Víkurfréttir - 06.11.2003, Blaðsíða 14
Gunnar og félagar hans voru að
leika sér á gömlum rallývegi í
nágrenni Heklu. „Við vorum
búnir að keyra á slóða þarna um
morguninn og þegar leið á dag-
inn fór að þiðna og það myndað-
ist drullupollur á slóðanum,“ seg-
ir Gunnar og þegar hann fór yfir
eina holuna fór framdekkið á kaf
og telur Gunnar að snjór hafi
verið undir drullunni. „Þegar
framhjólið fór niður kastaðist ég
fram og lærið lenti á stýrinu. Ég
datt í jörðina og hjólið lagðist
ofan á mig. Þar sem ég ligg á
jörðinni leit ég til hliðar og sá þá
skóinn upp við andlitið á mér og
hélt að ég hefði dottið úr skón-
um. Ég lyfti síðan hjólinu af mér
og sé þá ekki aðra löppina. Þá fór
ég að velta skónum við hliðina á
mér fyrir mér og lyfti mér upp og
þá átta ég mig á því að löppin
hafði snúist heilan hring. Löppin
lá þá með bakinu á mér og tærn-
ar snéru fram,“ segir Gunnar, en
þegar hann áttaði sig á aðstæðum
tók hann í löppina á sér og dró
hana þannig að hún lagðist eðli-
lega. „Um leið og ég var búinn
að koma löppinni fyrir þá fann
ég fyrir gríðarlegum sársakauka.
Það var eins og verið væri að
stinga mig í löppina og ég öskr-
aði úr mér allan mátt. Það er ekki
hægt að lýsa því hvað þetta var
sárt.“
Gunnar fór úr mjaðmalið, skálin
sem mjaðmakúlan leggst í sprakk
á þremur stöðum, liðþófarnir
teygðust og vöðvar rifnuðu.
Gunnar segir að hann sé heppin
að halda löppinni. „Læknirinn
minn segir að ég hafi bjargað
löppinni með því að koma henni
fyrir eftir að ég áttaði mig á því
hvernig hún var. Löppin rifnaði
nærri því af mér og ég er með
stórt sár ofarlega á lærinu. Með
því að færa löppina til komst
blóðflæðið aftur af stað í löppina
og það hefur bjargað henni,“ seg-
ir Gunnar en vinir hans stóðu þétt
að baki hans þegar slysið varð.
„Við kölluðum á sjúkrabíl og
þyrlu, en við þurftum að bíða í
tæpa fjóra tíma eftir þyrlunni því
hún var í Vestmannaeyjum. Vinir
mínir héldu undir höfuðið á mér
og undir löppina á mér og
hreyfðu sig ekki allan tímann. Ég
vil nota tækifærið og þakka þeim
fyrir.“
Á morgun tekur Gunnar við
tveimur bikurum, Íslands- og
bikarmeistaratitlunum í tor-
færunni í flokki götubíla. Gunnar
ætlar að fara og taka á móti bik-
urunum, en hann segist vera til
lítils gagns þessa dagana. „Lækn-
arnir tala um að ég þurfi að taka
því rólega í 5-6 mánuði. Ég má
ekkert stíga í löppina í 3 mánuði
og ef allt gengur vel fer ég í
sjúkraþjálfun eftir tæpa tvo mán-
uði,“ segir Gunnar og aðspurður
segir hann erfitt að sitja heima
meðan aðalvertíðin á dekkjaverk-
stæðum landsins er í blóma, en
Gunnar rekur dekkjaverkstæði
Gunna Gunn við Aðalstöðina.
„Ég reyni bara að vinna að skipu-
lagningu í fyrirtækinu meðan ég
er hér heima og get ekki skipt um
dekk,“ segir Gunni og brosir
góðlátlega.
Kjaftasögurnar vilja oft fara á
kreik þegar fólk lendir í slysum
eða öðrum óförum og segir
Gunnar að hann hafi fundið fyrir
slíku. „Maður er að heyra að við
höfum verið að leika okkur þarna
á götuhjólum og að við hefðum
verið þarna í einhverjum glæfra-
akstri. Þetta er algjört kjaftæði
því við fórum varlega og það var
enginn glannaakstur á okkur. Það
hefði í raun verið betra ef ég
hefði farið hraðar yfir holuna
sem ég fór í, því þá hefði ég ef-
laust farið yfir hana.“
Næstu vikurnar skera úr um það
hvort Gunnar þurfi að fara í að-
gerð eða hvort hann geti hafið
sjúkraþjálfun. Hann er bjartsýnn
á bata og segir að hann stefni að
því að taka þátt í torfærunni
næsta sumar. „Maður setur nátt-
úrulega stefnuna þangað, enda
hefur mér gengið vel upp á
síðkastið. Ég get sagt þér það ef
ég hefði verið í torfærubílnum og
oltið 10 veltur þá væri ég ekki
jafn mikið slasaður og ég er í
dag. Ég er búinn að selja mótor-
hjólið og ætla að einbeita mér að
einu í einu. Ég gef mér góðan
tíma í að jafna mig og er bara
bjartsýnn.“
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ G U N N I G U N N T O R F Æ R U K A P P I
„Ég er sáttur við það að vera lifandi og að hafa ekki lamast,“ segir Gunnar Gunnarsson torfæru-
kappi í viðtali við Víkurfréttir, en fyrir 5 vikum síðan lenti hann í alvarlegu mótorhjólaslysi. Gunnar
var ásamt 5 vinum sínum af Suðurnesjum að leika sér á svokölluðum Endoru mótorhjólum við ræt-
ur Heklu þegar slysið varð. Gunnar þurfti að bíða í tæpa fjóra tíma eftir að þyrla náði í hann.
Þakka fyrir að vera á lífi
Íslandsbanki bauð til morgunverðarfundar í síðustu viku þar sem
ræddar voru framtíðarhorfur í starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja. Þá
var Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja hf. gestafyrirlesari
en hann kynnti fyrirhugaða Reykjanesvirkjun.
VF 45. tbl. 2003 hbb 5.11.2003 13:27 Page 14