Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.10.2003, Page 27

Víkurfréttir - 30.10.2003, Page 27
VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 30. OKTÓBER 2003 I 27 UMFT-GRINDAVÍK Grindavík bar sigurorð af Tinda- stóli 80-83. Grindvíkingar, sem spiluðu á útivelli, voru með yfir- höndina lungann úr leiknum ef frá er talinn kafli þar sem Stól- arnir skoruðu 16 stig í röð og komust 8 stigum yfir. Gestirnir voru þó snöggir að vinna muninn upp og höfðu loks sigur eins og áður sagði. Friðrik Ingi var ánægður með stigin tvö sem unnust eftir bar- áttuleik og tryggir Grindavík í toppsætinu eftir fjóra leiki án ósigurs. Í liði Grindavíkur var Darrel Lewis stigahæstur með 24 stig og Daniel Trammel og Páll Axel Vilbergsson skoruðu 16 stig hvor, auk þess sem Trammel tók 14 fráköst. Hjá Tindastóli voru Kanarnir at- kvæðamestir þar sem Clifton Cook skoraði 23 stig og Nick Boyd 22 og tók auk þess 11 frá- köst. NJARÐVÍK-KEFLAVÍK Njarðvík bar sigurorð af Keflavík í Intersport-deildinni á mánudag- inn 93-86. Njarðvíkingar, sem spiluðu á heimavelli, höfðu frumkvæðið allan leikinn og stóðu af sér harða sókn Keflvík- inga í seinni hálfleik og lönduðu loks tveimur dýrmætum stigum. Leikurinn var æsispennandi allan tímann og dyggir stuðningsmenn liðanna fóru mikinn. Að leik loknum var Guðjón Skúlason ómyrkur í máli yfir frammistöðu sinna manna. „Þetta var bara lélegt. Menn voru greinilega ekki tilbúnir í leikinn. Njarðvíkingar voru einfaldlega betra liðið á vellinum.” Keflavík spilaði ekki sannfærandi vörn þar sem skyttur Njarðvíkinga fengu hvað eftir annað opin skot fyrir utan og settu 15 þriggja stiga körfur. Annar tónn var skiljanlega í Frið- rik Ragnarssyni.Hann var hæstá- nægður með sigur í mikilvægum leik þar sem hans menn héldu um stjórnartaumana allan tím- ann. Brandon Woudstra var, að öðrum ólöstuðum, besti maður leiksins og var Friðrik í skýjun- um með frammistöðu hans þrátt fyrir smávægileg meiðsli. „Woudstra er algjör fallbyssa! Það má ekki gefa honum sentí- meter þá er hann búinn að refsa.” Aðspurður um kaflann þegar Keflavík komst yfir sagði hann að ástæðan fyrir því hafi verið að hans menn hafi ætlað að halda forskotinu og misst þannig dampinn. „En maður heldur ekki liði eins og Keflavík án þess að keyra stíft á þá.” Mikill uppgangur hefur verið í Njarðvíkurliðinu eftir tap í fyrstu umferð gegn Grindavík en Frið- rik segir að nú skipti öllu að vara sig á að ofmetnast ekki. Liðið er ungt og kraftmikið og getur unn- ið hvern sem er en getur líka tap- að fyrir hverjum sem er ef ein- beitingin er ekki í lagi. Woudstra, sem skoraði 32 stig í leiknum, sagðist hafa fengið skotleyfi hjá þjálfaranum í leikn- um. „Til þess er ég hérna... Til að skjóta þegar þörf er á.” Brenton Birmingham átti líka góðan leik og skoraði 26 stig og Páll Krist- insson skoraði 13 stig auk þess sem hann tók 12 fráköst. Í liði Keflavíkur var Derrick Allen stigahæstur með 21 stig og þar næst kom Falur Harðarson með 16 stig. Að leik loknum eru Njarðvík- ingar tveimur stigum á eftir toppliði Grindavíkur með sex stig eftir fjóra leiki en Keflavík eru með sex stig. Þess má geta að það sem af er deildinni hafa liðin virst mjög jöfn að getu og enginn leikur er fyrirfram gef- inn. ■ Intersport-deildin / 4. umferð FRAMKVÆMDATILBOÐ - 2 FYRIR 1 Þú kaupir og sækir pizzu og hvítlauksbrauð. Þú færð aðra pizzu sömu stærðar frítt með. Þú greiðir fyrir dýrari pizzuna. Síminn er 421 4067 • Hafnargötu 30 Keflavík Ungur nemur gamall temur. Þessir 4ra og 5 ára gömlu fótboltakappar eru í stórum hópi krakka sem stunda fótbolta hjá Keflavík. Einbeitingin leynir sér ekki! Fótboltafjör! VF 44. tbl. 2003 hbb 29.10.2003 14:40 Page 27

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.