Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.01.2003, Qupperneq 22

Víkurfréttir - 30.01.2003, Qupperneq 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Ó lafía Sigurjónsdóttir er19 ára Keflvíkurmærsem er nýútskrifuð sem dúx úr Fjölbrautaskóla Suð- urnesja. Foreldrar hennar eru Guðbjörg Aðalbergsdótt- ir og Sigurjón Jónsson. Ólaf- ía stóð sig frábærlega í skól- anum og hlaut fjölda viður- kenninga fyrir árangur sinn í dönsku, ensku, þýsku og fyrir árangur sinn í líffræði og efnafræði. Auk þess fékk Ólafía viðurkenningu frá Eddu - miðlun og útgáfu fyr- ir góðan árangur í íslensku. Hún fékk einnig viðurkenn- ingu frá Sparisjóðnum í Keflavík fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi auk þess að fá viðurkenningar fyrir góðan árangur í íslensku, erlendum tungumálum og í stærðfræði og raungreinum. „Auðvitað er ég ánægð með þetta. Ég bjóst alveg við einhverjum viðurkenningum en ekki svona mörgum“, segir Ólafía í viðtali við Víkurfréttir. Hún tók þann pól í hæðina að útskrifast á þremur og hálfu ári sem margir nemendur eru farn- ir að gera til að flýta útskrift. „Það er í rauninni ekkert mál að útskrifast á þremur og hálfu ári ef maður er ekkert að falla. Planið hjá mér var samt alltaf að útskrifast í vor en svo átti ég svo lítið eftir og eiginlega nennti þessu ekki lengur svo að ég dreif bara í þessu“, sagði Ó- lafía í samtali við Víkurfréttir. Ólafía segir mjög mikilvægt að vera með metnað ætli maður sér að ná góðum árangri í skól- anum en hún segist þó vera langt frá því að vera skipulögð. „Málið er bara að gera það sem maður á að gera og gera það vel og taka þessu svo bara hæfilega alvarlega“. Ólafía fór ásamt útskriftaraðli FS í útskriftarferð til Marokkó að skólanum loknum og segir hún að ferðin hafi verið æðis- leg enda hafi hún verið með frábærum hópi á skrítnum og skemmtilegum stað. „Við fór- um tólf saman, níu stelpur og þrír strákar, til Agadir í Marokkó og djömmuðum með aröbum og kameldýrum í tvær vikur. Við bjuggum á geggjuðu fjögurra stjörnu hóteli með þjón á hverjum fingri, yndis- legt líf. Nýja árinu var fagnað með kampavíni á ströndinni og síðan lögðum við undir okkur nætuklúbbana en dyraverðirnir, sem voru luralegir menn í stór- um svörtum leðurjökkum, voru fljótlega orðnir góðir vinir okk- ar og hleyptu okkur alltaf frítt inn. Við vöktum mikla athygli hvert sem við fórum enda er ekki mikið af hvítu bláeygðu fólki í Marokkó. Sem dæmi um athyglina má nefna að þeg- ar við stelpurnar vorum að ganga um göturnar hikuðu marokkósku karlarnir ekki við að reyna að bjóða í okkur, boð- ið í mig fór upp í 10 kamel- dýr“. Ólafía kom heim úr útskriftar- ferðinni í síðustu viku þannig að tíminn hefur að mestu farið í að ná sér niður á jörðina. „Næst á dagskrá er auðvitað að leita sér að vinnu og reyna að venj- ast kuldanum eftir sæluna í Marokkó. Ég fer svo í háskól- ann í haust en ég ætla mér að verða læknir“, sagði Ólafía að lokum en þessi eldhressi dúx á eflaust eftir að ná langt í lífinu enda með metnað og tekur líf- inu greinilega ekkert of alvar- lega. Frá og með fimmtudegin-um 23. janúar býðst bíl-eigendum á Suðurnesjum ódýr valkostur með því að nota sjálfsala sem ESSO hefur kom- ið upp á Hafnargötunni. Hand- hafar Safnkorts ESSO fá við- bótarafslátt sem nemur einni krónu á hvern líter. Áfram verður boðið upp á þá góðu þjónustu sem viðskiptavinir eru vanir að fá, velji þeir svo. „Með þessu erum við að aðlaga þjónustuna að breytingum í verslunarmunstri og tíðaranda undir kjörorðinu hraði, þægindi og ódýrt bensín. Það er búið að setja upp sjálfsala við ESSO stöðina á Hafnargötu og því geta þeir sem kjósa keypt eldsneyti, greitt fyrir með korti við dæluna og verið eldsnöggir að því. Þetta er nýjung að hafa sjálfsala við hverja einustu dælu og erum við með þessu að koma til móts við óskir viðskiptavina okkar,“ sagði Bergþóra Þorkelsdóttir rekstrar- stjóri ESSO stöðvanna í samtali við blaðið. Nú er það svo að sumir eru ragir við að nota nýja tækni og óttast að eitthvað fari úrskeiðis hjá þeim. En Tryggvi Guðmundsson stöðvarstjóri ESSO á Hafnargöt- unni segir það óþarfa áhyggjur. „Ef einhverjir eru hræddir við að prófa þetta þá leiðbeinum við fólki til að byrja með og raunar ætti þetta ekki að vefjast fyrir neinum. En þeir sem vilja fulla þjónustu geta gengið að úrvals- þjónustu,“ segir Tryggvi. Það er næsta víst að fólk tekur því fegins hendi að geta keypt bensín á fljótan og þægilegan hátt og sparað um leið. Auk þess veitir Safnkort ESSO einnar krónu afslátt til viðbótar fyrir utan það að kortinu fylgja ýmis góð tilboð. Hægt er að tengja safnkortið við debet- og krítar- kortin þannig að punktarnir koma inná það þótt greitt sé í sjálfsala. „Meginhugsunin hjá okkur er að geta boðið viðskipta- vininum val. Vilji hann greiða fyrir með korti í sjálfsala og vera snöggur í bensínkaupum getur hann það. Vilji hann frekar nýta sér okkar þjónustu velur hann það. Hver og einn velur þá þjón- ustuleið sem honum hentar. ESSO mun kappkosta að bjóða alltaf sérlega hagstæð verð á sjálfsafgreiðsludælum. Það má ennfremur koma fram, að við erum með fjórar bílaþvottastöðv- ar á höfuðborgarsvæðinu og þar veitum við 30% afslátt út þennan mánuð,“ sagði Bergþóra Þorkels- dóttir. Það kom einnig fram í máli Bergþóru, að þessi nýjung þýðir umtalsverða lækkun bensínverðs á höfuðborgarsvæðinu þegar á heildina er litið og hefur ESSO varið miklum fjármunum í að koma búnaðinum upp. :: maður vikunnar Nafn: Ólafía Sigurjónsdóttir Fædd: 9. apríl 1983 Atvinna: Án atvinnu í augnablikinu Maki: Makalaus Börn: Nei Hvaða bók ertu að lesa? Cosmopolitan ( er að hvíla heilann:)) Hvað er það fyrsta sem kemur í hugann þegar þú vaknar? Hvað er klukkan? Ef þú gætir unnið við hvað sem er, hvað væri það þá helst? Heilaskurðlæknir Hvað er það allra skemmtilegasta sem þú gerir? Ferðalög og ævintýri Hvað fer mest í taugarnar á þér? Smámunasemi og nirfilsháttur Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir þú breyta? Ég myndi leggja meiri áherslu á menntun og menningu og draga aðeins úr íþróttadýrkuninni. Svo myndi ég auðvitað fjarlægja allar hraðahindranirnar sem dritað var niður fyrir jólin. Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Jóga, hlusta á góða tónlist, tala við skemmtilegt fólk og drekk hamingjute. Hvað finnst þér mikilvægast að gera? Að sætta sig við sjálfan sig og að láta sér ekki leiðast. Hvað er með öllu ónauðsynlegt að þínu mati? Röfl og leiðindi. Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta rætast? Maður segir ekki frá leyndum draumum, þá rætast þeir ekki. Gætir þú lifað án síma, tölvu og sjónvarps? Nei, ég myndi drep- ast úr leiðindum. Hvað er mikilvægasta heimilistækið á heimilinu þínu? Græjurn- ar (hljómflutningstæki) Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur gert? Verklega bílpróf- ið: Drap þrisvar á bílnum og ók of hratt... 10 villur af 10 möguleg- um... náði samt! Lífsmottó: Þetta reddast! ESSO býður viðskiptavinum uppá að nota sjálfsala og spara þar með umtalsvert í bensínverði: Hraði, þægindi og ódýrt bensín eru kjörorð ESSO stöðvanna! Ólafía Sigurjónsdóttir dúx í Fjölbrautaskóla Suðurnesja: Virði tíu kameldýra! Sem dæmi um athyglina má nefna að þegar við stelpurnar vor- um að ganga um göturnar hikuðu marokkósku karlarnir ekki við að reyna að bjóða í okkur, boðið í mig fór upp í 10 kameldýr 5. tbl. 2003 - bls. 20-24 29.1.2003 17:23 Page 22

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.