Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 15
Elsku besti pabbi minn. Ég sit hérna og hugsa með mér hvernig sé eiginlega best að minnast þín. Mér finnst svo stutt síðan að við vorum öll að ganga í gegnum þetta sama og við erum að gera núna. Munurinn er sá að núna ert þú bara hinumegin við borðið og við hin sitjum eftir og skiljum bara alls ekki af hverju þú af öllum varst tekinn frá okk- ur líka. Þegar ég hugsa til baka dettur mér fyrst í hug sundferðirnar okkar upp í gömlu sundlaug. Þú varst svo duglegur að kenna mér að synda og svo alltaf þegar við komum heim þá sagðir þú öllum að ég hefði staðið mig svo vel og ég væri sko þvílík sunddrottning! Þú varst alltaf að kenna mér eitt- hvað nýtt. Svo er ekki laust við að hugurinn leiti upp í Skorradal. Þar áttum við öll svo ótrúlega góðar stundir. Þú varst alltaf að finna eitthvað handa okkur að gera. Við fórum í óteljandi fjallgöngur, ferðir út á bát, berjatínsluferðir inn dalinn, í fótbolta niðri á velli og að gefa hestunum brauð. Við munum öll alltaf eftir sögunum um Brún og brauðið. Þessum sögum og öllum ævintýrunum hefur þú síðan haldið á líf i og núna eru það barnabörnin þín sem að hlusta og segja öðrum frá. Til dæmis bíða allir spenntir eftir að keyra fram- hjá rebbahúsinu á leiðinni inn dalinn. Ég er búin að hugsa mikið um hvernig þú hefur alltaf staðið við bakið á mér. Ég hef ekkert alltaf farið réttar leiðir í lífinu eins og við vitum, en þú stóðst samt sem áður alltaf við bakið á mér. Þú og mamma, klettarnir mínir. Ég hef í raun og veru aldrei fengið tæki- færi til að þakka þér fyrir það. Eins og þegar litla Vilborg veikt- ist og þú og mamma komuð inn á spítala um hánótt og þú stapp- aðir í okkur stálinu þó svo að þú hafir verið alveg jafn hræddur um hana og við. Það máttu eiga elsku pabbi minn að þú varst alltaf snillingur í að láta mér líða betur. Ég mun aldrei koma til með að skilja hvernig þú varst tekinn frá okkur. En eins og þú sagðir svo oft eftir að Villi bróðir fór, okkur er ekkert ætlað að skilja svona. Við ráðum engu um það hvenær eða hvernig við förum. Ég trúi því að ævi manns sé ráðin daginn sem maður fæðist. Manni er ætl- að sitt hlutverk visst lengi og svo er það undir manni sjálfum kom- ið hvernig maður kýs að leysa þetta hlutverk af hendi. Þú leystir þitt betur en nokkur annar og í mínum augum verður þú alltaf hetja. Hetjan okkar allra. Núna er aftur komið myrkur hjá hjá okkur fjölskyldunni því að eitt skærasta ljósið í okkar lífi er farið. Við grátum þig öll, elsku pabbi, en þó enginn eins og öll litlu barnabörnin þín. Sem betur fer hafa þau ekki öll vit á því hvað er að gerast, en ég skal lofa þér því að þau eiga öll eftir að muna eftir Villa afa. Besta afa í heimi. Núna er komið að okkur að standa eins og klettar við bakið á mömmu og við bakið á hvert öðru. Vera dugleg og hjálpa hvort öðru í gegnum þessa erfiðu tíma. Ég veit að við erum ekki þau einu sem að eigum um sárt að binda. Við huggum okkur við það að núna ertu kominn til beggja drengjanna þinna, Villa og Ásgeirs, mömmu þinnar og ömmu og afa og við vitum að þau hafa öll tekið vel á móti þér. Elsku pabbi minn, fyrir mína hönd og hönd fjölskyldu minnar að þá kveð ég þig með mikinn trega í hjarta, ég var alls ekki til- búin að sjá á eftir þér. Ég, Nonni, Rúnar og sérstaklega Vilborg eig- um eftir að sakna þess mikið að fá þig ekki í heimsókn rétt fyrir klukkan átta á kvöldin til þess eins að gera hana pínulítið óþekka áður en hún færi að sofa. Ég bið góðan Guð að vaka yfir þér pabbi minn og ég þakka fyrir þann tíma sem við fengum að eiga saman. Minningin um besta og yndislegasta pabba í heimi mun lifa að eilífu í hjörtum okk- ar. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Þín dóttir, Vala Rún Elsku pabbi. Það er ferskt í minni mínu samtal okkar sem við áttum á laugar- daginn. Þá eins og svo oft áður voru barnabörnin hjá afa sínum þar sem þeim þótti svo gott að vera. En heimur minn hreinlega hrundi síðar um kvöldið þegar mamma hringdi og tilkynnti mér að þú værir dáinn. Hvernig getur það verið, fullfrískur maður á besta aldri? Þetta sýnir mér að við eigum okkur öll merktan dag og þegar hann rennur upp er hvorki spurt um stað né stund. Öll skólagangan í skólanum hjá þér var frábær og sérréttindi að fá að eiga pabba sem skólastjóra. Þegar þú varst bæjarstjóri hótaði ég að reka mann og annan úr bænum ef þeir voru eitthvað að plaga mig. Þvílíkt var álitið á þér að ég taldi þig allsráðandi. Skorradalsferðirnar eru mér sér- staklega minnisstæðar og sögurn- ar sem sagðar voru alla leiðina voru einstakar. Var sérstaklega gaman að upplifa þær aftur með barnabörnum. Þegar ég var á sjónum hafðir þú allaf brennandi áhuga að vita hvernig gekk og ef við vorum ekki símasambandi fylgdist þú með í gegnum tilkynningarskyld- una. Mér er sérstaklega minnisstætt einn dag í ágúst árið 1997 er ég kom heim ofan af jökli þar sem ég vann. Þá varst þú búinn að fylla út og senda fyrir mig um- sókn um skólavist í Ameríku, sem hafði verið að blunda í mér í talsverðan tíma, og sagðir að ef ég kynni ekki við mig gæti ég bara hætt og komið heim. Í dag á ég þessu námi sem að þú ýttir mér útí það að þakka að ég á yndislega konu og litla dóttur. Þau eru mér líka í fersku minni skiptin sem þið mamma komuð í heimsókn til okkar í Manchester og við fórum í leikhús draum- anna, Old Trafford. Þótt þú værir harður Leedsari, skemmtum við okkur konunglega vel. Allar þær yndislegu minningar sem fljóta um í huga mínum eru mér mjög dýrmætar en það sem syrgir mig meira en nokkuð ann- að er að Svava Ósk dóttir mín fái ekki að kynnast afa sínum í eigin persónu. Eins og mamma hennar segir, þá hefur hún aldrei kynnst yndislegri manni en þér. Það hef ég ekki heldur gert og mun aldrei gera. Ég veit það pabbi minn að fríður flokkur hefur tekið á móti þér handan móðunnar miklu með bræður mína Villa og Ásgeir fremsta í flokki ásamt ömmu. Það er með mikilli sorg og mikl- um söknuði sem ég kveð þig í hinsta sinn elsku besti pabbi minn Þinn sonur, Svanur Myrkur á Ljósanótt. Regnið lemur rúðurnar. Aksturinn á milli Keflavíkur og Reykjavíkur tekur lengri tíma vitandi það að þú ert dáinn. Minningarnar hrannast upp í huganum. Lítill 2 ára strákur stendur í glugganum í íbúð á jarðhæð í Skipholtinu í Reykjavík. Fyrir utan gluggann eru ein umferðar- þyngstu gatnamót Reykjavíkur á þeim tíma. Spurningum rignir inn í íbúðina. Hvað heitir þessi bíll? Hvað heitir þessi bíll? Pabbi er kominn um leið og svar- ar hverri spurningu samvisku- samlega. Þetta voru Cortina, Mustang, Mercury, Moscvitch, Skoda, Comet og hvað nöfnum tjáir að nefna. Ekki er hætt fyrr en búið er að fylla viskubrunninn á hverjum degi. Fjölskyldan flutti aftur til Kefla- víkur og þótti drengurinn þar á þessum árum nánast gangandi al- fræðiorðabók um bílategundir og vinir og starfsfélagar pabbans gerðu það til gamans að benda á bíla og spyrja hvers tegundar væri. Verðlaunin fyrir réttu svörin voru gjarnan amerískt sælgæti eða gos í dósum, sem fékkst ekki annars staðar en á Keflavíkur- flugvelli á þessum árum. Það var gulls ígildi. Til að svala hinum mikla bílaáhuga drengsins var farið í Leikhólma, annan hvern föstudag og keyptur einn Match- box bíll. Úr varð meira safn bíla en þekktist á flestum heimilum. Skömmu áður en skólavist hófst, fékk fjölskyldan þau gleðitíðindi að pabbi hefði verið ráðinn skólastjóri, aðeins 28 ára að aldri. Að eiga skólastjóra sem pabba hafði bæði sína kosti og galla. Aðallega þó kosti. Pabba farnað- ist vel í starf i. Upplýsingar komu oft um það frá krökkum sem send höfðu verið í tiltal til skólastjórans að þetta væri skrýt- inn pabbi. Það að vera boðið uppá Floridana og kex, þegar bú- ist var við hinum verstu skömm- um, þótti í meira lagi skrýtið. Á þessum árum var knattspyrna íþróttin. Pabbi hafði þjálfað eldri pilta áður með góðum árangri. Það var því mikið gleðiefni að hann skyldi þjálfa 5. flokk ÍBK þetta sumarið. Liðið komst tap- laust í úrslitakeppni sem leikinn var á Akureyri. Fyrir liðið var þetta sem heimsmeistarakeppni. Það kom þeim sem þekktu pabba ekki á óvart að hann barðist með sínum mönnum alla leið. Einn dómari fékk að kenna á því og skólastjórinn var settur í bann í síðasta leik í riðlakeppninni. Eitt jafntefli og liðið missti af úrslita- leik á markatölu. Einhver hafði á orði um hann að það væri ótrú- legt hvað knattspyrna gæti breytt slíku ljúfmenni. Á þessu ári var lífslexían kennd. Í kringum knattspyrnuleik. Maddi minn, maður á ekki bara hugsa um sjálfan sig. Allar rós- irnar í garðinum þurfa að fá að blómstra. Garður með einu fal- legu blómi er ekki fallegur garð- ur. Hjálpaðu rósunum í kringum þig að blómstra. Það er erfitt að sætta sig við að þú sérst farinn frá okkur langt fyrir aldur fram. Þú áttir alltaf nóg til að gefa af þér. Nú voru það barnabörnin sem mest fengu að njóta, enda vildu þau öll helst búa hjá ykkur mömmu á Háholt- inu. Góðar minningar munu fylgja okkur alla tíð. Hvíldu í friði elsku pabbi minn. Takk fyrir allt. Þinn Margeir Það var sunnudagur, það var september og árið var 2000. Við Margeir fórum í bíltúr og var ferðinni heitið suður með sjó. Fyrsta stopp var Bláa lónið, það- an keyrðum við í Hafnirnar og sýndi Margeir mér m.a. Brautar- hól þar sem langamma hans hafði búið. Því næst var keyrt til Sandgerðis og Leiruleiðina til Keflavíkur. Áður en ég vissi af vorum við stopp fyrir utan Há- holt 19. Margeir drap á bílnum og steig út. Ég hinsvegar haggað- ist ekki. Komdu inn, sagði hann við mig, það er kominn tími til og svo gekk hann inn. Ég sat enn í bílnum og hugsaði með mér að ég gæti nú ekki hitt foreldra hans í fyrsta skipti eins og ég var til fara, í íþróttagalla og ómáluð. Hann minntist ekkert á að við færum hingað hugsaði ég, annars hefði ég sett upp andlit og farið í betri föt. Við Margeir höfðum þekkst í fimm ár og verið mjög góðir vin- ir síðustu tvö. Ég vissi hver Garðar og Svanur voru, hafði séð þá öðru hverju á golfvellinum, Villa yngri hafði ég hins vegar þekkt mun betur. Hann vann með okkur við golfþing sem GR hélt árið 1999 og einnig var ég svo lánsöm að kynnast honum enn betur á Landsmótinu í golfi sem haldið var á Akureyri í ágúst árið 2000. Í dag er sá tími ómetanleg- ur, ekki bara fyrir mig heldur Margeir líka. Völu systur hafði ég ekki hitt. Ekki gat ég setið út í bíl svo inn fór ég á eftir Margeiri. Frá þessum degi hef ég ekki þurft að hika við að fara út úr bílnum þegar við höfum rennt suður. Mér var strax vel tekið og Vil- hjálmur og Sigrún létu mig finna það alveg frá upphafi að á Há- holtið væri ég alltaf velkomin. Betri tengdaforeldra er ekki hægt að hugsa sér. Villi, eins og hann var alltaf kall- aður, hafði alla tíð stundað íþrótt- ir og ég hugsaði það oft þegar ég hitti hann hvað það væri mikill munur að sjá fimmtugan mann svona vel á sig kominn. Þegar við Margeir fluttum í Hamravík- ina tók Villi ekki annað í mál en að fá að leggja parketið og flís- arnar og mætti hann eftir vinnu til okkar og parket og flísar var lagt á mettíma. Aðra eins barna- gælu hafði ég heldur ekki hitt. Það leið varla sú helgi að Viktor bæði ekki um að fara til Kefla- víkur að hitta afa Villa, hann vildi helst búa í Keflavík. Barnabörnin voru stór þáttur í lífi Villa og hann fann alltaf tíma fyrir þau. Síðustu 8 mánuði hafa þrjú barnabörn fæðst og það hef- ur verið unun að fylgjast með þeim í fangi Villa. Hann hafði sérstakt lag á að ná athygli þeirra, nokkuð sem ég hef aldrei fyrr séð og mun aldrei sjá aftur. Dag- ur minn var ekki gamall þegar Villa tókst að fá hann til að brosa og aldrei hef ég heyrt lítið barn hlæja jafn dátt í fangi nokkurs manns og hjá afa Villa. Ásgeir, Brynjar, Katla og Viktor hafa 16 f VF 37. tbl. minning 9/10/03 14:42 Page 16

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.