Víkurfréttir - 30.01.2003, Page 13
VÍKURFRÉTTIR I 5. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 I 13
Atburðarásin:
Klukkan 18.29
• Lögreglu barst tilkynning
um ölvaðan mann skjótandi
af riffli á efri hæð
íbúðarhússins að Auðnum.
Nokkrum mínútum seinnar
er sérsveit Ríkislögreglu-
stjóra kölluð út.
Klukkan 19.01
• Maðurinn gefur sig fram
við Lögregluna í Keflavík.
Maðurinn er handtekinn.
Klukkan 19.39
• Komið með hinn
handtekna á
Lögreglustöðina í Keflavík.
Klukkan 19.40
• Lokun á Vatnsleysu-
strandarvegi aflétt.
Klukkan 19.57
• Sérsveit Ríkislögreglustjóra
fer inn í húsið og tryggir
vettvang.
Húsleit fer fram og stendur
hún til klukkan 2 um nótt-
ina.
þá kom Víkingasveitarmaður
inn og beið hjá okkur til að
tryggja öryggi okkar. Á meðan
þeir voru að tryggja svæðið
þurftum við að bíða inni á baði
og það hefur örugglega verið
einn og hálfur klukkutími.“
Þegar búið var að tryggja vett-
vang og ljóst að öryggi íbúanna
hafði verið tryggt var fjölskyld-
unni boðið upp á áfallahjálp en
sr. Sigfús B. Ingvason kom á
staðinn til að ræða við fjöl-
skylduna.
Fjölskyldan segir að nú taki við
óvissutímabil því einhvern
tíma komi maðurinn til baka.
Davíð segir að þau muni ekki
búa þarna áfram: „Ef að mað-
urinn kemur til baka þá höfum
við enga tryggingu fyrir því að
hann geri þetta ekki aftur. Okk-
ur finnst það skrítið að manni
sem hefur skotið af riffli inni í
húsi skuli vera sleppt eftir 24
klukkutíma. Lögreglan gat ekki
haldið honum lengur en í sólar-
hring af því hann slasaði ekki
neinn né drap. Við erum með
tæplega fimm mánaða gamalt
barn hérna og okkur f innst
þetta vera mjög óþægileg staða.
Maðurinn getur birst hvenær
sem er og þá viljum við ekki
vera hér.“
Aðalheiður sem býr hjá for-
eldrum sínum ásamt barni er í
barneignafríi og hún er ein
heima á daginn. Hún segist
ekki geta hugsað sér að vera
ein með barnið ef maðurinn
kæmi heim og væri á efri hæð-
inni. Davíð segir að þau muni
flytja og að það muni gerast
innan nokkurra daga: „Við ætl-
uðum nú bara að búa hér tíma-
bundið en við höfum verið hér
í fjóra mánuði. Okkur hefur
liðið vel hér en það var alltaf á
dagskránni að flytja, en þetta
atvik varð til þess að við erum
strax farin að leita fyrir okkur,“
segir Davíð.
Davíð segir að þau þakki lög-
reglunni fyrir frábær vinnu-
brögð og sérstaklega eru þau á-
nægð með að hafa verið í síma-
sambandi þegar lætin voru sem
mest: „Það eina sem við getum
gagnrýnt er það hve maðurinn
slapp fljótt út. Við erum ekki
örugg hér ef hann kemur aftur.
Við ákváðum að tala við Vík-
urfréttir til að vekja athygli á
því hve löggjöfinni er ábóta-
vant þegar kemur að svona
málum. Það er ekki eðlilegt að
maðurinn geti gengið um göt-
urnar daginn eftir að hann
hleypir skotum af öflugum
riffli innandyra. Maður sem
drepur engan en hleypir af í
kringum 20 skotum inn í húsi
fær að ganga út frá lögreglunni
24 tímum seinna. Það er eitt-
hvað að í kerfinu. Menn sem
gera svona erlendis eru hiklaust
settir í gæsluvarðhald í langan
tíma og síðan dæmdir í fang-
elsi.“
Fjölskyldan ætlar að taka sér
tíma til að jafna sig, enda hlýt-
ur þessi lífsreynsla að setja
mark sitt á líf þeirra sem lenda
í slíku. Unnur segir að næstu
daga muni þau leita sér að nýju
húsnæði og nota tímann til að
jafna sig á þessari lífsreynslu.
Þau njóta enn áfallahjálpar og
segir Unnur að það sé mjög
mikilvægt: „Þetta er lífsreynsla
sem gleymist ekki og við höld-
um áfram að lifa enda höfum
við dóttur okkar og yndislegt
barnabarn við hlið okkar,“ seg-
ir Unnur að lokum.
Við vorum allan tímann
hrædd um að maður-
inn kæmi niður því það
er innangengt úr efri
íbúðinni í þá neðri og
aðeins spónaplata sem
er á milli.“ Á meðan á
þessu gekk ræddu þau
um hvernig þau myndu
bregðast við ef mað-
urinn kæmi niður.
Þau voru öll mjög hrædd þegar þau voru komin inn á baðherbergið, enda heyrðu þau að maðurinn
hélt áfram að skjóta. Aðalheiður segir að þau hafi hringt í Neyðarlínuna úr baðherberginu en þá var
klukkan um hálfsjö. Þau biðu á baðherberginu ásamt sambýliskonu mannsins og mánaðargömlu barni
þeirra í eina og hálfa klukkustund eftir að maðurinn var handtekinn.
Talið er að maðurinn hafi m.a. skotið út um þennan glugga
sem er á efri hæð einbýlishússins að Auðnum.
Tveir sjúkrabílar frá Brunavörnum Suðurnesja voru sendir
á vettvang því ekki var vitað hvort maðurinn hefði slasað
sjálfan sig eða aðra.
5. tbl. 2003 - 24 pages Kolls 29.1.2003 16:24 Page 13