Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 16
misst mikið en sá tími sem afi
Villi átti með þeim er þeim ómet-
anlegur. Dagur, Vilborg og
Svava Ósk áttu öll sína fáu en
yndislegu mánuði með honum
og ég veit að hann mun áfram
fylgjast með þeim og leika við
þau á sinn einstaka hátt.
Í dag er skírnardagur Dags og
Svövu Óskar mér efst í huga. Við
Margeir vorum ekki á leiðinni að
skíra strax en í dag er ég þakklát
fyrir að Háholt 19 og laugardag-
urinn 2.ágúst síðasliðinn hafi
orðið fyrir valinu. Minningin um
ferðina uppí Skorradal með fjöl-
skyldunni eftir skírnina mun
alltaf lifa.
Ég er ekki enn búin að ná því að
þú sért dáinn elsku Villi minn og
ég mun aldrei sætta mig við
þetta. Þetta er bara rugl.
Elsku Sigrún mín, missir þinn
og ykkar allra er mikill og það er
ekki rétt að leggja svona mikið á
eina fjölskyldu. Styrkur þinn
síðustu daga hefur verið alveg
ótrúlegur og heldur okkur hinum
gangandi á þessum erfiðu tím-
um.
Elsku Margeir minn,Viktor og
Dagur litli, ég get lítið annað gert
en að hugsa vel um ykkur og við
vitum að af i Villi var bestur.
Garðar, Svanur og Vala, þið hafið
misst mikið og sendi ég ykkur og
fjölskyldum ykkar mínar dýpstu
samúðarkveðjur. Ketill minn, það
er mikið á þig lagt elsku vinur en
við vitum að Villi er í góðum
höndum ömmu Valgerðar og Vil-
hjálms yngri. Bræðrum Villa og
fjölskyldum þeirra votta ég einn-
ig mína dýpstu samúð.
Villi minn, hvíl í friði og við
höldum áfram þar sem frá var
horfið þegar við hittumst á ný.
Þín Hebba.
Elsku Villi,
Þú varst kallaður í burtu frá okk-
ur öllum svo óvænt að við sitjum
öll og varla trúum að þetta hafi
gerst. En lífið getur stundum ver-
ið svo óréttlátt. Þú sem varst sá
heilbrigðasti af okkur öllum. En í
sorg okkar verður við að trúa því
að Guð hafi annað og mikilvæg-
ara verkefni fyrir þig. Þú varst
kletturinn í lífi okkar, sá sem við
gátum alltaf treyst á ef eitthvað
bjátaði á. Mér finnst bara eins og
það hafið verið í gær sem við
stóðum í þessum sporum og
syrgðum Villa yngri, en þó eru
liðin þrjú ár. Við getum huggað
okkur við það að nú eru þið
feðgar saman og mamma þín hjá
ykkur líka. Ég vil bara vera eig-
ingjörn og mér finnst þetta mjög
ósanngjarnt, þótt ekki sé nema út
af öllum afabörnunum. Þau voru
þitt líf og yndi. Þú elskaðir þau
öll svo mikið og varst óspar á að
hvísla því í litlu eyrun þeirra. Ég
heyrði oft til þín og mér þótti svo
ofsalega vænt um það. Ég veit að
það verður erfitt fyrir þau að
skilja að afi kemur ekki aftur því
þú varst svo stór hluti af líf i
þeirra. Hvort sem það voru ferð-
irnar í Skorradalinn, sundferðir,
hjólaferðir, gefa fuglum brauð á
Fitjum, rúnta út í Hafnir, fara í
kirkjugarðinn til Villa frænda,
eða að fá að sofa á Háholtinu,
sem var ósjaldan.
Lengi vel voru afastrákarnir bara
þrír og þeir gerðu alla þessa hluti
saman. Enginn var útundan. Þeg-
ar lítil prinsessa bættist í hópinn
var afi ánægður. Það var kominn
tími á stelpu í strákahópinn. Eftir
því sem Katla Rún óx varð hún
hændari að afa sínum og hann að
henni. Þið voruð ótrúleg saman.
Hún gat spilað soldið með hann
afa sinn. Það þurfti ekki mikið
suð þá varstu rokinn af stað og
búinn að segja já við öllum henn-
ar óskum. En svona vildir þú
hafa þetta. Ég sagði oft við þig
að þetta kæmi nú í bakið á þér að
láta svona eftir stelpunni, en þú
hafðir bara lúmst gaman af þessu
öllu. Á þessu ári bættust svo þrjú
barnabörn í hópinn, tvær stelpur
og einn strákur, þannig að barna-
börnin voru allt í einu orðin sjö.
En þér tókst að gefa öllum tíma.
Það var enginn útundan, meira
að segja Katla Rún sem átti í afa
sínum hvert bein skildi alveg að
nú væri hún stóra frænka og yrði
að hjálpa til með litlu frænkur og
frænda. Sorglegast er að þau litlu
fá aldrei að kynnast afa sínum,
en við sem eftir erum verðum að
vera dugleg að segja þeim frá
þér.
Að lokum vil ég segja þér Villi
minn að mér finnst svo gott til
þess að hugsa að síðustu nóttina
sem þú lifðir fengu Katla Rún og
Brynjar Freyr að sofa hjá afa sín-
um í Völu rúmi. Þú hafðir eins og
svo oft áður hringt í mig á föstu-
daginn og spurt hvort þú mættir
ekki sækja Kötlu í leikskólann og
fara með hana á Duus þar sem
verið var að opna listasýningu
hjá gömlum vini þínum. Þú fórst
með prinsessuna með þér og þú
varst svo montinn með hana því
hún var svo stillt og prúð. Síðan
bauðstu Brynjari líka að gista
sem hann auðvitað þáði því það
var svo gott að dvelja á Háholt-
inu í góðu yfirlæti.
Elsku Villi minn takk fyrir allt,
með sorg og trega í hjarta kveð
ég þig og ég bið Guð að styrkja
okkur öll.
þín tengdadóttir,
Kristín Jóna
Elsku afi,
Þú varst alltaf góður við okkur og
alla krakka. Öllum þótti vænt um
þig og enginn vildi missa þig.
Við gleymum aldrei sögunum
sem þú sagðir okkur. Þú varst
bara einum of góður til að vera
tekinn burt frá okkur. Þú varst
hreinlega besti afi í heimi og við
söknum þín mikið.
Vertu guð faðir, faðir minn
í frelsarans Jesú nafni.
Hönd þín leiði mig út og inn
svo allri synd ég hafni.
Amen
Þín Ásgeir Elvar, Brynjar
Freyr og Katla Rún
Kæri bróðir,
á fallegum og skemmtilegum
degi Ljósanætur minnir sorgin,
systir gleðinnar sem var jú í
aðalhlutverki þennan dag, á sig.
Á ýmsu átti ég von Villi minn, en
ekki þessu. Þú þessi hrausti og
reglusami maður ert tekinn frá
okkur fyrirvaralaust. Ég hélt að
við hefðum verið búin að fá
okkar skammt í bili, fyrst Villi
þinn og svo mamma. Þú hittir
þau fyrr en ráð var fyrir gert. En
svona er lífið, ekki alltaf mjög
sanngjarnt. Óskiljanlegt, satt að
segja.
Þú varst ekki aðeins elstur okkar
bræðra, þú varst höfuð fjölskyld-
unnar, foringinn. Ákveðinn, fylg-
inn þér, nákvæmur og vinnu-
samur. Kostir sem flestir foringj-
ar hafa. Þeir komu þér til góða í
þínum fjölbreyttu störfum. Þér
var treyst til góðra verka. Aðeins
36 ára varst þú bæjarstjóri í
Keflavík. En best kunnir þú við
þig innan um börn og unglinga
og þess vegna snerir þú aftur í
skólann þinn, þar sem þú kunnir
best við þig. Þú áttir svo auðvelt
með að vinna með unga fólkinu
sem sést best á ferli þínum sem
skólastjóri og æskulýðsfulltrúi.
Þú hittir þína elskulegu Sigrúnu,
eftirlifandi eiginkonu þegar þið
voruð fimmtán ára og hafið verið
saman síðan. Í nær fjörtíu ár.
Ykkur varð margra barna auðið
en þið þurftum að taka á móti
sorginni í tvígang, fyrst þegar þið
misstuð Ásgeir nýfæddan og
síðan Vilhjálm sem dó tvítugur
fyrir þremur árum. Þá reyndi
mikið á þig og ykkur en það var
með ólíkindum hvað þið voruð
sterk í þessari miklu sorg.
Þú fylgdist alltaf vel með þínu
fólki. Þú passaðir mig lítinn og í
raun alveg þar til ég varð stálp-
aður. Ég man svo vel þegar ég
byrjaði með Víkurfréttir að ég fór
fyrstu árin alltaf heim til þín og
lét þig fá eintak, rétt áður en því
var dreift. Ég leitaði oft til þín
með ráðleggingar, það var svo
gott að leita ráða hjá þér. Við
unnum saman að mörgum
málum og síðastliðið vor gerðum
við saman blað, Mylluna, fyrir
skólann þinn, Myllubakkaskóla.
Þú fórst oft þínar leiðir og vildir
fá sérblað fyrir skólann. Þú
ljósmyndaðir sjálfur nokkur
hundruð nemendur og við
gerðum þetta fína blað.
Þú ætlaðir að hætta að vinna sex-
tugur, ekki degi seinna. Þetta
fannst mér skemmtilegt markmið
og við Ásdís mín, ræddum það
oft og sáum þig fyrir okkur sem
rithöfund. Þú áttir svo ótrúlega
auðvelt með að skrifa skemmti-
legan og góðan texta. Ósjaldan
stóðst þú upp og talaðir til fólks á
tímamótum, t.d. á fertugsafmæli
mínu og einnig í Ásdísar afmæli í
sumar. Því gleymi ég aldrei, það
sem þú sagðir og hvernig þú
sagðir það. Ég geymi þetta á
myndbandi og á eftir að ylja mér
við það síðar.
Ég skoðaði myndavélina þína
fyrir nokkrum dögum. Nokkur
hundruð myndir frá sumrinu, nær
allar af barnabörnunum sem eru
þrjú ný á þessu ári. Þú varst svo
ótrúlegur afi og það sást svo vel
hvernig þú varst við öll börn, úr
þinni fjölskyldu og einnig í
skólanum. Þú varst barnamaður.
Mér f innst ótrúlega erf itt að
skrifa um þig kæri bróðir, því þú
varst mér svo mikil fyrirmynd.
Svo stór í mínum huga. Ég sakna
þín svo mikið. En lífið heldur
áfram. Minningarnar um þig
koma í röðum í huganum, allt frá
því ég passaði fyrir ykkur í risinu
á Ásabrautinni í Keflavík og var
sem pjakkur að klippa út fót-
boltaumsagnir um þig í
blöðunum, fram á þinn lokadag
hérna megin sem var síðastliðinn
laugardag, á Ljósanótt. Ég beið
eftir að þú kæmir til að skoða
ljósmyndasýninguna mína. Í stað
þín kom lögreglan með mynd af
þér. Hvernig á maður að skilja
svona lagað. Það mun taka sinn
tíma.
Sjáumst síðar elsku Villi.
Þinn bróðir,
Páll Hilmar.
Hinzta kveðja
Sárt er vinar að sakna,
sorgin er djúp og hljóð.
Minningarnar mætar vakna,
svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta,
lýsir upp myrkrið svarta,
Vinir þó falli frá.
Góðar minningar geyma,
gefur syrgjendum ró.
Til þín munu þakkir streyma,
þér munum við ei gleyma,
sofðu í sælli ró.
Ég kveð ástkæran mág minn
með söknuði og þakklæti fyrir
allt sem hann var okkur fjöl-
skyldunni á Bragavöllunum.
Hann var hornsteinn stórfjöl-
skyldunnar og hjartahlýrri manni
hef ég ekki kynnst. Ég veit að nú
hittast þau hinum megin, Villi og
Ásgeir synir hans og Gerða móð-
ir hans. Það verða fagnaðarfund-
ir.
Ég bið Guð að styrkja Sigrúnu,
börnin og aðra ástvini.
Þín mágkona
Ásdís Björk.
Dauðinn birtist í svo mörgum
ólíkum myndum, stundum kem-
ur hann hægt og nánast falinn
eða svo hratt að augað eigi festir.
Þessi orð lét Villi bróðir falla í
minningargrein um móður okkar
fyrir rétt rúmu ári síðan. Varla
hefðum við getað ímyndað okkur
þá, að eitthvað slíkt myndi henda
okkur svo fljótt aftur, rétt um það
leyti sem birta tók á ný í hjörtum
okkar allra. Nú sjáum við á eftir
okkar elsta bróður í faðm hins al-
máttuga, bróður sem í senn var
fyrirmynd hreysti, elju og dugn-
aðar, fyrirmynd skóla- og upp-
eldismála og síðast en ekki síst,
var hann fyrirmyndar faðir, afi og
bróðir. Sýndi það og sannaði
jafnvel allt í sömu andránni!
Vandamál sem öðrum óx í aug-
um, voru jafnvel óyfirstíganleg á
stundum, leystust í meðförum
hans af meðfæddri umhyggju og
ástúð fyrir mannfólki, hvar sem
það var statt í lífinu. Mest þó hjá
þeim sem minna máttu sín og
höfðu orðið undir í lífsbaráttunni
og kapphlaupi tímans.
Hugur minn reikar aftur til Tún-
götunnar, þar sem við bræður ól-
umst upp í kotinu litla, umvafðir
kærleika og kátínu. Villi var þó
fljótur að finna sér lífsförunaut
og fyrr en varði, var hann floginn
úr hreiðrinu með Sigrúnu sinni,
rétt um það bil sem ég komst til
vits og ára. Ég man þó vel eftir
því þegar hann kom heim úr
heimshornaflakki frá Bermúda
og færði okkur yngstu bræðrum
boli, merktum landinu fjarlæga
og allir supu hveljur í skólanum,
af öfund. Við fylgdumst vel með
því þegar hann kleif upp met-
orðastigann í fótboltanum, söfn-
uðum og klipptum út umsagnir í
blöðunum um baráttu hans og
vilja á knattvellinum, eitthvað
sem hann átti síðar meir eftir að
tileinka sér í hinu daglega lífi og
verða öðrum til eftirbreytni.
Ófáar stundir sat ég hjá Villa og
Sigrúnu á Ásabrautinni og pass-
aði gormana þeirra yngstu, sem
þá voru orðnir tveir, annar gæða-
blóð en hinn hamhleypa. Gleymi
því aldrei hversu gaman var að
vera sóttur í grænu Chevy
Novunni og síðan ekið heim í
hendingskasti, á kolólöglegum
hraða, af því litla bróður fannst
svo gaman að renna til á sætis-
bekknum í amerísku drossíunni.
Oftast þá með nokkra hundrað-
kalla í vasanum fyrir viðveruna,
sem fór þó að mestu í sjónvarps-
gláp í pínulitla Kanasjónvarps-
tækinu.
Þegar ég hinsvegar nálgast tán-
ingsaldurinn er Villi farinn að
17
Vilhjálmur
Ketilsson
f. 13.4. 1950 d. 6.9. 2003
VF 37. tbl. minning 9/10/03 14:42 Page 17