Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.10.2003, Síða 26

Víkurfréttir - 30.10.2003, Síða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! HAMAR-NJARÐVÍK Á fimmtudagskvöld sækir lið Njarðvíkur Hamar heim til Hveragerðis. Þar verður eflaust um hörkuleik að ræða þar sem Njarðvíkingar hafa verið á góðri siglingu í síðustu leikjum og það er alltaf erfitt að sækja stig til Hveragerðis. Eftir töp í fyrstu tveimur leikjum sínum tóku Hamarsmenn sig saman í andlitinu og unnu næstu tvo. Faheem Nelson hefur staðið sig vel í liði heimamanna og er firnasterkur auk þess sem bak- vörðurinn Lárus Jónsson hefur staðið sig vel að undanförnu. Njarðvíkingar hafa leikið mjög vel eftir tap gegn UMFG í fyrstu umferð og lagt KR, Þór og Keflavík í miklum baráttuleikj- um. Brandon Woudstra hefur fallið vel inn í liðið og spilað frábærlega á köflum auk þess sem Brenton Birmingham er óðum að ná sér eftir meiðsli. Friðrik Ragnarsson, þjálfari, varar þó við að sínir menn verði of sigurvissir enda hefur það sýnt sig í haust að allir leikir eru baráttuleikir. „Við lentum í basli í Þorlákshöfn og það er ekkert sem segir að þessi leikur verði auðveldari.” KEFLAVÍK-SNÆFELL Á föstudaginn mæta Snæfelling- ar frá Stykkishólmi til leiks í Keflavík. Snæfell hefur verið að gera góða hluti í sínum leikjum og hefur aðeins tapað einum leik, gegn Grindavík, og sitja í öðru sæti deildarinnar. Liðið er vel mannað þar sem Corey Dickerson, Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson hafa farið fyrir mannskapnum. Keflvíkingar koma í leikinn eftir þrjá leiki í röð þar sem frammi- staða þeirra hefur valdið von- brigðum á köflum. Þeir töpuðu gegn ÍR og erkifjendunum frá Njarðvík og áttu ójafnan leik gegn Breiðabliki sem þeir unnu þó eftir óþarfa basl. Guðjón Skúlason hjá Keflavík játar fúslega að ýmislegt má laga eftir ófarir síðustu leikja. „Við þurfum að styrkja vörnina og vera ákveðnari í sókninni til að ná hagstæðum úrslitum.” sagði Guðjón og er alveg ljóst að stuðningur áhorfenda á eftir að skipta miklu máli í leiknum. GRINDAVÍK-HAUKAR Haukar mæta taplausu liði Grindvíkinga í heimsókn sinni á föstudagskvöld. Haukar hafa verið brokkgengir í vetur og hafa skipst á góðir leik- ir og slæmir. Þeir voru gjörsigr- aðir í heimsókn sinni til Tinda- stólsmanna en komu stax til baka og sigruðu ÍR í næstu um- ferð á eftir með sannfærandi hætti. Þeirra sterkustu menn eru Michael Manciel sem hefur skorað um 25 stig að meðaltali og er með flest fráköst í deild- inni og Sævar Haraldsson. Grindvíkingar hafa spilað vel það sem af er og eru sigur- stranglegir fyrir leikinn. Þeir töpuðu þó fyrir Haukum í Reykjanesmótinu í haust í frekar slökum leik af þeirra hálfu. Frið- rik Inga líst vel á viðureignina. „Við mætum tilbúnir til leiks og ætlum að sýna á okkur aðra hlið en þegar við töpuðum fyrir þeim um daginn.” Deildin hefur verið ákaflega spennandi það sem af er hausti og er enginn leikur fyrirfram gefinn. Grindavík er á toppnum, ósigrað, eftir fjórar umferðir og Njarðvík er tveimur stigum á eftir og Keflavík fjórum. Óvænt staða er komin upp í 1. deildinni þar sem Njarðvíkur- stúlkur eru efstar eftir fjóra leiki en meistaraefnin í Kefla- vík hafa tapað síðustu tveimur leikjum gegn KR og ÍS. Grindavík er á botni deildar- innar með einn sigurleik, gegn toppliði Njarðvíkur. Blaðið fór í prentun áður en leikur Njarðvíkur og Keflavík- ur fór fram en áhugasömum er bent á vefsíðu Víkurfrétta, www.vf.is. Á fimmtudag fá Grindvíking- ar KR-stúlkur í heimsókn og verður þar um botnslag að ræða þar sem bæði liðin hafa tvö stig. Gengi KR-inga hefur verið misjafnt í haust eftir að hafa misst marga af burðarásum liðsins frá síðustu leiktíð og er Grindavík í svipuðum sporum þar sem liðin eru bæði að reyna að finna sig sem lið. Grindavík mætir til leiks með fullskipað lið eftir töp í síðustu tveimur leikjum. Pétur Guð- mundsson segir bjartsýni í hópnum fyrir leikinn og vonast eftir þvi að stuðningur heima- manna muni skipta sköpum í leiknum. KEFLAVÍK-BREIÐABLIK Keflvíkingar fengu Breiðablik í heimsókn og sigruðu nokkuð létt 106-85. Heimamenn höfðu ágæt- is forskot í hálfleik, 64-41, en í seinni hálfleik gekk ekki eins vel. Breiðablik minnkaði muninn jafnt og þétt þar til undir lok leiksins þegar Keflvíkingar hrukku loks í gang og tryggðu öruggan sigur. Atkvæðamestir í liði Keflavíkur voru Derrick Allen, sem skoraði 25 stig og tók 11 fráköst, og Nick Bradford, sem skoraði 17 stig, tók 11 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Mirko Virijevic bar af í liði Blika með 26 stig. ÞÓR-NJARÐVÍK Njarðvík gerði góða ferð til Þor- lákshafnar þar sem þeir lögðu Þór að velli 90-97. Heimamenn voru yfir í hálfleik 53-40 en Njarðvíkingar svöruðu af krafti í þeim seinni. Friðrik Ragnarsson var sáttur við að sækja sigur í greipar Þórsara. „Þetta var hörkuleikur og það er engin tilviljun að þeir unnu fyrstu tvo leikina í deildinni því þeir eru með mjög gott lið.” Stigahæstir Njarðvíkur voru Páll Kristinsson sem skoraði 24 stig og tók 16 fráköst, og Guðmundur Jónsson og Brenton Birmingham sem skoruðu 22 stig hvor auk þess sem Brenton gaf 11 stoðsendingar. William Dreher var stigahæstur Þórsara og skor- aði 31 stig. GRINDAVÍK-KFÍ Grindvíkingar tóku á móti KFÍ frá Ísafirði og sigruðu 102-95. Grindvíkingar voru yfir allan leikinn og leiddu í hálfleik 56-36. Í seinni hálfleik dalaði leikur heimamanna og Ísfirðingar komust aftur inn í leikinn og náðu að minnka muninn niður í þrjú stig en þá tóku Grindvíking- ar við sér og héldu forystunni til enda. Darrel Lewis skoraði 32 stig fyrir Grindavík og Páll Axel Vilbergs- son skoraði 30. Í liði gestanna átti Adam Spanich stórleik og skoraði 47 stig og tók 11 fráköst, má þó vekja athygli á því að hann átti ekki eina einustu stoðsendingu. „Það var bara ekki sami neistinn og krafturinn í okkur í seinni hálfleik” sagði Friðrik Ingi Rún- arsson, þjálfari Grindavíkur. En sigur hafðist að lokum og Grindavík var á toppi deildarinn- ar ósigrað að loknum þremur umferðum. ■ Intersport-deildin / 3. umferð ■Karfan / 1.deild kv. ■ Intersport-deildin / leikir vikunnar ÓVÆNT STAÐA Ekkert gefið í körfunni Íþróttafréttir Víkurfrétta ÞORGILS JÓNSSON GSM 868 7712 Lovísa Guðmundsdóttir lék vel með ÍS. Hér skorar hún án þess að Erla Reynisdóttir eða Kristín Blöndal komi vörnum við. Sverrir Sverrisson, Keflvíkingur í baráttu við nýjustu fallbyssuna í körfunni , Njarðvíkinginn Brandon Woudstra sem skoraði 8 þriggja stiga körfur. VF 44. tbl. 2003 hbb 29.10.2003 13:18 Page 26

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.