Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.02.2004, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 19.02.2004, Blaðsíða 15
VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 19. FEBRÚAR 2004 I 15 Í leikskólanum Tjarnarseli erhaldið veglega upp á þorr-ann og á dögunum var haldið þorrablót á leikskólan- um. Boðið var upp á hefðbund- inn þorramat, s.s. hangikjöt, sviðasultu, hrútspunga, hákarl, rófustöppu, flatkökur, rúg- brauð, harðfisk, mysu og fleira þjóðlegt. Í salnum á Tjarnarseli var einnig sýning á gömlum munum sem kennarar komu með að heiman og klæddu nokkrir kennaranna sig upp í þjóðlegan fatnað; lopapeysur og upphlut. Húsfreyjan að Stekkjarkoti kom í heimsókn við mikinn fögnuð krakkanna og hélt kynningu á nytjahlutum og leikföngum gam- alla tíma. Krakkarnir tóku þátt í umræðum um lífið í gamla daga og sungu að lokum þorralög. Tveir elstu árgangarnir í leikskól- anum fóri í heimsókn að Stekkj- arkoti og tók húsfreyjan vel á móti þeim á hlaðinu, þar sem hún bauð þeim inn í bæinn sinn og kynnti menningu gamalla tíma. Það var margt spennandi fyrir krakkana að sjá og spjöll- uðu þeir af miklum áhuga við húsfreyjuna. Þorrinn þreyttur að Tjarnarseli Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á Netinu Skoðið www.vf.is 8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 13:56 Page 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.