Fiskanes hf.f iskafurðir fyrir 5,1
milljarða króna. Um borð í
frystiskipum félagsins voru
framleiddar afurðir fyrir um
2,3 milljarða og í fiskvinnsl-
um félagsins í landi voru
framleiddar afurðir fyrir
meira en 1,6 milljarða króna.
Af einstökum afurðaflokkum
voru verðmæti frystra afurða
2,5 milljarðar króna, saltfiskaf-
urða liðlega 1,1 milljarður
króna og verðmæti ferskra af-
urða kr. 1,2 milljarðar króna.
Ef litið er á einstakar tegundir,
frystar, ferskar og saltaðar voru
þorskafurðir verðmætastar með
um 2,0 milljarða króna.
Mikilvægustu markaðslönd fyr-
irtækisins eru Bretland, Banda-
ríkin, Spánn og Japan.
ÞORBJÖRN FISKANES HF.
SELUR FISKAFURÐIR FYRIR
RÚMA 5 MILLJARÐA
5. tbl. 2003 - 24 pages Kolls 29.1.2003 16:13 Page 7