Víkurfréttir - 19.02.2004, Blaðsíða 23
VÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 19. FEBRÚAR 2004 I 23
Fannar á batavegi
Fannar Ólafsson mættiá sína fyrstu æfingueftir puttabrot og and-
litsmeiðsl á mánudaginn.
Hann hefur verið frá æfing-
um frá því hann meiddist í
leik gegn ÍR í síðasta mán-
uði, og virðist hafa náð sér
vel af fingurmeiðslunum
samkvæmt því sem fram
kemur á heimasíðu Kefla-
víkur.Andlitssár Fannars
eru einnig að gróa og gera
Keflavíkingar ráð fyrir að
Fannar verði orðinn leikfær
fyrir stórleikinn gegn
Grindavík á föstudaginn og
munar um minna þar sem
Fannar er enginn meðalleik-
maður eins og Falur Harð-
arson, þjálfari og leikmaður
Keflvíkinga, hafði á orði.
Falur sjálfur er hins vegar
ekki orðinn góður af hné-
meiðslum sem hafa plagað
hann síðan 16. desember og
verður því miður að bíða á
hliðarlínunni enn um sinn.
Logi kominn á kreik
N jarðvíkingurinn LogiGunnarsson skoraði3 stig fyrir Giessen
46ers í þýsku 1. deildinni í
körfubolta um síðustu helgi.
Leikurinn tapaðist naum-
lega, 100-103, en þetta var
fyrsti leikur Loga frá því í
nóvember þegar hann fór
tvisvar úr axlarlið með stut-
tu millibili. Eftir tapið er
Giessen í neðsta sæti deild-
arinnar, en liðið skipti um
þjálfara eftir tapið.
M ikið gekk á í körfunni ísíðustu viku þar semskiptust á skin og
skúrir hjá liðunum.
Í Intersport-deildinni hlupu
Njarðvíkingar og Keflvíkingar
ansi illa á sig þar sem þeir töp-
uðu gegn andstæðingum sem
voru fyrirfram álitnir síðri.
Njarðvíkingar geta kennt slökum
sóknarleik um pínlegt tap gegn
frísku liði Breiðabliks í Ljóna-
gryfjunni, en Keflvíkingar léku
sinn alversta leik í vetur í tapi
gegn Tindastóli á Króknum.
Njarðvíkingar unnu þó góðan
sigur á ÍR á fimmtudaginn, en
leik Keflavíkur og KFÍ var
frestað tvisvar í vikunni vegna
veðurs og hefur verið settur á
laugardaginn..
Grindvíkingar áttu betra gengi að
fagna í vikunni ár sem þeir unnu
báða sína leiki. Sigur þeirra gegn
KR á útivelli var einn af þeirra
betri leikjum í vetur, en þeir áttu í
basli með botnlið Þórs, en höfðu
betur á endanum og halda enn í
við Snæfellingana á toppi deild-
arinnar
Í 1. deild kvenna virðast Kefla-
víkurstúlkur vera að tryggja sér
deildarmeistaratitilinn því þar er
erfitt að sjá hvaða lið gæti staðist
þeim snúning úr þessu. Þær unnu
tvo góða sigra í vikunni, fyrst
gegn Grindvíkingum í spennandi
og skemmtilegum leik, og svo
rústuðu þær botnlið ÍR, sem virð-
ist öruggt með að falla niður um
deild á nýjan leik. Njarðvíkingar
eiga enn eftir að finna taktinn
eftir áramót og voru ákaflega
ósannfærandi í leik sínum gegn
ÍS þar sem ekkert gekk upp hjá
þeim. Nú virðist aðalspennan í
deildinni snúast um hvort það
verði Grindavík eða Njarðvík
sem fylgir Keflavík, ÍS og KR
upp í undanúrslitin og gætu lín-
urnar skýrst eftir innbyrðisleik
liðanna sem fór fram í gær, eftir
að þetta blað fór í prentun.
KR-GRINDAVÍK 90-104
Gri: Darrel Lewis 38, Páll Axel Vilbergsson 29.
KR: Josh Murray 41/15, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 12.
ÍR-NJARÐVÍK 90-102
ÍR: Maurice Ingram 27/17, Eiríkur Önundarson 20, Eugene
Christopher 16.
Nja: Páll Kristinsson 31, Brenton Birmingham 22, Friðrik Stefánsson
19.
TINDASTÓLL-KEFLAVÍK 105-81
Kef: Nick Bradford 23/10, Derrick Allen 22.
Tin: Cook 33, Sanders 24, Boyd 21/15.
NJARÐVÍK-BREIÐABLIK 86-91
Nja: Páll Kristinsson 25/12, Brandon Woudstra 25, Friðrik Stefánsson
11.
Bre: Williams 36, Virijevic 18, Pálmi Sigurgeirsson 17.
GRINDAVÍK-ÞÓR 88-81
Gri: Páll Axel 26, Darrel Lewis 25/14, Jackie Rogers 15/11.
Þór: Brisport 24/15, Hodgson 23/10, Brown 20.
Staðan:
1. Snæfell 18 15 3 30
2. Grindavík 18 15 3 30
3. Keflavík 17 11 6 22
4. Njarðvík 18 11 7 22
5. Haukar 18 11 7 22
6. KR 18 10 8 20
7. Hamar 18 9 9 18
8.Tindastóll 18 9 9 18
9. ÍR 18 5 13 10
10. Breiðablik 18 4 14 8
11. KFÍ 17 4 13 8
12. Þór Þorl. 18 3 15 6
GRINDAVÍK-KEFLAVÍK 72-79
Gri: Kesha Tardy 37/17, Sólveig Gunnlaugsdóttir 11.
Kef: Birna Valgarðsdóttir 36, Erla Þorsteinsdóttir 13, María Ben Er-
lingsdóttir 10.
ÍS-NJARÐVÍK 60-39
Nja: Eva Stefánsdóttir 12, Guðrún Karlsdóttir 10/10.
ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 20/16/8, Svandís Sigurðardóttir 12/17.
ÍR-KEFLAVÍK 36-91
Kef: Erla Þorsteins 15/18, Anna María 13/10, Birna 13.
ÍR: Kristrún Sigurjónsdóttir 11/11
Staðan:
1. Keflavík 17 14 3 28
2. ÍS 17 12 5 24
3. KR 17 10 7 20
4. Grindavík 16 6 10 12
5. Njarðvík 16 6 10 12
6. ÍR 17 2 15 4
■ 1. DEILD KVENNA Í KÖRFUKNATTLEIK
■ INTERSPORT-DEILD KARLA Í KÖRFUKNATTLEIK
PÍNLEGT
TAP UMFN
Umkringdur!
... og Keflavík lék sinn alversta leik í vetur
gegn Tindastóli og tapaði stórt
VF-MYND: ÞORGILS JÓNSSON
8. tbl. 2004 umbrot hbb 18.2.2004 14:03 Page 23