Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.02.2004, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 19.02.2004, Qupperneq 12
Fyrsta skóflustungan aðnýju sjö íbúðahæða fjöl-býlishúsi var tekin um síðustu helgi. Húsið stendur við nýja götu, Pósthússtræti, við pósthúsið í Keflavík. Það er fyrirtækið Meistarahús sem stendur að byggingunni. Áætl- að er að húsið verði tilbúið vor- ið 2005 eða eftir rétt rúmlega ár. Einar Guðberg Gunnarsson hjá Meistarahúsum sagði í samtali við Víkurfréttir að öll hönnun hússins væri unnin af Suður- nesjamönnum. Gunnar Kr. Ott- ósson arkitekt hannaði húsið, bæði að utan og innan. Gunnar opnaði á dögunum nýja arki- tektastofu GKO arkitekt ehf. að Túngötu 17 í Keflavík. Fyrirtæk- ið sér um skipulag, hönnun og ráðgjöf bæði innan hús og utan. Suðurnesjamenn hafa tekið vel á móti þessu unga sprotafyrirtæki. Fjölbýlishúsið að Pósthússtræti 1 er fyrsta verkefni arkitektastof- unnar á Suðurnesjum en bygg- ingin er frumhönnun sem þýðir mikla hönnunarvinnu í öllum verkþáttum. Að sögn Einars Guðberg er mikill metnaður lagður í alla þætti hönnunar húss- ins. Verkfræðistofa Suðurnesja hannar burðarvirki og lagnir í húsinu og Rafmiðstöðin hannar raflögn og teikningar. Pósthússtræti 1 verður með við- haldsfrírri klæðningu enda er það orðið löngu ljóst að steinsteypa ein og sér er ekki nægjanleg veð- urvörn á Íslandi, segir Einar. Það hefur því færst í vöxt að upp- steypt hús séu einangruð og klædd að utan. Hann segir að þessu fylgi augljóslega aukinn kostnaður við byggingu hússins, en það skili sér síðar í minna við- haldi. Þá er það einnig vaxandi krafa í byggingum að vera með hita í gólfum. Þá þarf að fylgja kröfum vaxandi og stækkandi kynslóða og þá dugar ekkert minna en að vera með dyragátt upp á 215 sm. og lofthæð upp á a.m.k. 270 sm. Í nýja fjölbýlishúsinu er leyst þekkt vandamál í loftræstingu fjölbýlishúsa. Verkfræðistofa Suðurnesja er að hanna loftræst- ingu með yfirþrýstingi í stiga- göngum en undirþrýstingur verð- ur í sorpgeymslu, sem verður undir bílakjallara. Það kemur í veg fyrir að sorplykt berist upp eftir sorprennum í sameign. Eins og áður segir þá er húsið sjö íbúðahæðir með fjórum íbúðum á fyrstu sex hæðunum og síðan eru tvær þakíbúðir á 7. hæð. Íbúðirnar eru 3ja og 4ra her- bergja frá 100 til 126 fermetrar. Þakíbúðirnar eru 160 fermetrar. Lyfta er frá bílageymslu upp á 7. hæð. Geymslur eru í kjallara, auk sameiginlegrar hjóla- og vagna- geymslu. Undir kjallara er síðan sorpgeymsla. Stórar svalir eru við allar íbúðir og á þeim er vatnskrani til að auðvelda þrif. Einar Guðberg sagði að þessi nýja bygging hafi fengið ótrúlega góð viðbrögð. Jarðvinna er hafin en hún er í höndum Auðuns Páls- sonar verktaka. Þá hefur Hjalti Guðmundsson ehf. verið ráðinn til að sjá um uppsteypu hússins og einangrun og álklæðningu. Meistarahús eru hins vegar bygg- ingaraðili og umsýsluverktaki hússins. Að sögn Einars Guðberg eru nokkrir verkþættir við hús- bygginguna sem hafa enn ekki farið í útboð, en það mun gerast á næstu misserum. Aðspurður hvers vegna Meistarahús steypi ekki húsið upp sjálft, þá sagði Einar að í sveitarfélaginu væru þrír stórir aðilar með tækjabúnað og steypumót til að sjá um slík verk. Þess vegna væri samið við einn af þeim aðilum til að annast uppsteypuna. Eigendur Meistarahúsa eru þrír, þeir Sigurþór Stefánsson, Jón Ár- mann Arnoddsson og Einar Guð- berg Gunnarsson. 12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ➤ M E I S TA R A H Ú S B Y G G J A S J Ö H Æ Ð A Í B Ú Ð A B L O K K V I Ð K E F L A V Í K U R H Ö F N Frá vinstri: Andrés Hjaltason með son sinn Einar, Guðlaugur Guðlaugsson fast- eignasali, Auðunn Pálsson jarðvinnuverktaki, Sigurþór Stefánsson, Jón Ár- mann Arnoddsson og Einar Guðberg Gunnarsson eigendur Meistarahúsa og Gunnar Kr. Ottósson arkitekt hússins. NÝTT HÁHÝSI VIÐ SJÁVARSÍÐUNA 8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 13:54 Page 12

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.