Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 21
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Samkvæmt tölum fráFiskistofu Íslands erhlutur sveitarfélaga á Reykjanesi 13,32% af heildar- úthlutuðum aflaheimildum á nýhöfnu fiskveiðiári eða rúm 50 þúsund tonn í þorskígildum talið. Hlutur Grindavíkur er langstærst- ur en þangað fara rúm 32 þúsund tonn. Garður fær í sinn hlut rúm 6.500 tonn og litlu minna fer til Keflavíkur. Vogar eru með tæp- lega 2.800 tonn, en í Sandgerði fara tæplega 1.300 tonn. Njarð- vík rekur lestina með rúmlega 200 tonn. Sex sjávarútvegsfyrirtæki á Reykjanesi ná inn á lista 50 stærstu sjávarútvegsfyrirtækja á landinu og eru þessi fyrirtæki samtals með rúmlega 40 þúsund tonn í þorskígildum talið. Þor- björn Fiskanes í Grindavík er með rúmlega 19 þúsund tonn og er í öðru sæti listans yfir 50 stærstu kvótafyrirtækin. Vísir hf. í Grindavík er í 7. sæti með rúm- lega 12.500 tonn. Nesfiskur hf. í Garði er í 18. sæti með tæp 4.500 tonn og Festi ehf. í Grindavík er með tæp 1.400 tonn og í 37. sæti listans. Saltver hf. í Reykjanesbæ er með rúmlega 1.250 tonn og í 42. sæti listans. Í 43. sæti listans er Sólbakki ehf. með rúm 1.200 tonn Þessi sex fyrirtæki eru með tæplega 11% af úthlutuðum afla- heimildum, en ef tekið er mið af úthlutuðum aflaheimildum á Reykjanes er hlutur þessa fyrir- tækja 81,27%. Samkvæmt upp- lýsingum frá Fiskistofu eru sér- stakar úthlutanir aflamarks ekki innifaldar í þessum tölum. 13,32% af fiskveiði- heimildum á Reykjanes -sex fyrirtæki á Suðurnesjum á lista 50 stærstu Auglýsingasíminn 421 0000 VF 37. tbl. 32 sidur 10.9.2003 13:22 Page 22

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.