Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 28

Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 28
VÍKURFRÉTTIR I 36. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 5. SEPTEMBER 2003 I 29 Rúnar með Simon Le Bon á skemmtistaðnum The Joint í Las Vegas. Mjög góðir leikdómar Sýning Suðurnesja- manna í Tjarnarbíó Leikrit Siguringa Sigurjónssonar, Ráðalausir Menn sem nú er sýnt í Tjarnarbíó hefur fengið mjög góða dóma í leiklistargagnrýni Morgunblaðsins og DV. Sig- uringi er mjög ánægður og sagð- ist í samtali við Víkurfréttir að dómarnir yrðu vart betri. Sýningar á leikritinu eru eftirfar- andi: 3. sýning: f immtudaginn 11. september kl. 20:00 4. sýning: föstudaginn 12. sept- ember kl. 23:30 - miðnætursýn- ing 5. sýning: f immtudaginn 18. september kl. 20:00 6. sýning: föstudaginn 19. sept- ember kl. 23:30 - miðnætursýn- ing Miðar á sýninguna gilda sem tveir fyrir einn, út að borða á Thorvaldsen Bar, Kaffi Viktor og Kaffi Sólon. Keflavík vann sinnfimmta leik í röð í 1.deildinni þegar liðið sigraði Njarðvík á útvielli. Keflavík sigraði 2:0, en það voru þeir Haraldur Guð- mundsson og Magnús Þor- steinsso sem skoruðu fyrir Keflavík. Fyrir leikinn var mínútu þögn til minningar um Vilhjálm Ket- ilsson, skólastjóra og fyrrum bæjarstjóra Keflavíkur sem lést s.l. laugaradag. Leikmenn beggja liða báru einnig sorgar- bönd vegna fráfalls Vilhjálms sem lék um árabil með liði ÍBK og vann lengi ötullega fyrir knattspyrnuna í Keflavík, m.a. sem formaður knatt- spyrnuráðs. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik en Haraldur skor- aði mark á 11. mínútu úr auka- spyrnu Ólafs Ívars Jónssonar. Á 22. mínútu skoraði Magnús Þorsteinsson annað markið eft- ir sendingu frá Hólmari Erni Rúnarssyni. Njarðvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti en leikurinn varð hálf lit- laus, enda engin mörk skoruð. Þó átti Eyþór Guðnason tvö dauðafæri sem rötuðu þó ekki í mark Keflavíkur. Keflavík sigraði Njarðvík Breyttur leiktími á laugardag Leikur Keflavíkur og Víkings verður leikinn í Keflavík kl. 15:00 á laugardaginn, en ekki kl. 14:00 eins og áætlað var. Nauð- synlegt reyndist að seinka leik Þórs og Leifturs/Dalvíkur á Ak- ureyri, en Víkingur og Þór eru að berjast um 2. sætið í deildinni og þurfti leikurinn á Keflavíkurvelli að fara fram á sama tíma. Reykja- nesmótið að hefjast Reykjanesmótið hefst á sunnu- dag og markar mótið upphaf bar- áttu vetrarins á milli toppliðanna í körfunni, en búast má við hörku keppni. Leikið verður á fimm völlum í mótinu, sem hefst sunnudaginn 14. september. Næstu leikir eru: Sunnudaginn 14. september í Njarðvík mætast Breiðablik og Haukar kl. 17 og klukkan 19 mætast Grindavík og Njarðvík. Fimmtudaginn 18. september að Ásvöllum mætast Keflavík og Breiðablik kl. 19 og kl. 21 taka Haukar á móti Grindavík. menning Barna og fjölskyldusamkomur Sunnudaginn 14. September kl. 11:00 hefst barnastarfið í Hvítasunnukirkjunni að Hafnargötu 84. Það er nú orðnar nokkrar kynslóðir suðurnesjamanna sem hafa farið í gegn um sunnudaga- skólann okkar frá upphafi. Samkomurnar sem nú hefjast eru með miklum söng leikjum og brúðan Guðfinna er nokkurs konar meðhjálpari. Einnig er alltaf stutt og hnitmiðuð kennsla um „Ljósið „ sem við öll viljum að lýsi veg okkar. Jesús heitir hann. Þessar stundir eru stílaðar fyrir börn á öllum aldri og foreldrar eru hjartanlega velkomnir með. VF 37. tbl. 32 sidur loka 10.9.2003 15:44 Page 29

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.