Víkurfréttir - 19.02.2004, Síða 15
VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 19. FEBRÚAR 2004 I 15
Í leikskólanum Tjarnarseli erhaldið veglega upp á þorr-ann og á dögunum var
haldið þorrablót á leikskólan-
um. Boðið var upp á hefðbund-
inn þorramat, s.s. hangikjöt,
sviðasultu, hrútspunga, hákarl,
rófustöppu, flatkökur, rúg-
brauð, harðfisk, mysu og fleira
þjóðlegt. Í salnum á Tjarnarseli
var einnig sýning á gömlum
munum sem kennarar komu
með að heiman og klæddu
nokkrir kennaranna sig upp í
þjóðlegan fatnað; lopapeysur
og upphlut.
Húsfreyjan að Stekkjarkoti kom í
heimsókn við mikinn fögnuð
krakkanna og hélt kynningu á
nytjahlutum og leikföngum gam-
alla tíma. Krakkarnir tóku þátt í
umræðum um lífið í gamla daga
og sungu að lokum þorralög.
Tveir elstu árgangarnir í leikskól-
anum fóri í heimsókn að Stekkj-
arkoti og tók húsfreyjan vel á
móti þeim á hlaðinu, þar sem
hún bauð þeim inn í bæinn sinn
og kynnti menningu gamalla
tíma. Það var margt spennandi
fyrir krakkana að sjá og spjöll-
uðu þeir af miklum áhuga við
húsfreyjuna.
Þorrinn þreyttur að Tjarnarseli
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á Netinu
Skoðið www.vf.is
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 13:56 Page 15