Víkurfréttir - 19.02.2004, Page 12
Fyrsta skóflustungan aðnýju sjö íbúðahæða fjöl-býlishúsi var tekin um
síðustu helgi. Húsið stendur við
nýja götu, Pósthússtræti, við
pósthúsið í Keflavík. Það er
fyrirtækið Meistarahús sem
stendur að byggingunni. Áætl-
að er að húsið verði tilbúið vor-
ið 2005 eða eftir rétt rúmlega
ár.
Einar Guðberg Gunnarsson hjá
Meistarahúsum sagði í samtali
við Víkurfréttir að öll hönnun
hússins væri unnin af Suður-
nesjamönnum. Gunnar Kr. Ott-
ósson arkitekt hannaði húsið,
bæði að utan og innan. Gunnar
opnaði á dögunum nýja arki-
tektastofu GKO arkitekt ehf. að
Túngötu 17 í Keflavík. Fyrirtæk-
ið sér um skipulag, hönnun og
ráðgjöf bæði innan hús og utan.
Suðurnesjamenn hafa tekið vel á
móti þessu unga sprotafyrirtæki.
Fjölbýlishúsið að Pósthússtræti 1
er fyrsta verkefni arkitektastof-
unnar á Suðurnesjum en bygg-
ingin er frumhönnun sem þýðir
mikla hönnunarvinnu í öllum
verkþáttum. Að sögn Einars
Guðberg er mikill metnaður
lagður í alla þætti hönnunar húss-
ins. Verkfræðistofa Suðurnesja
hannar burðarvirki og lagnir í
húsinu og Rafmiðstöðin hannar
raflögn og teikningar.
Pósthússtræti 1 verður með við-
haldsfrírri klæðningu enda er það
orðið löngu ljóst að steinsteypa
ein og sér er ekki nægjanleg veð-
urvörn á Íslandi, segir Einar. Það
hefur því færst í vöxt að upp-
steypt hús séu einangruð og
klædd að utan. Hann segir að
þessu fylgi augljóslega aukinn
kostnaður við byggingu hússins,
en það skili sér síðar í minna við-
haldi. Þá er það einnig vaxandi
krafa í byggingum að vera með
hita í gólfum. Þá þarf að fylgja
kröfum vaxandi og stækkandi
kynslóða og þá dugar ekkert
minna en að vera með dyragátt
upp á 215 sm. og lofthæð upp á
a.m.k. 270 sm.
Í nýja fjölbýlishúsinu er leyst
þekkt vandamál í loftræstingu
fjölbýlishúsa. Verkfræðistofa
Suðurnesja er að hanna loftræst-
ingu með yfirþrýstingi í stiga-
göngum en undirþrýstingur verð-
ur í sorpgeymslu, sem verður
undir bílakjallara. Það kemur í
veg fyrir að sorplykt berist upp
eftir sorprennum í sameign.
Eins og áður segir þá er húsið sjö
íbúðahæðir með fjórum íbúðum
á fyrstu sex hæðunum og síðan
eru tvær þakíbúðir á 7. hæð.
Íbúðirnar eru 3ja og 4ra her-
bergja frá 100 til 126 fermetrar.
Þakíbúðirnar eru 160 fermetrar.
Lyfta er frá bílageymslu upp á 7.
hæð. Geymslur eru í kjallara, auk
sameiginlegrar hjóla- og vagna-
geymslu. Undir kjallara er síðan
sorpgeymsla. Stórar svalir eru
við allar íbúðir og á þeim er
vatnskrani til að auðvelda þrif.
Einar Guðberg sagði að þessi
nýja bygging hafi fengið ótrúlega
góð viðbrögð. Jarðvinna er hafin
en hún er í höndum Auðuns Páls-
sonar verktaka. Þá hefur Hjalti
Guðmundsson ehf. verið ráðinn
til að sjá um uppsteypu hússins
og einangrun og álklæðningu.
Meistarahús eru hins vegar bygg-
ingaraðili og umsýsluverktaki
hússins. Að sögn Einars Guðberg
eru nokkrir verkþættir við hús-
bygginguna sem hafa enn ekki
farið í útboð, en það mun gerast á
næstu misserum. Aðspurður
hvers vegna Meistarahús steypi
ekki húsið upp sjálft, þá sagði
Einar að í sveitarfélaginu væru
þrír stórir aðilar með tækjabúnað
og steypumót til að sjá um slík
verk. Þess vegna væri samið við
einn af þeim aðilum til að annast
uppsteypuna.
Eigendur Meistarahúsa eru þrír,
þeir Sigurþór Stefánsson, Jón Ár-
mann Arnoddsson og Einar Guð-
berg Gunnarsson.
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ M E I S TA R A H Ú S B Y G G J A S J Ö H Æ Ð A Í B Ú Ð A B L O K K V I Ð K E F L A V Í K U R H Ö F N
Frá vinstri: Andrés Hjaltason með son sinn Einar, Guðlaugur Guðlaugsson fast-
eignasali, Auðunn Pálsson jarðvinnuverktaki, Sigurþór Stefánsson, Jón Ár-
mann Arnoddsson og Einar Guðberg Gunnarsson eigendur Meistarahúsa og
Gunnar Kr. Ottósson arkitekt hússins.
NÝTT HÁHÝSI VIÐ SJÁVARSÍÐUNA
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 13:54 Page 12