Víkurfréttir - 06.11.2003, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I 45. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 6. NÓVEMBER 2003 I 19
■Karfan / úrslit síðustu leikja
■Sund / A-sundmót Ármanns
Góður árangur náðist hjásundmönnum ÍRB á A -sundmóti Ármanns um
sl. helgi. Mikið var um góðar
bætingar hjá yngra sundfólk-
inu og margir þeir eldri voru
að gera það gott, þrátt fyrir að
vera í erfiðum undirbúningi
fyrir Bikarkeppnina. Mót þetta
var því lokahnykkur hjá þeim í
undirbúningnum. Bikarkeppn-
in í sundi fer fram í Sundhöll
Reykjavíkur helgina 14. - 16.
nóvember og er stefnan sett á
að verja titilinn frá síðasta ári.
Lið ÍRB var með flest gullverð-
laun allra liða á mótinu eða alls
23. Einnig átti liðið þrjá af sex
stigahæstu einstaklingunum.
Það voru þau Gunnar Örn
Arnarson í flokki 12 ára og
yngri, Guðni Emilsson í flokki
13 -14 ára og Erla Dögg Har-
aldsdóttir í flokki 15 ára og
eldri. Eitt Íslandsmet í aldurs-
flokki var sett á mótinu en það
var Guðni Emilsson sem setti
met í 100m fjórsundi. Karítas
Heimisdóttir náði einnig frá-
bærum árangri þegar hún náði
lágmörkum inní unglinga-
landslið SSÍ.
Stigahæstu einstaklingar ÍRB A-mót Ármanns.
Kraftur í Sundfólki ÍRB
Hópbílabikar karla
HAMAR-KEFLAVÍK
Keflavík vann auðveldan sigur á
Hamri í heimsókn sinni sl.
sunnudagskvöld. Lokatölur voru
65-95 Keflavík í vil.
ÍR-GRINDAVÍK
Grindavík tapaði fyrir ÍR í Selja-
skóla, en lokatölur voru 82-79.
Grindvíkingar, sem eru enn
ósigraðir í Intersport-deildinni,
áttu ekki góðan dag og voru und-
ir allan leikinn.
KR-NJARÐVÍK
Njarðvík bar sigur úr býtum í
rimmu sinni við KR í Hópbíla-
bikarkeppni karla á mánudaginn.
Leikurinn, sem fór fram í DHL-
höllinni í Reykjavík, fór 81-82.
Njarðvík leiddi allan leikinn en
náðu aldrei að hrista Vesturbæj-
arliðið af sér og voru klaufar að
missa leikinn niður í eitt stig
undir lokin.
Hópbílabikar kvenna
NJARÐVÍK-ÍS
Á sunnudaginn beið Njarðvík
lægri hlut fyrir ÍS 79-55. Njarð-
vík var án tveggja mikilvægra
leikmanna, Evu Stefánsdóttur og
Grétu Jósepsdóttur.
ÍR-GRINDAVÍK
Kvennalið Grindavíkur tapaði
fyrir ÍR í Hópbílabikarnum í
körfuknattleik á mánudaginn.
lokatölur leiksins voru 67-48 ÍR í
vil en þær spiluðu á heimavelli.
Intersport-deildin
HAMAR-NJARÐVÍK
Njarðvík tapaði fyrir Hamri í
Intersport-deildinni síðasta
fimmtudagskvöld, en leikurinn
fór fram í Hveragerði. Lokastað-
an var 79-76 Hamri í vil og áttu
þeir sigurinn fyllilega skilinn.
KEFLAVÍK-SNÆFELL
Keflavík sigraði Snæfell 79-70 á
heimavelli sínum í baráttuleik
þar sem ekkert var gefið eftir.
Keflvíkingar byrjuðu illa og voru
undir í hálfleik en komu firna-
sterkir inn í þriðja leikhluta og
náðu góðri forystu sem þeir
héldu til leiksloka þrátt fyrir
harða atlögu gestanna.
GRINDAVÍK-HAUKAR
Grindavík vann öruggan sigur á
heimavelli gegn Haukum 85-67.
Grindavík hafði mikla yfirburði í
leiknum og var staðan 26-9 eftir
fyrsta leikhluta en í hálfleik
leiddu þeir með 25 stigum.
1. deild kvenna
NJARÐVÍK-KEFLAVÍK
Keflavík vann öruggan sigur, 58-
90, í nágrannaslagnum við
Njarðvík í 1. deild kvenna sem
fór fram á miðvikudaginn í síð-
ustu viku.
GRINDAVÍK-KR
Umferðinni lauk með tapi
Grindavíkur á heimavelli gegn
KR-ingum síðastliðinn fimmtu-
dag en lokatölur voru 45-58.
VF 45. tbl. 2003 hbb 5.11.2003 14:40 Page 19