Víkurfréttir - 19.02.2004, Qupperneq 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hvernig hefur verið að starfa
sem forseti bæjarstjórnar?
Starfið er mjög skemmtilegt og
um leið er mikil ábyrgð fólgin í
því . Fyrir manneskju sem hefur
verið lengi starfandi í stjórnmál-
um er það mjög gefandi að fá
tækifæri til að sinna þessu emb-
ætti.
Finnst þér að þínar hugsjónir
nái fram að ganga í gegnum
starfið í bæjarpólitíkinni?
Já mér finnst það. Með þátttöku í
bæjarmálum hefur mér gefist
tækifæri til að hafa áhrif á það
samfélag sem við búum í hér í
Reykjanesbæ.
Er það að hvetja þig áfram?
Auðvitað er það hvatning. Það er
náttúrulega gaman að sjá mál
sem maður hefur haft áhuga á í
gegnum tíðina verða að veru-
leika.
Er það mikil vinna að starfa
sem forseti bæjarstjórnar?
Það er meiri vinna að vera forseti
en bæjarfulltrúi og ótrúlega tíma-
frekt. Það koma tímabil þar sem
meira er að gera og svo koma
einnig tímabil þar sem minna er
að gerast.
Í hverju felst þessi vinna helst?
Forseti bæjarstjórnar stýrir bæjar-
stjórnarfundum og gætir að allt
sé gert samkvæmt bæjarmála-
samþykktum og sveitarstjórnar-
lögum. Ég fylgist einnig með
dagskránni sem send er til bæjar-
fulltrúa. Ég kem fram fyrir bæj-
arins hönd við ýmis tækifæri
m.a. móttökur og aðra atburði á
vegum bæjarins. Það er stundum
sagt að embættið sé „andlit“ bæj-
arins út á við.
Hvernig er að starfa með
meirihlutanum. Er hann sam-
hentur í málum?
Já mér hefur alltaf fundist meiri-
hlutinn vera mjög samhentur.
Þetta er fyrirtaksfólk allt saman
upp til hópa sem hefur valist í
meirihluta sem ég hef starfað í.
Ef ég tala um þann meirihluta
sem situr núna þá berum við
mjög mikið traust hvert til ann-
ars.
Finnst þér þátttaka kvenna í
pólitík næg hér á Suðurnesj-
um?
Nei mér finnst það ekki. Ég hef
setið í bæjarstjórn þar sem voru
fimm konur. Á síðasta kjörtíma-
bili voru tvær konur í bæjarstjórn
en það fjölgaði sem betur fer um
eina konu í síðustu kosningum.
Mér finnast konur sýna það frek-
ar en hitt að þær hafi ekki áhuga
á pólitísku starfi og það finnst
mér miður.
Hvernig er að takast á við þessi
erfiðu mál sem koma upp inn-
an bæjarstjórnar, t.d. hækkun
leikskólagjalda?
Það er mismunandi hvernig mað-
ur tekur þessi mál inn á sig.
Hækkun leikskólagjalda bitnar
t.d. á ungu fólki með börn og
maður tekur þá umræðu meira
inn á sig heldur en mörg önnur
mál. En þetta er hlutur sem mað-
ur venst og það verður að taka á
hverri umræðu fyrir sig á meðan
hún stendur og leggja hana til
hliðar þegar búið er að fara í
gegnum málið.
Ertu fylgjandi hækkun leik-
skólagjaldanna?
Ég tel að hækkunin hafi verið
nauðsynleg. Við komum töluvert
til móts við þá sem nýta þessa
þjónustu t.d. með auknum systk-
inaafslætti og ef annað foreldrið
er í fullu dagnámi. Ég er sam-
mála því að það er eðlilegt að
miða við að foreldrar greiði 1/3
hluta kostnaðar og bærinn 2/3.
Framkvæmdir við Hafnargöt-
una hafa verið töluvert gagn-
rýndar af íbúum bæjarins á
sama tíma og leikskóla- og
fasteignagjöld hækka. Hvað
finnst þér um þessa gagnrýni?
Ég tel að það sé ekki hægt að
blanda þessum tveimur málum
saman. Ég er búin að vera lengi í
pólitíkinni og Hafnargatan hefur
alltaf verið stórt mál í kosninga-
baráttu og mikill þrýstingur um
að hefja framkvæmdir. Við
ákváðum á sínum tíma að taka
gamla bæinn í gegn og fara síðan
í Hafnargötuna og það var komið
að því að efna loforð. Mér finnst
stórkostlegt að sjá breytingarnar
á Hafnargötunni og ég held að
þær eigi eftir að skila sér í auk-
inni verslun og þjónustu við göt-
una og að íbúarnir verði bæði
ánægðir og stoltir með nýja
Hafnargötu.
Helguvíkurframkvæmdirnar
hafa verið töluvert í umræð-
unni og sá orðrómur hefur ver-
ið lífseigur meðal íbúa Reykja-
nesbæjar að Stálpípuverk-
smiðjan væri farin út af borð-
inu. Hvernig lítur þú á það
mál?
Ég hef auðvitað heyrt þessar sög-
ur líka. Það er ekkert í stöðunni
sem segir að þetta verkefni sé út
af borðinu. Eftir því sem ég best
veit lítur málið ekki illa út en
fjármögnun tekur tíma. Öll stór
verkefni taka lengri tíma að
verða að veruleika en gert er ráð
fyrir. Ég vona svo sannarlega að
þessi verksmiðja muni rísa.
„Mér líður bara mjög vel með þá staðreynd að vera orðin fimmtug,“ sagði Björk Guðjónsdóttir forseti bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar þegar blaðamaður Víkurfrétta heimsótti hana á Háteiginn á dögunum. Björk hélt glæsilega afmælis-
veislu í Duus-húsum um miðjan janúar, sama kvöld og úrslitakvöld Idol stjörnuleitar var haldið og sama kvöld og allt
varð ófært á Suðurnesjum í fyrsta eiginlega óveðri vetrarins. Björk afþakkaði allar persónulegar gjafir, en benti af-
mælisgestum á að láta af hendi rakna peninga í söfnunarbauk fyrir Tónlistarfélag Reykjanesbæjar sem nýlega var
endurvakið. „Ég tel mig ekki skorta neitt og mér fannst þetta kjörin leið til að styðja við bakið á Tónlistarfélaginu, en
ég er mikil unnandi klassískrar tónlistar,“ segir Björk en pólitíkin skipar einnig stóran sess í hennar lífi. Árið 1986 tók
hún fyrst sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar, en kjörtímabilið sem hún situr núna í bæjar-
stjórn er það fjórða í röðinni. Björk hefur gegnt starfi forseta bæjarstjórnar frá síðustu kosningum og henni líkar emb-
ættið vel. Samhliða starfi sínu sem forseti bæjarstjórnar starfar Björk í eigin fyrirtæki, Vínheimum sem tvær fjölskyld-
ur reka og segir hún það samræmast hinu pólitíska starfi vel.
Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í viðtali:
Svipmyndir úr afmæli Bjarkar
í Listasafni Reykjanesbæjar
FRÚ FORSETI
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 15:34 Page 16