Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.10.2003, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 30.10.2003, Qupperneq 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! J ón Kristjánsson, heil-brigðisráðherra vill skoðaþann möguleika að sveit- arstjórnir á Suðurnesjum taki yfir rekstur heilsugæslu Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja að því er fram kom í ávarpi ráðherrans á aðalfundi Sam- bands sveitarfélaga á Suður- nesjum sem haldið var í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja um sl. helgi. Heilbrigðisráðherra sagði að hann væri ekki að setja þessa hugmynd fram til þess að spara fé, heldur til að auka þjónustuna í heilsugæslu á svæðinu. Ráðherra sagði að hann teldi að sveitarfélögin myndu eflast við að taka yfir reksturinn og hann vill sjá aukna héraðshlutdeild varð- andi rekstur heilsugæslunnar. Sigríður Snæbjörnsdóttir fram- kvæmdastjóri Heilbrigðisstofn- unar Suðurnesja kynnti drög að tillögum nefndar sem fjallað hef- ur um málefni HSS á fundinum og kom m.a. fram í máli hennar að vonast er til að biðtími eftir heilsugæsluþjónustu verði ein- ungis 30 mínútur í framtíðinni. D-álma Heilbrigðisstofnunarinn- ar var töluvert til umræðu og kom fram á fundinum að lokið verði við hana í árslok árið 2005. Jón Gunnarsson alþingismaður sem á sæti í stjórn HSS sagði á fundinum að hann teldi nauðsyn- legt að nú yrði horft til framtíðar, nóg væri komið að því að horft væri til baka á vanda heilsugæsl- unnar þar sem endalaust væri verið að reyna að finna einhverja sökudólga. Jón sagði mjög mikil- vægt að nú yrði staðið saman að uppbyggingu Heilbrigðisstofnun- ar Suðurnesja og heilsugæslunn- ar og kom fram í máli Jóns að hann væri mjög bjartsýnn á framtíð stofnunarinnar. Konráð Lúðvíksson yfirlæknir HSS sem hefur starfað við stofn- unina í 20 ár sagði á fundinum að hann hefði lifað nokkra fram- kvæmdastjóra HSS, nokkra hjúkrunarforstjóra og nokkra heilbrigðisráðherra þann tíma sem hann hefði starfað á stofnun- inni. Konráð sagði að hann hefði aldrei verið eins bjartsýnn og núna um að málefni Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja væru að komast á gott skrið og hrósaði hann núverandi stjórnendum stofnunarinnar fyrir vel unnin störf. Samband sveitarfélaga á Suður- nesjum fagnar 25 ára afmæli um þessar mundir. ➤ A Ð A L F U N D U R S S S Sveitarstjórnir á Suðurnesjum taki yfir heilsugæsluna Frá aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Kaffitár lokað í nokkra daga vegna flutninga Vegna flutninga höfuðstöðva Kaffitárs verður brennslan, að Holtsgötu 52, lokuð frá f immtudegi til mánudags. Þriðjudaginn 4. nóvember opna nýjar höfuðstöðvar að Stapabraut 7, Njarðvík. Auk kaff ibrennslu, verður þar glæsileg kaffiverslun og kaffi- hús. Afgreiðslutími verslunarinnar og kaff ihússins verður kl. 7:30-18:00 virka daga. Að auki er fyrirhugaður af- greiðslutími á laugardögum kl. 10:00-18:00. Auglýsingasíminn er 421 0000 VF 44. tbl. 2003 hbb 29.10.2003 14:54 Page 10

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.