Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 16
misst mikið en sá tími sem afi Villi átti með þeim er þeim ómet- anlegur. Dagur, Vilborg og Svava Ósk áttu öll sína fáu en yndislegu mánuði með honum og ég veit að hann mun áfram fylgjast með þeim og leika við þau á sinn einstaka hátt. Í dag er skírnardagur Dags og Svövu Óskar mér efst í huga. Við Margeir vorum ekki á leiðinni að skíra strax en í dag er ég þakklát fyrir að Háholt 19 og laugardag- urinn 2.ágúst síðasliðinn hafi orðið fyrir valinu. Minningin um ferðina uppí Skorradal með fjöl- skyldunni eftir skírnina mun alltaf lifa. Ég er ekki enn búin að ná því að þú sért dáinn elsku Villi minn og ég mun aldrei sætta mig við þetta. Þetta er bara rugl. Elsku Sigrún mín, missir þinn og ykkar allra er mikill og það er ekki rétt að leggja svona mikið á eina fjölskyldu. Styrkur þinn síðustu daga hefur verið alveg ótrúlegur og heldur okkur hinum gangandi á þessum erfiðu tím- um. Elsku Margeir minn,Viktor og Dagur litli, ég get lítið annað gert en að hugsa vel um ykkur og við vitum að af i Villi var bestur. Garðar, Svanur og Vala, þið hafið misst mikið og sendi ég ykkur og fjölskyldum ykkar mínar dýpstu samúðarkveðjur. Ketill minn, það er mikið á þig lagt elsku vinur en við vitum að Villi er í góðum höndum ömmu Valgerðar og Vil- hjálms yngri. Bræðrum Villa og fjölskyldum þeirra votta ég einn- ig mína dýpstu samúð. Villi minn, hvíl í friði og við höldum áfram þar sem frá var horfið þegar við hittumst á ný. Þín Hebba. Elsku Villi, Þú varst kallaður í burtu frá okk- ur öllum svo óvænt að við sitjum öll og varla trúum að þetta hafi gerst. En lífið getur stundum ver- ið svo óréttlátt. Þú sem varst sá heilbrigðasti af okkur öllum. En í sorg okkar verður við að trúa því að Guð hafi annað og mikilvæg- ara verkefni fyrir þig. Þú varst kletturinn í lífi okkar, sá sem við gátum alltaf treyst á ef eitthvað bjátaði á. Mér finnst bara eins og það hafið verið í gær sem við stóðum í þessum sporum og syrgðum Villa yngri, en þó eru liðin þrjú ár. Við getum huggað okkur við það að nú eru þið feðgar saman og mamma þín hjá ykkur líka. Ég vil bara vera eig- ingjörn og mér finnst þetta mjög ósanngjarnt, þótt ekki sé nema út af öllum afabörnunum. Þau voru þitt líf og yndi. Þú elskaðir þau öll svo mikið og varst óspar á að hvísla því í litlu eyrun þeirra. Ég heyrði oft til þín og mér þótti svo ofsalega vænt um það. Ég veit að það verður erfitt fyrir þau að skilja að afi kemur ekki aftur því þú varst svo stór hluti af líf i þeirra. Hvort sem það voru ferð- irnar í Skorradalinn, sundferðir, hjólaferðir, gefa fuglum brauð á Fitjum, rúnta út í Hafnir, fara í kirkjugarðinn til Villa frænda, eða að fá að sofa á Háholtinu, sem var ósjaldan. Lengi vel voru afastrákarnir bara þrír og þeir gerðu alla þessa hluti saman. Enginn var útundan. Þeg- ar lítil prinsessa bættist í hópinn var afi ánægður. Það var kominn tími á stelpu í strákahópinn. Eftir því sem Katla Rún óx varð hún hændari að afa sínum og hann að henni. Þið voruð ótrúleg saman. Hún gat spilað soldið með hann afa sinn. Það þurfti ekki mikið suð þá varstu rokinn af stað og búinn að segja já við öllum henn- ar óskum. En svona vildir þú hafa þetta. Ég sagði oft við þig að þetta kæmi nú í bakið á þér að láta svona eftir stelpunni, en þú hafðir bara lúmst gaman af þessu öllu. Á þessu ári bættust svo þrjú barnabörn í hópinn, tvær stelpur og einn strákur, þannig að barna- börnin voru allt í einu orðin sjö. En þér tókst að gefa öllum tíma. Það var enginn útundan, meira að segja Katla Rún sem átti í afa sínum hvert bein skildi alveg að nú væri hún stóra frænka og yrði að hjálpa til með litlu frænkur og frænda. Sorglegast er að þau litlu fá aldrei að kynnast afa sínum, en við sem eftir erum verðum að vera dugleg að segja þeim frá þér. Að lokum vil ég segja þér Villi minn að mér finnst svo gott til þess að hugsa að síðustu nóttina sem þú lifðir fengu Katla Rún og Brynjar Freyr að sofa hjá afa sín- um í Völu rúmi. Þú hafðir eins og svo oft áður hringt í mig á föstu- daginn og spurt hvort þú mættir ekki sækja Kötlu í leikskólann og fara með hana á Duus þar sem verið var að opna listasýningu hjá gömlum vini þínum. Þú fórst með prinsessuna með þér og þú varst svo montinn með hana því hún var svo stillt og prúð. Síðan bauðstu Brynjari líka að gista sem hann auðvitað þáði því það var svo gott að dvelja á Háholt- inu í góðu yfirlæti. Elsku Villi minn takk fyrir allt, með sorg og trega í hjarta kveð ég þig og ég bið Guð að styrkja okkur öll. þín tengdadóttir, Kristín Jóna Elsku afi, Þú varst alltaf góður við okkur og alla krakka. Öllum þótti vænt um þig og enginn vildi missa þig. Við gleymum aldrei sögunum sem þú sagðir okkur. Þú varst bara einum of góður til að vera tekinn burt frá okkur. Þú varst hreinlega besti afi í heimi og við söknum þín mikið. Vertu guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni. Amen Þín Ásgeir Elvar, Brynjar Freyr og Katla Rún Kæri bróðir, á fallegum og skemmtilegum degi Ljósanætur minnir sorgin, systir gleðinnar sem var jú í aðalhlutverki þennan dag, á sig. Á ýmsu átti ég von Villi minn, en ekki þessu. Þú þessi hrausti og reglusami maður ert tekinn frá okkur fyrirvaralaust. Ég hélt að við hefðum verið búin að fá okkar skammt í bili, fyrst Villi þinn og svo mamma. Þú hittir þau fyrr en ráð var fyrir gert. En svona er lífið, ekki alltaf mjög sanngjarnt. Óskiljanlegt, satt að segja. Þú varst ekki aðeins elstur okkar bræðra, þú varst höfuð fjölskyld- unnar, foringinn. Ákveðinn, fylg- inn þér, nákvæmur og vinnu- samur. Kostir sem flestir foringj- ar hafa. Þeir komu þér til góða í þínum fjölbreyttu störfum. Þér var treyst til góðra verka. Aðeins 36 ára varst þú bæjarstjóri í Keflavík. En best kunnir þú við þig innan um börn og unglinga og þess vegna snerir þú aftur í skólann þinn, þar sem þú kunnir best við þig. Þú áttir svo auðvelt með að vinna með unga fólkinu sem sést best á ferli þínum sem skólastjóri og æskulýðsfulltrúi. Þú hittir þína elskulegu Sigrúnu, eftirlifandi eiginkonu þegar þið voruð fimmtán ára og hafið verið saman síðan. Í nær fjörtíu ár. Ykkur varð margra barna auðið en þið þurftum að taka á móti sorginni í tvígang, fyrst þegar þið misstuð Ásgeir nýfæddan og síðan Vilhjálm sem dó tvítugur fyrir þremur árum. Þá reyndi mikið á þig og ykkur en það var með ólíkindum hvað þið voruð sterk í þessari miklu sorg. Þú fylgdist alltaf vel með þínu fólki. Þú passaðir mig lítinn og í raun alveg þar til ég varð stálp- aður. Ég man svo vel þegar ég byrjaði með Víkurfréttir að ég fór fyrstu árin alltaf heim til þín og lét þig fá eintak, rétt áður en því var dreift. Ég leitaði oft til þín með ráðleggingar, það var svo gott að leita ráða hjá þér. Við unnum saman að mörgum málum og síðastliðið vor gerðum við saman blað, Mylluna, fyrir skólann þinn, Myllubakkaskóla. Þú fórst oft þínar leiðir og vildir fá sérblað fyrir skólann. Þú ljósmyndaðir sjálfur nokkur hundruð nemendur og við gerðum þetta fína blað. Þú ætlaðir að hætta að vinna sex- tugur, ekki degi seinna. Þetta fannst mér skemmtilegt markmið og við Ásdís mín, ræddum það oft og sáum þig fyrir okkur sem rithöfund. Þú áttir svo ótrúlega auðvelt með að skrifa skemmti- legan og góðan texta. Ósjaldan stóðst þú upp og talaðir til fólks á tímamótum, t.d. á fertugsafmæli mínu og einnig í Ásdísar afmæli í sumar. Því gleymi ég aldrei, það sem þú sagðir og hvernig þú sagðir það. Ég geymi þetta á myndbandi og á eftir að ylja mér við það síðar. Ég skoðaði myndavélina þína fyrir nokkrum dögum. Nokkur hundruð myndir frá sumrinu, nær allar af barnabörnunum sem eru þrjú ný á þessu ári. Þú varst svo ótrúlegur afi og það sást svo vel hvernig þú varst við öll börn, úr þinni fjölskyldu og einnig í skólanum. Þú varst barnamaður. Mér f innst ótrúlega erf itt að skrifa um þig kæri bróðir, því þú varst mér svo mikil fyrirmynd. Svo stór í mínum huga. Ég sakna þín svo mikið. En lífið heldur áfram. Minningarnar um þig koma í röðum í huganum, allt frá því ég passaði fyrir ykkur í risinu á Ásabrautinni í Keflavík og var sem pjakkur að klippa út fót- boltaumsagnir um þig í blöðunum, fram á þinn lokadag hérna megin sem var síðastliðinn laugardag, á Ljósanótt. Ég beið eftir að þú kæmir til að skoða ljósmyndasýninguna mína. Í stað þín kom lögreglan með mynd af þér. Hvernig á maður að skilja svona lagað. Það mun taka sinn tíma. Sjáumst síðar elsku Villi. Þinn bróðir, Páll Hilmar. Hinzta kveðja Sárt er vinar að sakna, sorgin er djúp og hljóð. Minningarnar mætar vakna, svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta, lýsir upp myrkrið svarta, Vinir þó falli frá. Góðar minningar geyma, gefur syrgjendum ró. Til þín munu þakkir streyma, þér munum við ei gleyma, sofðu í sælli ró. Ég kveð ástkæran mág minn með söknuði og þakklæti fyrir allt sem hann var okkur fjöl- skyldunni á Bragavöllunum. Hann var hornsteinn stórfjöl- skyldunnar og hjartahlýrri manni hef ég ekki kynnst. Ég veit að nú hittast þau hinum megin, Villi og Ásgeir synir hans og Gerða móð- ir hans. Það verða fagnaðarfund- ir. Ég bið Guð að styrkja Sigrúnu, börnin og aðra ástvini. Þín mágkona Ásdís Björk. Dauðinn birtist í svo mörgum ólíkum myndum, stundum kem- ur hann hægt og nánast falinn eða svo hratt að augað eigi festir. Þessi orð lét Villi bróðir falla í minningargrein um móður okkar fyrir rétt rúmu ári síðan. Varla hefðum við getað ímyndað okkur þá, að eitthvað slíkt myndi henda okkur svo fljótt aftur, rétt um það leyti sem birta tók á ný í hjörtum okkar allra. Nú sjáum við á eftir okkar elsta bróður í faðm hins al- máttuga, bróður sem í senn var fyrirmynd hreysti, elju og dugn- aðar, fyrirmynd skóla- og upp- eldismála og síðast en ekki síst, var hann fyrirmyndar faðir, afi og bróðir. Sýndi það og sannaði jafnvel allt í sömu andránni! Vandamál sem öðrum óx í aug- um, voru jafnvel óyfirstíganleg á stundum, leystust í meðförum hans af meðfæddri umhyggju og ástúð fyrir mannfólki, hvar sem það var statt í lífinu. Mest þó hjá þeim sem minna máttu sín og höfðu orðið undir í lífsbaráttunni og kapphlaupi tímans. Hugur minn reikar aftur til Tún- götunnar, þar sem við bræður ól- umst upp í kotinu litla, umvafðir kærleika og kátínu. Villi var þó fljótur að finna sér lífsförunaut og fyrr en varði, var hann floginn úr hreiðrinu með Sigrúnu sinni, rétt um það bil sem ég komst til vits og ára. Ég man þó vel eftir því þegar hann kom heim úr heimshornaflakki frá Bermúda og færði okkur yngstu bræðrum boli, merktum landinu fjarlæga og allir supu hveljur í skólanum, af öfund. Við fylgdumst vel með því þegar hann kleif upp met- orðastigann í fótboltanum, söfn- uðum og klipptum út umsagnir í blöðunum um baráttu hans og vilja á knattvellinum, eitthvað sem hann átti síðar meir eftir að tileinka sér í hinu daglega lífi og verða öðrum til eftirbreytni. Ófáar stundir sat ég hjá Villa og Sigrúnu á Ásabrautinni og pass- aði gormana þeirra yngstu, sem þá voru orðnir tveir, annar gæða- blóð en hinn hamhleypa. Gleymi því aldrei hversu gaman var að vera sóttur í grænu Chevy Novunni og síðan ekið heim í hendingskasti, á kolólöglegum hraða, af því litla bróður fannst svo gaman að renna til á sætis- bekknum í amerísku drossíunni. Oftast þá með nokkra hundrað- kalla í vasanum fyrir viðveruna, sem fór þó að mestu í sjónvarps- gláp í pínulitla Kanasjónvarps- tækinu. Þegar ég hinsvegar nálgast tán- ingsaldurinn er Villi farinn að 17 Vilhjálmur Ketilsson f. 13.4. 1950 d. 6.9. 2003 VF 37. tbl. minning 9/10/03 14:42 Page 17

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.