Víkurfréttir - 19.02.2004, Side 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Gunnar Stefánsson for-maður björgunarsveit-arinnar Suðurnes gaf
krökkum í 4. bekk Njarðvíkur-
skóla í dag bækur um Geimál-
finn frá Varslys, sem er lífs-
leiknisnámsefni um slys og
slysavarnir. Krakkarnir í 4.
bekk voru ánægðir með gjöf-
ina, en Björgunarsveitin Suð-
urnes mun afhenda bókina
krökkum í 4. bekk í öllum
skólum í Reykjanesbæ.
Um þessar mundir eru flestar
einingar Slysavarnafélagsins
Landsbjargar að gefa grunnskól-
um landsins námsefnið Geimálf-
urinn frá Varslys, lífsleiknináms-
efni um slys og slysavarnir. Efn-
ið er ætlað nemendum í 4., 5. og
6. bekk og helsta markmið þess
er að draga úr slysum á börnum
og unglingum auk þess að efla
samstarf heimila og skóla í slysa-
vörnum.
Geimálfur frá plánetunni Varslys
brotlendir á Íslandi. Hann áttar
sig illa á þeim hættum sem steðja
hér að honum úr ýmsum áttum.
Nemendur fylgjast með þrauta-
göngu hans og vinna mörg og
ólík verkefni. Í námsefninu og
kennsluleiðbeiningum er töluvert
um ábendingar á gott efni á vefn-
um og er tilgangurinn í senn að
ýta undir sjálfstæða þekkingar-
leit, nemenda og kennara, og að
benda á skemmtilegar síður með
leikjum, þrautum og þjónustu
sem tengist efninu. Þemaheftin
eru 6 talsins og fjalla um ýmsar
hættur í umhverfinu s.s. í tengsl-
um við ár, höf og vötn, rafmagn
og opinn eld, umferðina og
hættuleg efni sem víða er að
finna. Heftunum fylgir kennara-
handbók og safndiskur með
myndskeiðum en í tengslum við
námsefnið verður fljótlega opn-
aður vefurinn geimalfurinn.is
A lls mættu 180 gestir ánýárstónleika Tónlistar-félags Reykjanesbæjar
sem haldnir voru sl. föstudags-
kvöld í Listasafni Reykjanes-
bæjar.
Fram komu Tríó Reykjavíkur
ásamt stórsöngvurunum Diddú
og Bergþóri Pálssyni sem brugðu
á leik við mikla kátínu gesta. Má
þar nefna hinn misskilda selló-
snilling Álfheiði Jóndóttur eða
Álu og eitthvað voru gleraugu
fiðluleikarans skrítin í einu atrið-
inu. Boðið var upp á Vínartónlist,
sígaunatónlist og tónlist úr þekkt-
um söngleikjum. Sérstakur hátíð-
arbragur var yfir tónleikunum og
var boðið upp á hvítvín og kon-
fekt í hléi þar sem gestir gátu um
leið virt fyrir sér bátasýningu
Gríms Karlssonar í hliðarsal
Listasafnsins.
Tónlistarfélagið hyggst halda
fleiri metnaðarfulla tónleika á ár-
inu og eru tvennir fyrirhugaðir
fram að vori.
➤ B J Ö R G U N A R S V E I T I N S U Ð U R N E S
➤ D U U S - H Ú S I N
Geimálfurinn frá Varslys
gefinn í Njarðvíkurskóla
Gunnar Stefánsson ásamt nemendum og kennurum í 4. SH í Njarðvíkurskóla.
Vel heppnaðir nýárstónleikar
Tónlistarfélags Reykjanesbæjar
Frá tónleikunum á föstudagskvöld.
VF-MYND: JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 13:55 Page 14