Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 11.09.2003, Blaðsíða 14
Vilhjálmur Ketilsson f. 13.4. 1950 d. 6.9. 2003 Vilhjálmur Ketilsson fæddist á Túngötu 5 í Keflavík, 13. apríl 1950. Hann varð bráðkvaddur laugardag- inn 6. september síðastliðinn. Foreldrar hans eru Valgerður Sigurgísladóttir, f. 13.4. 1931, d. 21.6. 2002 og Ketill Vilhjálmsson, f. 14.8. 1929. Bræður Vilhjálms eru Magnús, f. 29.4. 1951, Sigur- gísli Stefán, f. 30.8. 1954, Páll Hilmar, f. 7.3. 1962 og Valur, f. 6.12. 1963. Eiginkona Vilhjálms er Sigrún Birna Ólafsdóttir, f. 4.9. 1950. Þau voru gefin saman 26. desember 1970 í Keflavíkurkirkju. Foreldrar Sigrúnar Birnu eru Margrét Einarsdóttir f. 24.1. 1925, d. 14.10. 1966 og Ólafur Björnsson, f. 22.4. 1924. Núverandi eiginkona Ólafs er Hrefna Ólafsdóttir, f. 16.4. 1923. Börn Vilhjálms og Sigrúnar Birnu eru: 1) Garðar Ketill, f. 15.10. 1967, kvæntur Kristínu Jónu Hilm- arsdóttur, f. 25.1. 1964, þeirra börn eru Ásgeir Elvar, f. 4.9. 1991, Brynjar Freyr, f. 30.7. 1995 og Katla Rún, f. 11.6. 1999. 2) Margeir, f. 2.2. 1972, sambýliskona hans er Herborg Arnarsdóttir, f. 26.5. 1975, sonur þeirra er Dagur, f. 18.5 2003. Sonur Margeirs er Vikt- or Thulin, f. 6.7. 1995. 3) Ásgeir, f. 18.4. 1973, d. 12.5. 1973, 4) Svanur, f. 6.3. 1977, sambýliskona hans er Kellyanne Boyce, f. 31.10. 1976, dóttir þeirra er Svava Ósk, f. 7.4. 2003. 5) Vilhjálmur, f. 2.8. 1980, d. 15.8. 2000. 6) Vala Rún, f. 9.12. 1982, sambýlismaður hennar er Jón Ingi Jónsson, f. 18.10. 1972, dóttir þeirra er Vilborg, f. 6.1. 2003, sonur Jóns Inga er Rúnar Ingi f. 30.4. 1997. Vilhjálmur ólst upp á heimili foreldra sinna og bræðra á Túngötu 5 í Keflavík. Hann lauk gagn- fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur og síðan kennaraprófi og stúdentsprófi frá Kennaraskóla Ís- lands. Með námi starfaði hann hjá Varnarliðinu og Olíufélaginu Esso á Keflavíkurflugvelli og kenndi við Myllubakkaskóla. Þá var hann æskulýðsfulltrúi í Keflavík 1974-77 og kenndi jafnframt við Holta- skóla. Vilhjálmur tók við starfi skólastjóra Myllu- bakkaskóla 1978 og gegndi því til dauðadags að und- anskildum árunum 1986-88, þegar hann var bæjar- stjóri í Keflavík. Hann var bæjarfulltrúi fyrir Al- þýðuflokkinn 1986-1994 og gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir flokkinn á því tímabili. Vilhjálmur var í gullaldarliði Keflavíkur í knatt- spyrnu og varð Íslandsmeistari með ÍBK, 1969, ´71 og ´73 og lék nokkra leiki með unglingalandsliði Ís- lands. Útför Vilhjálms fer fram frá Keflavíkurkirkju á morgun, 12. sept. og hefst athöfnin kl. 14. Minning VF 37. tbl. minning 9/10/03 14:41 Page 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.