Víkurfréttir - 06.11.2003, Blaðsíða 1
BYGGIR MEÐ ÞÉR
afsláttur
25%
af öllum GROHE
blöndunartækjum!
S T Æ R S T A V I K U L E G A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Aðsetur: Grundarvegi 23 • 2. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími: 421 0000 • www.vf.is • Fréttavakt: 898 2222
Inn á öll heimili á Suðurnesjum í hverri viku. Öflugasti auglýsingamiðill Suðurnesja.
45. tölublað • 24. á
rgangur
Fimmtudagurinn 6
. nóvember 2003
Ljósagangur á Garðskaga
Ljósmynd: Hilmar Bragi
Uppsagnir 90 starfsmanna Varnarliðsins semsagt var upp störfum í síðustu viku hafaverið dregnar til baka og hefur varnarliðið
ákveðið að eiga samráð við verkalýðsfélög um
málið. Í tilkynningu frá varnarliðinu segir að yfir-
stjórn Flotastöðvarinnar telji að uppsagnirnar
sem gripið var til í síðustu viku hafi verið í fullu
samræmi við íslensk lög og venjur og er tekið
fram að slíkar aðgerðir verði að vera hafnar yfir
grun um ólögmæti og geta talist sanngjörn, og
þess vegna sé gripið til þessara ráðstafana.
„Að ósk Alþýðusambands Íslands vegna uppsagna
starfsmanna mun Flotastöð Varnarliðsins taka upp
frekari viðræður við verkalýðsfélög um ásættanlegt
fyrirkomulag við niðurskurð á rekstrarfé og áhrif á
félagsmenn þeirra. Yfirstjórn Flotastöðvarinnar telur
að uppsagnir þær sem gripið var til í síðastliðinni
viku hafi verið í fullu samræmi við íslensk lög og
venjur. Þeim var ætlað að takmarka sem mest áhrif á
heildarstarfsmannafjölda stöðvarinnar. Jafnframt er
ljóst að svo afdrifarík ákvörðun fyrir afkomu starfs-
manna verður að vera hafin yfir grun um ólögmæti
og geta talist sanngjörn. Flotastöð Varnarliðsins hefur
því ákveðið að draga til baka uppsagnir sem sendar
voru 90 starfsmönnum hinn 28. október síðastliðinn
og eiga frekara samráð við verkalýðsfélögin um mál-
ið. Stjórnendur flotastöðvarinnar eru reiðubúnir að
ræða allar hugmyndir ASÍ varðandi það hvernig
mæta megi fjárhagsvanda stöðvarinnar. Þó er ljóst að
leiði slíkt samráð ekki til þess að aðrar sparnaðarleið-
ir finnist geta tafir á uppsögnum starfsmanna þýtt að
grípa verði til enn fleiri uppsagna svo mæta megi nið-
urskurði á rekstrarfé,” segir m.a. í tilkynningunni frá
Varnarliðinu.
Uppsagnir dregnar til baka
Varnarliðið veitir gálgafrest:
VF 45. tbl. 2003 hbb 5.11.2003 14:54 Page 1